Miðvikudagur í jólatíð
Virkur dagur á jólatíð.
Jólatíð · Vika 2Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Einnig í dag
Silvester I páfi
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 1. Jóhannesarbréf 2:18-21
- Davíðssálmur
- Sálmur 96:1-2, 11-12, 13
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 1:1-18
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í dag er heimi frelsi fætt,er fær vor mein og harma bættþað barnið þekkjum blessað vér,vor bróðir Jesús Kristur er.Og oss til merkis er það sagt:Í aumum reifum finnum lagtþað barn í jötu', er hefur heimí hendi sér og ljóssins geim.Því gleðjumst allir, góðir menn,og göngum þangað allir senn,þá jólagjöf, Guðs son, að sjá,er sauða hirðar gleðjast hjá.Æ, velkominn oss vertu þá,er vorar syndir tókst þig á.Oss, Jesús, kenn að þakka þér,að þínir bræður urðum vér.Ó, Guð, sem ráð á öllu átt,hví ertu kominn hér svo lágt,í tötrum lagður hart á hey,sem hefðir dýrri bústað ei?Þótt veröld öll sé víð og löng,sú vaggan er þér samt of þröngog þín ei verð, þótt væri' hún fullaf vegsemd þeirri', er skín sem gull.Svo hefur, Drottinn, þóknast þér,og þá vilt speki kenna mér,að heimsins auð og allt hans glysþú eigi virðir meira' en fis.Af hjarta' og tungu heilög dýrðsé Herrans Jesú föður skýrð.Heyr barna þinna bæn og þökk,og brjóstin, Guð, sjá glöð og klökk. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Drottinn, hinn mikli Guð, mun koma frá Síon til þess að frelsa þjóð sína.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, hinn mikli Guð, mun koma frá Síon til þess að frelsa þjóð sína.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Ég skal ekki láta af að sárbæna Guð um Síon uns hann sendir sinn Heilaga í geislandi fegurð sinni.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég skal ekki láta af að sárbæna Guð um Síon uns hann sendir sinn Heilaga í geislandi fegurð sinni.
Sálmur 149
Andstef · Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur sent mig til að boða fátækum gleðilegan boðskap.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur sent mig til að boða fátækum gleðilegan boðskap.
Stuttur ritningarlestur
Jes 4, 2-3Á þeim degi mun kvistur Drottins prýðilegur og veglegur verða, og ávöxtur landsins hár og fagur fyrir þá af Ísrael, sem undan komast. Þeir sem af lifa í Síon og eftir verða í Jerúsalem, skulu kallast heilagir, allir þeir, sem skráðir eru meðal hinna lifandi í Jerúsalem.
Stutt svarvers
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt.* Hallelúja, hallelúja.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Fyrir augu þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hafa góðan vilja, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Vér skulum ákalla Krist Drottin af auðmýkt en þó af fullu trausti en náð hans hafa allar þjóðir séð:Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, fæddur af Föðurnum fyrir allar aldir, ljómi dýrðar hans, mynd verundar hans, orð þitt heldur allri sköpun í verund sinni,vér biðjum þig að gefa heimi vorum nýtt líf fyrir fagnaðarerindi þitt.Kristur, þú fæddist inn í heiminn við fullnustu tímans til að frelsa mannkynið og gefa hverri sköpun frelsi,vér biðjum þig að frelsi sonarréttar vors í þér verði veittur öllum þjóðum.Kristur, Sonur sameðlis Föðurnum, getinn fyrir dögun dagsins, og fæddan í Betlehem til að ritningarnar mættu rætast,vér biðjum þig að gera Kirkju þína að sýnilegu fordæmi um fátækt og einfaldleika.Kristur, Guð og maður, Drottinn og Sonur Davíðs, uppfylling allra spádóma,vér biðjum að Ísrael megi játa þig sem Messías sinn.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi, eilífi Guð, þú hefur gert fæðingu Sonar þíns að upphafi og fullkomnun allrar guðsdýrkunar, vér biðjum, veit oss að teljast til þess hluta mannkyns sem gervallt hjálpræði er ætlað. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · STÓRHÁTÍÐ MARÍU GUÐSMÓÐUR
Drottinn, hjálpa lýð þínum fyrir fulltingi og árnað hins sæla Silvesters páfa, svo að hann lifi þessu lífi undir þinni stjórn og verðskuldi heillavænlega að finna hið eilífa líf. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Heil sért þú, drottning, himnum á, ó, María,sem náðar Drottni nýtur hjá, ó, María.Gjörvallur himnaherheilsar og lýtur þér,vegsemd þér og virðing ber.Salve, salve, salve Regina.Þú, móðir allrar miskunnar, ó, María,hjá þér vor unun er og var, ó, María.Gjörvallur himnaherheilsar og lýtur þér,vegsemd þér og virðing ber.Salve, salve, salve Regina.Heil sért þú, mannsins vænsta von ó, María,sem annast hvern einn sekan son, ó, María.Gjörvallur himnaherheilsar og lýtur þér,vegsemd þér og virðing ber.Salve, salve, salve Regina.Vér hrópum, útlæg Evu börn, ó, María,til þín sem ert í voða vörn, ó, María.Gjörvallur himnaherheilsar og lýtur þér,vegsemd þér og virðing ber.Salve, salve, salve Regina.Þú hjálpin besta himnum á, ó, María,bið þú oss griða Guði hjá, ó, María.Gjörvallur himnaherheilsar og lýtur þér,vegsemd þér og virðing ber.Salve, salve, salve Regina. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Undursamleg skipti; skapari mannsins gerðist maður og fæddist af meyju. Vér vorum gerðir hluttakendur í guðdómi Krists sem auðmýkti sjálfan sig til að eiga hlut í manneðli voru.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Undursamleg skipti; skapari mannsins gerðist maður og fæddist af meyju. Vér vorum gerðir hluttakendur í guðdómi Krists sem auðmýkti sjálfan sig til að eiga hlut í manneðli voru.
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Með þinni dásamlegu fæðingu af Maríu mey hefur þú uppfyllt ritningarnar: Líkt og regnið er fellur blíðlega til jarðar hefur þú stigið niður til að frelsa lýð þinn. Ó Guð, vér lofum þig.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Með þinni dásamlegu fæðingu af Maríu mey hefur þú uppfyllt ritningarnar: Líkt og regnið er fellur blíðlega til jarðar hefur þú stigið niður til að frelsa lýð þinn. Ó Guð, vér lofum þig.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Blessaður og frjósamur meydómur þinn er líkur runnanum sem logaði en brann ekki og Móse sá á Sínaí. Bið fyrir oss, Guðsmóðir.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Blessaður og frjósamur meydómur þinn er líkur runnanum sem logaði en brann ekki og Móse sá á Sínaí. Bið fyrir oss, Guðsmóðir.
Stuttur ritningarlestur
Gl 4, 4-5Þegar fylling tímans kom, sendi Guð Son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli, til þess að hann keypti lausa þá, sem voru undir lögmáli, og vér fengjum barnaréttinn.
Stutt svarvers
Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.
Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.
Hann bjó með oss.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Í sínum mikla kærleika fyrir oss, sendi Guð Son sinn í líkingu vorrar syndsamlegu náttúru, fæddan af konu og settan undir lögmálið, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Guð, sem veitt hefur mannkyni ævarandi hjálpræði að gjöf fyrir frjósaman hreinleika sællar Maríu, veit að vér skynjum árnaðarbænir hennar fyrir oss, er gerði oss kleift að þekkjast höfund lífsins, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · STÓRHÁTÍÐ MARÍU GUÐSMÓÐUR
Vér biðjum, Guð, sem veitt hefur mannkyni ævarandi hjálpræði að gjöf fyrir frjósaman hreinleika sællar Maríu, veit að vér skynjum árnaðarbænir hennar fyrir oss, er gerði oss kleift að þekkjast höfund lífsins, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007