Daníelsbók 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Daníelsbók 3

Nebúkadnezar konungur lét gjöra líkneski af gulli, sextíu álna á hæð og sex álna á breidd; hann lét reisa það í Dúradal í Babel-. héraði.

Og Nebúkadnezar konungur sendi út menn til jæss að stefna saman jörlunum, landstjórunum, landshöfðingjunum, ráðherrunum, féhirðunum, dómurunum, lögmönnunum og öllum embættismönnum í skattlöndunum, að þeir skyldu koma til vígslu líkneskisins, sem Nehúkadnezar konungur hafði reisa látið.

’á söfnuðust saman jarlarnir, landstjórarnir, landshöfðingjarnir, ráðherrarnir, féhirðarnir, dómararnir, lögmennirnir og allir embættismenn í skattlöndunum, til vígslu líkneskisins, sem Nebúkadnezar konungur hafði reisa látið, og námu staðar hammi fyrir líkneskinu, er Nebúkadnezar hafði látið reisa.

Þá kallaði kallarinn hárri röddu: Svo er yður öllum boðið, hverrar þjóðar og hvaða landsmenn sem þér eruð og á hverja tungu sem þér mælið:

þegar er þér heyrið hljóð hornanna, pípnanna, gígjanna, harpnanna, saltaranna, symfónanna og alls konar hljóðfæra, þá skuluð þér falla fram og tilbiðja gull-líkneskið, sem Nebúkadnezar konungur hefir reisa látið.

En hver sá, er eigi fellur fram og tilbiður, honum skal á samri stundu kastað verða inn í brennandi eldsofn.

Þess vegna, undir eins Og alt fólkið heyrði hljóð hornanna, pípnanna, gígjanna, harpnanna, Saltaranna og alls konar hljóðfæra, þá féllu allir fram, hverrar þjóðar, hvers lands og hverrar tungu sem voru, og tilbáðu gull-líkneskið, sem Nebúkadnezar konungur hafði reisa látið.

Fyrir því gengu og fram. sömu stundu kaldverskir menn og ákærðu Júðana.

Þeir tóku svo til máls og sögðu við Nebúkadnezar konung: Konungurinn lifi eilíflega!

Og sögðu við Nebúkadnezar konung: Konungurinn lifi eilíllega! bú hefir, konungur, skipað svo fyrir, að hver maður skuli, þá er hann heyrir hljóð hornanna, pípnanna, gígjanna, harpnanna, saltaranna, symfónanna og alls konar hljóðfæra, falla fram og tilbiðja gulllíkneskið,

tog að hver sá, er eigi fellur fram og tilbiður, honum skuli kastað inn í brennandi eldsofn.

Nú eru hér nokkurir Júðar, er þú hefir gjört að sýslumönnum yfir Babel-héraði, þeir Sadrak, Mesak og Abed-Negó. Þessir menn virða þig að engu, konungur; þeir dýrka ekki þína guði og tilbiðja ekki gull-líkneskið, sem þú hefir reisa látið.

Þá fyltist Nebúkadnezar reiði og heift og bauð að leiða fram þá Sadrak, Mesak og Abed-Negó; og voru þessir menn leiddir fyrir konunginn.

Nebúkadnezar tók til máls og sagði við þá: Er það af ásettu ráði, Sadrak, Mesak og Ahed-Negó, að þér dýrkið ekki minn guð og tilbiðjið ekki gull-líkneskið, sem eg hefi reisa látið.

Ef þér nú eruð viðbúnir, jafnskjótt og þér heyrið hljóð hornanna, pípnanna, gígjanna, harpnanna, saltaranna, symfónanna og alls konar hljóðfæra, að falla fram og tilbiðja líkneski það, er eg hefi gjöra Látið, þá nær það ekki lengra; en ef þér tilbiðjið það ekki, þá skal yður samstundis verða kastað inn í eldsofn brennandi, og hver er sá guð, er yður megi frelsa úr mínum höndum?

Þá svöruðu þeir Sadrak, Mesak og Abed-Negó og sögðu við Nebúkadnezar konung: Vér þurfum ekki að svara þér einu orði upp á þetta.

Ef Guð vor, sem vér dýrkum, getur frelsað oss, þá mun hann frelsa oss úr eldsofninum brennandi og af þinni hendi, konungur;

en þótt hann gjöri það ekki, þá skalt þú samt vita, konungur, að vér munum ekki dýrka þína guði né tilbiðja gull-líkneskið, sem þú hefir reisa látið.

Þá fyllist Nebúkadnezar heiftarreiði við þá Sadrak, Mesak og Abed-Negó, svo að ásjóna hans afmyndaðist, og hann skipaði að kynda ofninn sjöfalt heitara en vanalegt var að kynda hann.

Og hann bauð rammefldum mönnum, sem voru í ber hans, að binda þá Sadrak, Mesak og Abed-Negó og kasta þeim inn í brennandi eldsofninn.

Síðan voru þessir menn bundnir í nærfötum sínum, kyrtlum, skikkjum og öðrum klæðnaði sínum og þeim kastað inn í hinn brennandi eldsofn.

Og sökum þess að skipun konungs var svo strengileg, en ofninn kyntur ákaflega, þá varð eldsloginn að bana mönnunum, sem báru þá Sadrak, Mesak og Abed-Negó.

En þeir þrír menn, Sadrak, Mesak og Abed-Negó, féllu bundnir niður í hinn brennandi eldsofn.

Og þeir gengu mitt í loganum og lofuðu Guð og blessuðu Drottin.

Þá stóð Asarías upp og bað á þessa leið, og hann lauk upp munni sínum mitt í eldinum og sagði:

„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og nafn þitt er lofs vert og dýrlegt að eilífu.

Því að réttlátur ert þú í öllu, sem þú hefir oss gjört, og öll verk þín eru sönn og vegir þínir réttir og allir dómar þínir sannir.

Því að þú hefir framkvæmt sanna dóma í öllu, sem þú hefir yfir oss leitt og yfir Jerúsalem, hina heilögu borg feðra vorra; því að samkvæmt sannleika og dómi hefir þú leitt alt þetta yfir oss sakir synda vorra.

Því að vér höfum syndgað og drýgt ranglæti og horfið frá þér, og vér höfum brotið í öllu

og eigi hlýtt boðorðum þínum, né höfum vér gætt né gjört eins og þú hafðir oss boðið, að oss mætti vel farnast.

Fyrir því hefir þú gjört alt í sönnum dómi, sem þú hefir yfir oss leitt og alt, sem þú hefir oss gjört;

og þú hefir ofurselt oss í hendur óvina vorra, sem eru ranglátir og hinir óguðlegustu og lögbrjótar, og konungi ranglátum og hinum óguðlegasta af öllum, sem á jörðunni eru.

Og nú megum vér eigi upp ljúka munnum vorum; vér erum orðnir skömm og háðung þjónum þínum og þeim, sem þig tilbiðja.

Ofursel oss eigi að eilífu, vér biðjum þig, sakir nafns þíns, og ógild eigi sáttmála þinn.

Og tak eigi miskunn þína frá oss sakir Abrahams, þíns elskaða, og Ísaks, þjóns þíns, og Ísraels, þíns heilaga,

sem þú talaðir við og hést því, að þú mundir margfalda niðja þeirra sem stjörnur himinsins og sem sand, er á sjávarströnd er.

Því að vér, Drottinn, erum orðnir færri en nokkur þjóð og niður lægðir á allri jörðunni á þessum degi sakir synda vorra.

Og eigi er á þessum tíma höfðingi né leiðtogi né spámaður né brennifórn né sláturfórn né matfórn né reykelsi né staður frumgróða frammi fyrir þér,

að vér mættum finna miskunn þína; en með iðrandi hjarta og auðmjúkum anda látum oss þegna verða.

Eins og í brennifórnum hrúta og nauta og eins og í þúsundum feitra lamba, svo verði fórn vor gjörð í augsýn þinni í dag, að hún megi þér þóknast; því að engin skömm er þeim, sem á þig treysta.

Og nú fylgjum vér þér af öllu hjarta, og vér óttumst þig og leitum ásjónu þinnar.

Lát oss eigi til skammar verða, heldur far með oss eftir hógværð þinni og eftir fjölda miskunnsemda þinna.

Og frelsa oss eftir undursamlegum verkum þínum, og gef nafni þínu dýrð, Drottinn.

Og lát alla þá til skammar verða, sem gjöra þjónum þínum ilt; lát þá til skammar verða í öllum mætti þínum, og lát styrk þeirra brotinn verða.

Og lát þá vita, að þú ert Drottinn, hinn eini Guð, og dýrlegur um allan heiminn.“

Nú hættu þjónar konungsins, sem þá höfðu inn kastað, eigi að hita ofninn með brennisteini og hampi og biki og þurrum spýtum;

og loginn steig upp yfir ofninn fjörutíu og níu álnir

og braust út og brenndi þá af Kaldeum, sem hann fann nærri ofninum.

En engill Drottins gekk ofan með Asaríasi og félögum hans í ofninn og rak eldslogann út úr ofninum

og gjörði mitt í ofninum sem andblæ vinds, er dögg færir; og eldurinn snerti þá alls eigi né hrelldi þá né gjörði þeim nokkurt mein.

Þá lofuðu þessir þrír sem með einum munni og vegsömuðu og blessuðu Guð í ofninum og sögðu:

„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og lofs verður og vegsamaður og upp hafinn yfir alt að eilífu; og blessað er hið heilaga nafn dýrðar þinnar og lofs vert og upp hafið yfir alt um allar aldir.

Blessaður ert þú í hinu heilaga musteri dýrðar þinnar, og mjög lofs verður og mjög dýrlegur að eilífu.

Blessaður ert þú í hásæti ríkis þíns, og mjög lofs verður og upp hafinn yfir alt að eilífu.

Blessaður ert þú, sem lítur í djúpin og situr yfir kerúbunum, og lofs verður og upp hafinn yfir alt að eilífu.

Blessaður ert þú á festingu himinsins, og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

Öll verk Drottins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér englar Drottins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér himnar, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér sól og tungl, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Allir þér andar Guðs, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér eldur og hiti, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér kuldi og hiti, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér daggir og hrím, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér frost og kuldi, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér ís og snjór, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér nætur og dagar, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér ljós og myrkur, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér eldingar og ský, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Jörðin blessi Drottin; hún lofi hann og hefji hann yfir alt að eilífu.

Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Alt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér lindir, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér höf og fljót, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér hvalir og alt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér mannanna synir, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Ísrael blessi Drottin; lofi hann og hefji hann yfir alt að eilífu.

Þér prestar Drottins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér þjónar Drottins, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu.

Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir alt að eilífu. Því að hann hefir frelsað oss frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.

Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir um aldir alda.

Allir þér guðræknir, blessið Drottin, Guð guðanna; lofið hann og þakkið honum, því að miskunn hans varir um aldir alda.

Þá varð Nebúkadnezar konungur forviða og spratt upp skyndilega; hann tók til máls og sagði við ráðgjafa sína: Höfum vér ekki kastað þremur mönnum fjötruðum inn í eldinn? Þeir svöruðu konunginum og sögðu: Jú, vissulega, konungur!

Hann svaraði og sagði: Eg sé þó fjóra menn ganga lausa inni í eldinum, án þess að nokkuð hafi orðið þeim að grandi, og er ásýnd hins fjórða því líkust sem hann sé sonur guðanna.

»Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og nafn þitt er lofs vert og dýrlegt að eilífu.

Og jarlarnir, landstjórarni!, landshöfðingjarnir og ráðgjafar konungs söfnuðust saman og sáu, að eldurinn hafði ekki unnið á líkama þessara manna og að hárið á höfði þeirra var ekki sviðnað, að ekkert sá á nærfötum þeirra og enginn - eldseimur fanst af þeim.

Þá tók Nebúkadnezar til máls og sagði: Lofaður sé Guð þeirra Sadraks, Mesaks og Abed-Negós, sem sendi engi) sinn og frelsaði þjóna sína, er treystu honum og óhlýðnuðust boði konungsins, en lögðu líkami sína í sölurnar, til þess að þeir þyrftu ekki að dýrka né tilbiðja neinn annan guð en sinn Guð.

Nú gef clí út þá skipun, að hver sá, hverrar þjóðar, hvers lands og hverrar tungu sem er, er mælir lastmæli gegn Guði þeirra Sadraks, Mesaks og AbedNegós, sá skal höggvinn verða sundur og hús hans gjört að sorphaug; því að enginn annar guð er til, sem eins getur frelsað og hann.

Síðan hóf konungur þá Sadrak, Mesak og Abed-Negó til stórra mannvirðinga í Babel-héraði.