Dagatal

Laugardagur í 34. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 34

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Þar tignartindi áég tjald vil gera,þar góðum Guði hjáer gott að veraog ummyndast og búast björtum klæðumog öðlast eilíft skart,með andlit sólarbjart,á helgum hæðum.Ég bjart lít blika skýá banadegi,raust heyri eg þar í:"Minn elskulegi"!Þá skyggir dauðans ský á lífsins blóma,mig enginn ótti slær,mér einn er Jesús nærí ljóssins ljóma. Amen.

Sálmur 92

Andstef · Kunngjörum miskunn þína, Drottinn, að morgni og trúfesti þína um nætur.

1Sálmur. Hvíldardagsljóð.

2Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu * þú Hinn hæsti,

3að kunngjöra miskunn þína að * morgni og trúfesti þína um nætur

4á tístrengjað hljóðfæri og * hörpu með strengjaleik gígjunnar.

5Þú hefur glatt mig, Drottinn * með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég.

6Hversu mikil eru verk þín * Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar.

7Fíflið eitt skilur eigi * og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.

8Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust * þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,

9en þú sem ert á hæðum * ert til að eilífu, Drottinn.

10Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá * óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.

11En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn * mig hressir þú með ferskri olíu.

12Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína * eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.

13Hinir réttlátu gróa sem pálminn * vaxa sem sedrustréð á Líbanon.

14Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins * gróa í forgörðum Guðs vors.

15Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt * þeir eru safamiklir og grænir.

16Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur * klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kunngjörum miskunn þína, Drottinn, að morgni og trúfesti þína um nætur.

Sálmur — 5M 32, 1-12 — Gæska Guðs til lýðs hans

Andstef · Gefið Guði vorum dýrðina!

1Hlustið, þér himnar, því að nú mun ég mæla * og jörðin hlýði á mál munns míns!

2Kenning mín streymi sem regn, ræða mín drjúpi sem dögg * eins og gróðrarskúrir á grængresið og sem þungaregn á jurtirnar. Verk Guðs eru fullkomin

3Ég vil kunngjöra nafn Drottins * Gefið Guði vorum dýrðina!

4Bjargið – fullkomin eru verk hans * því að allir vegir hans eru réttlæti. Trúfastur Guð og tállaus, réttlátur og réttvís er hann.

5Synir hans eru spilltir orðnir * blettur er á þeim, rangsnúin og rammspillt kynslóð.

6Ætlið þér að launa Drottni þannig, þú heimska og óvitra þjóð? Er hann ekki faðir þinn * sá er skóp þig, sá er gjörði þig og myndaði?

7Minnstu fyrri tíða, hyggið að árum liðinna alda! Spyr föður þinn, að hann megi fræða þig * gamalmenni þín, að þau megi segja þér frá! Guð annast lýð sinn

8Þá er hinn hæsti skipti óðulum meðal þjóðanna, þá er hann greindi í sundur mannanna börn * þá skipaði hann löndum þjóðflokkanna eftir tölu Ísraels sona.

9Því að hlutskipti Drottins er lýður hans * Jakob úthlutuð arfleifð hans.

10Hann fann hann í eyðimerkurlandi og í óbyggðum, innan um öskrið á öræfunum. Hann verndaði hann * hugði að honum, hann varðveitti hann sem sjáaldur auga síns.

11Eins og örn, sem vekur upp hreiður sitt og svífur yfir ungum sínum * svo útbreiddi hann vængi sína, tók hann upp og bar hann á flugfjöðrum sínum.

12Drottinn einn leiddi hann * og enginn annar guð var með honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Gefið Guði vorum dýrðina!

Sálmur 8

Andstef · Hversu dýrlegt er nafn þitt, Drottinn, um alla jörðina.

1Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur.

2Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt * um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himnana.

3Af munni barna og brjóstmylkinga hefur þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum * til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.

4Þegar ég horfi á himnana, verk handa þinna * tunglið og stjörnurnar, er þú hefur skapað,

5hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans * og mannsins barn, að þú vitjir þess?

6Þú lést hann verða litlu minni en Guð * með sæmd og heiðri krýndir þú hann.

7Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum * allt lagðir þú að fótum hans:

8sauðfénað allan og uxa * og auk þess dýr merkurinnar,

9fugla loftsins og fiska hafsins * allt það er fer hafsins vegu.

10Drottinn, Guð vor * hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hversu dýrlegt er nafn þitt, Drottinn, um alla jörðina.

Stuttur ritningarlestur

Rm 12, 14-16aBlessið þá, er ofsækja yður, blessið þá, en bölvið þeim ekki. Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. Berið sama hug til allra, hreykið yður ekki, en haldið yður að hinum lítilmótlegu.

Stutt svarvers

Varir mínar skulu fagna, * er ég leik fyrir þér.

Varir mínar skulu fagna, * er ég leik fyrir þér.

Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt,

er ég leik fyrir þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Varir mínar skulu fagna, * er ég leik fyrir þér.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Bein, Drottinn, fótum vorum á friðarveg.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Vér minnumst visku og gæsku Krists, sem er nærri öllum bræðrum vorum, einkum þeim er þjást og beittir eru órétti. Áköllum hann og biðjum:Fullkomna oss í kærleika, Drottinn.Gef að vér minnumst upprisu þinnar,lát gæði hjálpræðis þíns ná til allra manna.Gef, Drottinn, að vér berum þér vitni í dag,og að vér mættum, fyrir þinn atbeina, færa Föðurnum verðuga gjöf.Gef að vér sjáum ímynd þína í öllum mönnum,svo að þjónusta vor við þig birtist í öllu viðmóti voru.Kristur, þú ert hinn sanni vínviður, vér erum greinarnar,gef að vér séum stöðug í þér, berum ríkulegan ávöxt og færum Guði lof.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Lofi þig Drottinn, bæn vor, sál vor og andi vor. Af kærleik gafstu oss líf og vér biðjum að það megi stöðugt tilheyra þér. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Slá þú hjartans hörpu strengi,hrær hvern streng sem ómað fær.Hljómi skært og hljómi lengihósíanna nær og fjær.Hvert þitt innsta æðarslagómi' af gleði þennan dag.Konungurinn konungannakemur nú til sinna manna.Ríki hans um allar álfurómælanda geimsins nær.Hásætið er himinn sjálfur,hallarprýði sólin skær,fótskör hans hin fagra jörð,fylgdin hans er englahjörð.Skrúða ljóssins skrýddur er hann,skíra lífsins krónu ber hann.Hann, þótt æðst í hátign ljómi,hógvær kemur alls staðar.Hjarta þitt að helgidómihann vill gjöra' og búa þar.Opna glaður hjartans hús,hýs hinn tigna gestinn fús.Getur nokkuð glatt þig fremur:Guð þinn sjálfur til þín kemur. Amen.

Sálmur 141, 1-9

Andstef · Kunngjörið meðal þjóðanna: Sjá, Guð frelsari vor kemur.

1Drottinn, ég ákalla þig, skunda þú til mín * ljá eyra raust minni, er ég ákalla þig.

2Bæn mín sé fram borin sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt * upplyfting handa minna sem kvöldfórn.

3Set þú, Drottinn, vörð fyrir munn minn * gæslu fyrir dyr vara minna.

4Lát eigi hjarta mitt hneigjast að neinu illu * að því að fremja óguðleg verk með illvirkjum, og lát mig eigi eta krásir þeirra.

5Þótt réttlátur maður slái mig og trúaður hirti mig * mun ég ekki þiggja sæmd af illum mönnum. Bæn mín stendur gegn illsku þeirra.

6Þegar höfðingjum þeirra verður hrundið niður af kletti * munu menn skilja, að orð mín voru sönn.

7Eins og menn höggva við og kljúfa á jörðu * svo skal beinum þeirra tvístrað við gin Heljar.

8Til þín, Drottinn, mæna augu mín * hjá þér leita ég hælis, sel þú eigi fram sál mína.

9Varðveit mig fyrir gildru þeirra * er sitja um mig, og fyrir snörum illvirkjanna.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kunngjörið meðal þjóðanna: Sjá, Guð frelsari vor kemur.

Sálmur 142

Andstef · Sjá, Drottinn kemur, og allir heilagir hans með honum, og á þessum degi verður undursamlegt ljós, hallelúja.

1Maskíl eftir Davíð * er hann var í hellinum. Bæn.

2Ég hrópa hátt til Drottins * hástöfum grátbæni ég Drottinn.

3Ég úthelli kveini mínu fyrir honum * tjái honum neyð mína.

4Þegar andi minn örmagnast í mér * þekkir þú götu mína. Á leið þeirri er ég geng hafa þeir lagt snörur fyrir mig.

5Ég lít til hægri handar og skyggnist um * en enginn kannast við mig. Mér er varnað sérhvers hælis, enginn spyr eftir sál minni.

6Ég hrópa til þín, Drottinn, ég segi * Þú ert hæli mitt, hlutdeild mín á landi lifenda.

7Veit athygli kveini mínu, því að ég er mjög þjakaður * bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari.

8Leið sál mína út úr dýflissunni, að ég megi lofa nafn þitt * hinir réttlátu skipast í kringum mig, þegar þú gjörir vel til mín.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sjá, Drottinn kemur, og allir heilagir hans með honum, og á þessum degi verður undursamlegt ljós, hallelúja.

Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs

Andstef · Drottinn kemur með miklum mætti og allir munu sjá hann.

6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.

7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.

9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,

10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu

11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn kemur með miklum mætti og allir munu sjá hann.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23-24Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. Trúr er sá, er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar.

Stutt svarvers

Drottinn, sýn oss * miskunn þína.

Drottinn, sýn oss * miskunn þína.

Og veit oss frelsun þína.

Miskunn þína.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, sýn oss * miskunn þína.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Tákn munu sjást á sólinni, tunglinu og stjörnunum; og á jörðinni munu þjóðirnar fyllast angist; og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum þig, almáttugi Guð, að styrkja fylgjendur þína, sem skunda með réttlátum verkum mót Kristi komandi, svo að þeir skipist honum til hægri handar og verðskuldi að eiga himnaríki. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007