Gætið yðar, að fremja ekki réttlæti yðar fyrir mönnunum, til þess að verða séðir af þeim; annars hljótið þér ekki laun hjá föður yðar, sem er á himnum.
Þegar þú því gefur ölmusu, þá lát ekki blása í básúnu fyrir þér, eins og hræsnararnir gjöra í samkundunum og á götunum, til þess að þeim hlotnist heiður af mönnum. Sannlega segi eg yður, þeir hafa laun sín út tekið.
En þegar þú gefur ölmusu, þá viti vinstri hönd þín ekki hvað hægri hönd þín gjörir,
til þess að ölmusa þín sé í leyndum, og faðir þinn, sem sér í leyndum, mun endurgjalda þér.
Og þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir, því að þeim er ljúft að biðjast fyrir standandi í samkundunum og á gatnamótunum, til þess að verða séðir af mönnum. Sannlega segi eg yður, að þeir hafa laun sín út tekið.
En þegar þú biðst fyrir, þá gakk inn í herbergi þitt, og er þú hefir lokað dyrum þínum, þá bið föður þinn, sem er í leyndum, og faðir þinn, sem sér í leyndum, mun endurgjalda þér.
En er þér biðjist fyrir, þá viðhafið ekki ónytjumælgi, eins og heiðingjarnir, því að þeir hyggja, að þeir muni verða bænheyrðir fyrir mælgi sína.
Líkist því ekki þeim; því að faðir yðar veit hvers þér við þurfið, áður en þér biðjið hann.
Þér skuluð því biðja þannig: Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist nafn þitt,
komi ríki þitt, verði vilji þinn, svo á jörðu sem á himni;
gef oss í dag vort daglegt brauð;
og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og höfum fyrirgefið skuldunautum vorum;
og leið oss ekki í freistni, heldur frelsa oss frá illu.
Því að ef þér fyrirgefið mönnunum misgjörðir þeirra, þá mun yðar himneski faðir einnig fyrirgefa yður.
En ef þér fyrirgefið ekki mönnunum þeirra misgjörðir, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa yðar misgjörðir.
En er þér fastið, þá verið ekki svipþungir eins og hræsnararnir; því að þeir gjöra ásjónur sínar torkennilegar, til þess að mennirnir geti séð, að þeir fasta; sannlega segi eg yður, að þeir hafa laun sín út tekið.
En er þú fastar, þá smyr höfuð þitt og þvo andlit þitt,
til þess að mennirnir sjái ekki, að þú fastar, heldur faðir þinn, sem er í leyndum, og faðir þinn, sem sér í leyndum, mun endurgjalda þér.
Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir, og þar sem þjófar brjótast inn og stela;
heldur safnið yður fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð, og þar sem þjófar brjótast ekki inn og stela,
því að þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.
Augað er lampi líkamans; ef því auga þitt er heilt, þá mun allur líkami þinn vera í birtu;
en sé auga þitt sjúkt, þá mun allur líkami þinn vera í myrkri; ef því ljósið, sem í þér er, er myrkur, hve mikið verður þá myrkrið!
Enginn getur þjónað tveimur herrum, því að annaðhvort mun hann hata annan og elska hinn, eða aðhyllast annan og lítilsvirða hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammon.
Þess vegna segi eg yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér skuluð eta eða hvað þér skuluð drekka, ekki heldur um líkama yðar, hverju þér skuluð klæðast. Er ekki lífið meira en fæðan og líkaminn meira en klæðnaðurinn?
Lítið til fugla himinsins, þeir sá ekki né uppskera og þeir safna ekki heldur í hlöður, og yðar himneski faðir fæðir þá; eruð þér ekki miklu fremri en þeir?
En hver af yður getur með áhyggjum aukið einni alin við hæð sína?
Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæðnað? Gefið gaum að liljum vallarins, hversu þær vaxa; þær vinna ekki og þær spinna ekki heldur,
en eg segi yður, að jafnvel Salómon í allri dýrð sinni var ekki svo skrýddur sem ein þeirra.
Þegar Guð nú skrýðir svo gras vallarinnar, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér lítiltrúaðir?
Segið því ekki áhyggjufullir: Hvað eigum vér að eta? eða: Hvað eigum vér að drekka? eða: Hverju eigum vér að klæðast?
því að eftir öllu þessu sækjast heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa.
En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, og þá mun alt þetta veitast yður að auki.
Verið því ekki áhyggjufullir um morgundaginn, því að morgundagurinn mun bera áhyggju fyrir sér; hverjum degi nægir sín þjáning.