Dæmið ekki, til þess að þér verðið ekki dæmdir;
því að með þeim dómi, sem þér dæmið, verðið þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, verður yður mælt.
En hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu?
Eða hvernig getur þú sagt við bróður þinn: Lát mig draga út flísina úr auga þér, og sjá, bjálki er í þínu auga?
Hræsnari, drag fyrst bjálkann út úr auga þínu, og muntu þá sjá vel til að draga út flísina úr auga bróður þíns.
Gefið eigi hundunum hið heilaga og kastið eigi perlum yðar fyrir svínin, til þess að þau troði þær ekki niður með fótunum og snúi sér við og rífi yður í sundur.
Biðjið, og yður mun gefast; leitið, og þér munuð finna; knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða;
því að sérhver sá er biður, öðlast, og sá er leitar, finnur, og fyrir þeim er á knýr, mun upp lokið verða.
Eða hver er sá maður meðal yðar, sem mundi gefa syni sínum stein, er hann bæði um brauð?
Og hvort mundi hann gefa honum höggorm, er hann bæði um fisk?
Ef nú þér, sem vondir eruð, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðir yðar, sem er á himnum, gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?
Alt, sem þér því viljið að mennirnir gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra; því að þetta er lögmálið og spámennirnir.
Gangið inn um þrönga hliðið; því að vítt er hliðið og breiður vegurinn, er liggur til glötunarinnar, og margir eru þeir, sem fara þar inn;
því að þröngt er hliðið og mjór vegurinn, er liggur til lífsins, og fáir eru þeir, sem finna hann.
Gætið yðar fyrir falsspámönnum, er koma til yðar í sauðaklæðum, en eru hið innra glefsandi vargar;
af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort geta menn lesið vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum?
Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu, en skemt tré ber vonda ávöxtu.
Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur skemt tré borið góða ávöxtu.
Hvert það tré, sem ekki ber góðan ávöxt, er upp höggvið og því í eld kastað;
þess vegna — af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá.
Ekki mun hver sá, er við mig segir: Herra, herra, ganga inn í ríki himnanna, heldur sá er gjörir vilja föður míns á himnum.
Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra, herra, höfum vér ekki spáð með þínu nafni, og höfum vér ekki rekið út illa anda með þínu nafni, og höfum vér ekki gjört mörg kraftaverk með þínu nafni?
Og þá mun eg segja þeim afdráttarlaust: Aldrei þekti eg yður; farið frá mér þér, sem fremjið ranglæti.
Hver sem því heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, honum má líkja við hygginn mann, er bygði hús sitt á bjargi;
og steypiregn kom ofan, og vatnsflóð komu og stormar blésu, og skullu á því húsi, en það féll ekki, því að það var grundvallað á bjargi.
Og hverjum, sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, honum má líkja við heimskan mann, er bygði hús sitt á sandi;
og steypiregn kom ofan, og vatnsflóð komu og stormar blésu, og skullu á því húsi, og það fjell, og fall þess var mikið.
Og það varð, er Jesús hafði lokið þessum orðum, að mannfjöldinn undraðist mjög kenningu hans;
því að hann kendi þeim eins og sá sem vald hafði, og ekki eins og fræðimenn þeirra.