Dagatal

Þriðjudagur í 1. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 1

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Einnig í dag

Hílaríus frá Poitiers biskup og kirkjufræðari

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Dýrlegi Jesús, Drottinn allra heima,duftinu klæddur, Guðs einkason,þig vil ég elska, einum þér fylgja,anda míns heilsa, líf og von.Fögur er hlíðin, frítt um völl og haga,fagurt er vorið, sem lífgar allt.Jesús er fegri, hærri og hreinni,sem hjartað lífgar, snautt og kalt.Blómkrónur anga, brosa móti sólu,barnsaugað tæra þó fegur skín.Blómið mun falla, brestur hvert auga,birtan þín, Jesús, aldrei dvín.Bjartur er máni, blítt skín sól í heiði,blikandi stjarna er hýr að sjá.Skærar þú lýsir, ljós heimsins, Jesús,ljómi Guðs dýrðar himni frá.Fegurð og yndi, allt á himni og jörðueinum þér hneigir og skín af þér.Hvert sem ég leita, hvað sem ég þrái,hjarta míns gimsteinn vertu mér.Hinst þegar kallið kemur burt af heimi,kannastu við mig og lýstu mér.Síðasta hugsun hjarta míns veri:Heilagi bróðir, dýrð sé þér. Amen.

Sálmur 24

Andstef · Sá er hefur óflekkaðar hendur og hreint hjarta, fær að stíga upp á fjall Drottins.

1Drottinn heyrir jörðin og allt sem á henni er * heimurinn og þeir sem í honum búa.

2Því að hann hefur grundvallað hana * á hafinu og fest hana á vötnunum.

3– Hver fær að stíga upp á fjall Drottins * hver fær að dveljast á hans helga stað?

4– Sá er hefur óflekkaðar hendur og hreint hjarta * eigi hefur selt sál sína hégóma á vald og eigi vinnur rangan eið.

5Hann mun blessun hljóta frá Drottni * og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns.

6– Þessi er sú kynslóð er leitar Drottins * stundar eftir augliti þínu, þú Jakobs Guð. [Sela]

7– Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður * þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.

8– Hver er þessi konungur dýrðarinnar? * Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan.

9– Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður * þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.

10– Hver er þessi konungur dýrðarinnar? * Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar. [Sela]

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sá er hefur óflekkaðar hendur og hreint hjarta, fær að stíga upp á fjall Drottins.

Sálmur — Tb 13, 1b-8 — Guð agar og bjargar

Andstef · Lofið hinn eilífa konung með öllum verkum yðar.

1Og Tóbías hinn eldri lauk upp munni sínum, blessaði Drottin og sagði * „Mikill ert þú, Drottinn, að eilífu, og ríki þitt varir um allar aldir.

2Því að þú hirtir og þú frelsar; þú leiðir niður til heljar og leiðir upp aftur * og enginn er sá, er undan hendi þinni fái komist.

3Gefið Drottni dýrð, þér Ísraelsmenn * og lofið hann í augsýn heiðingjanna,

4því að hann hefur fyrir því tvístrað yður meðal heiðingjanna, sem eigi þekkja hann * að þér mættuð kunngjöra hin undursamlegu verk hans og láta þá vita, að enginn annar almáttugur Guð er til nema hann.

5Hann hefur agað oss fyrir misgjörðir vorar * og hann mun frelsa oss sakir miskunnar sinnar.

6Sjáið þá, hvað hann hefur oss gjört, og gefið honum dýrð með ótta og skjálfta * og hefjið hinn eilífa konung aldanna í verkum yðar.

7En ég mun lofa hann í landi herleiðingar minnar * því að hann hefur sýnt tign sína gagnvart syndugri þjóð.

8Snúið yður því, þér syndarar, og gjörið réttlæti frammi fyrir Guði og trúið því * að hann muni sýna yður miskunn sína.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofið hinn eilífa konung með öllum verkum yðar.

Sálmur 33

Andstef · Hreinlyndum hæfir lofsöngur.

1Gleðjist, þér réttlátir * yfir Drottni! Hreinlyndum hæfir lofsöngur.

2Lofið Drottin með gígjum * leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu.

3Syngið honum nýjan söng * knýið strengina ákaft með fagnaðarópi.

4Því að orð Drottins er áreiðanlegt * og öll verk hans eru í trúfesti gjörð.

5Hann hefur mætur á réttlæti og rétti * jörðin er full af miskunn Drottins.

6Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og * öll þeirra prýði fyrir anda munns hans.

7Hann safnaði vatni hafsins sem í belg * lét straumana í forðabúr.

8Öll jörðin óttist Drottin * allir heimsbúar hræðist hann,

9því að hann talaði – og það varð * hann bauð – þá stóð það þar.

10Drottinn ónýtir ráð þjóðanna * gjörir að engu áform lýðanna,

11en ráð Drottinn stendur stöðugt um aldur * áform hjarta hans frá kyni til kyns.

12Sæl er sú þjóð er á Drottni að Guði * sá lýður er hann hefur kjörið sér til eignar.

13Drottinn lítur niður af himni * sér öll mannanna börn,

14frá bústað sínum virðir * hann fyrir sér alla jarðarbúa,

15hann sem myndað hefur hjörtu þeirra allra * og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.

16Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns * eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt.

17Svikull er víghestur til sigurs * með ofurafli sínu bjargar hann ekki.

18En augu Drottins hvíla á þeim er óttast hann * á þeim er vona á miskunn hans.

19Hann frelsar sálir þeirra frá dauða * og heldur lífinu í þeim í hallæri.

20Sálir vorar vona á Drottin * hann er hjálp vor og skjöldur.

21Já, yfir honum fagnar hjarta vort * hans heilaga nafni treystum vér.

22Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss * svo sem vér vonum á þig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hreinlyndum hæfir lofsöngur.

Stuttur ritningarlestur

Rm 13, 11b-13aYður er mál að rísa af svefni, því að nú er oss hjálpræðið nær en þá er vér tókum trú. Liðið er á nóttina og dagurinn í nánd. Leggjum því af verk myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins. Framgöngum sómasamlega eins og á degi.

Stutt svarvers

Guð minn og hjálpari minn, * á þig vona ég.

Guð minn og hjálpari minn, * á þig vona ég.

Hæli mitt og frelsari minn.

Á þig vona ég.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Guð minn og hjálpari minn, * á þig vona ég.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Drottinn hefur reist oss horn hjálpræðis, eins og hann talaði fyrir munn spámanna sinna.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Lofaður sé Jesús Kristur, æðstiprestur vor. Vér skulum biðja til hans og segja:Drottinn, Guð vor og frelsari.Þú gafst oss hlut í prestsdómi þínum,hjálpa oss, að frambera þér stöðugt lofgjörðarfórn.Hjálpa oss að varðveita boðorð þín,svo að vér fáum fyrir Heilagan Anda þinn dvalið í þér og þú í oss.Gef oss eilífan vísdóm þinn,að hann sé með oss og verkum vorum í dag.Veit að vér hryggjum engan í dag,að vér fáum fært þeim gleði, sem vér mætum, ekki þjáningu.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn, hneig eyra þitt og heyr morgunbæn þinna trúuðu. Lát ljós himneskrar náðar þinnar skíra fylgsni hjartna vorra svo að engin óhrein þrá fangi hugi vora, en oss hefur þú frætt með ljósi himneskrar náðar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. HILARÍUSAR, BISKUPS OG KIRKJUFRÆÐARA

Vér biðjum, almáttugi Guð, lát oss megna að skilja réttum skilningi guðdóm Sonar þíns, sem hinn sæli biskup Hilaríus áréttaði stöðugt, og játast honum í sannleika. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Tíminn steðjar sem streymi ástrengir um kletta falla.Undan mig rekur ofan hjá,áralausan að kalla.Með hverri stundu sú stríða röstað stóra fossinum dregur.Flúðir mér ógna og iðuköst,enginn til bjargar vegur.Hvern á ég vin með vilja og máttað vísa til marks og landa?Þeir sogast fram á sama hátt,sjálfir í nauð og vanda.Einn hefur vinurinn vald og gátá voða og öllu grandi:Jesús fær varið veikan bátog vísað í höfn á landi.Tíminn steðjar sem streymi á.Stýrum í Jesú nafni!Þótt bátur sé smár og báran há,þá brosir hans land fyrir stafni. Amen.

Sálmur 20

Andstef · Drottinn veitir sínum Smurða sigur.

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar * nafn Jakobs Guðs bjargi þér.

3Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum * styðji þig frá Síon.

4Hann minnist allra fórnargjafa þinna * og taki brennifórn þína gilda. [Sela]

5Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir * og veiti framgang öllum áformum þínum.

6Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa * fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.

7Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða * svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.

8Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum * en vér af nafni Drottins, Guðs vors.

9Þeir fá knésig og falla * en vér rísum og stöndum uppréttir.

10Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss * er vér hrópum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn veitir sínum Smurða sigur.

Sálmur 21, 2-8. 14

Andstef · Drottinn, vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!

2Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn * hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni!

3Þú hefur gefið honum það er hjarta hans þráði * um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela]

4Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum * setur gullna kórónu á höfuð honum.

5Um líf bað hann þig, það veittir þú honum * fjöld lífdaga um aldur og ævi.

6Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp * vegsemd og heiður veittir þú honum.

7Já, þú hefur veitt honum blessun að eilífu * þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.

8Því að konungurinn treystir Drottni * og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi.

14Hef þig, Drottinn * í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Drottinn, þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum.

Stuttur ritningarlestur

1Jh 3, 1a. 2Sjáið hvílíkan kærleika Faðirinn hefur auðsýnt oss, að vér skulum kallast Guðs börn. Og það erum vér. Þér elskaðir, nú þegar erum vér Guðs börn, og það er enn þá ekki orðið bert, hvað vér munum verða. Vér vitum að þegar hann birtist þá munum vér verða honum líkir, því að vér munum sjá hann eins og hann er.

Stutt svarvers

Orð þitt stendur stöðugt að eilífu, * orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Orð þitt stendur stöðugt að eilífu, * orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Frá kyni til kyns varir trúfesti þín.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Orð þitt stendur stöðugt að eilífu, * orð þitt, Drottinn, varir að eilífu.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Andi minn gleðst í Guði, Drottni mínum og frelsara.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi, eilífi Guð, af náð veitir þú oss að lifa þessa kvöldstund. Vér biðjum þig, að bænir vorar, er vér færum þér með upplyftum höndum séu þér þóknanleg fórn. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 5, 8-9aVerið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt. Standið gegn honum stöðugir í trúnni.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Miskunnsami Drottinn, hrek á brott myrkur þessarar nætur og lát heimili þitt sofa í friði, svo að við dögun fái það fyllt gleði að vakna í þínu nafni. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007