Lúkasarguðspjall 21Krans-útgáfa

Lúkasarguðspjall 21

En er hann leit upp, sá hann hina ríku, er voru að leggja gjafir sínar í fjárhirsluna.

Og hann sá ekkju eina fátæka, er lagði í hana tvo smápeninga.

Og hann sagði: Sannlega segi eg yður, að þessi fátæka ekkja hefir meira lagt en hinir allir;

því að þessir hafa allir lagt fram til gjafanna af nægtum sínum, en hún lagði af skorti sínum alla þá björg, er hún átti.

Og er nokkrir sögðu um helgidóminn, að hann væri prýddur með fögrum steinum og heitgjöfum, sagði hann:

Þetta, sem þér sjáið — þeir dagar munu koma, að hér mun ekki verða skilinn eftir steinn yfir steini, er eigi mun verða rifinn niður.

En þeir spurðu hann og sögðu: Meistari, hve nær mun þá þetta verða og hvert verður táknið, er þetta á að fara að koma fram.

Og hann sagði: Gætið þess, að þér verðið ekki leiddir í villu, því að margir munu koma í mínu nafni, segjandi: Það er eg, og: Tíminn er nálægur, en farið ekki á eftir þeim.

En er þér heyrið um hernað og upphlaup, þá skelfist ekki, því að þetta hlýtur fyrst að koma fram, en endirinn er ekki þá þegar kominn.

Þá sagði hann við þá: Þjóð mun rísa gegn þjóð og konungsríki gegn konungsríki,

og miklir landskjálftar munu verða og á ýmsum stöðum hungursneyð og drepsóttir; og verða munu voðafyrirburðir og tákn mikil af himni.

En á undan öllu þessu munu þeir leggja hendur á yður og ofsækja yður og framselja yður til samkundnanna og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja, fyrir sakir nafns míns.

Og þetta mun verða yður til vitnisburðar.

Látið það því vera fast í huga yðar, að þér ekki fyrirfram séuð að íhuga, hvernig þér eigið að verja yður.

Því að eg mun gefa yður talanda og visku, sem allir mótstöðumenn yðar munu ekki megna að standa á móti eða mótmæla.

En þér munuð framseldir verða jafnvel af foreldrum og bræðrum og frændum og vinum, og nokkura af yður munu þeir lífláta.

Og þér munuð verða hataðir af öllum vegna nafns míns;

en ekkert hár af höfði yðar skal þó farast.

Með stöðuglyndi yðar munuð þér ávinna sálir yðar.

En er þér sjáið Jerúsalem umkringda af herfylkjum, þá vitið, að eyðing hennar er í nánd.

Þá skulu þeir, sem eru í Júdeu, flýja til fjallanna, og þeir, sem eru inni í borginni, flytji sig burt; og þeir sem eru á sveitabýlunum, fari ekki inn í hana.

Því að þetta eru refsingardagar, til þess að uppfyllist alt það, sem ritað er.

Vei þeim, sem þungaðar eru, og þeim sem börn hafa á brjósti á þeim dögum, því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir lýð þessum.

Og þeir munu falla fyrir sverðseggjum og herleiddir verða til allra þjóða, og Jerúsalem mun verða fótum troðin af heiðingjum, þangað til tímar heiðingjanna eru fullnaðir.

Og tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðunni angist meðal þjóðanna í ráðaleysi við dunur hafs og sjávar;

og menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbygðina, því að kraftar himnanna munu bifast.

Og þá munu menn sjá mannsins son komandi í skýi með mætti og mikilli dýrð.

En þegar þetta tekur að koma fram, þá lítið upp og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd.

Og hann sagði þeim líkingu: Gætið að fíkjutrénu og öllum trjám;

þegar þau fara að skjóta frjóöngum, þá sjáið þér og vitið af sjálfum yður, að sumarið er í nánd.

Þannig skuluð þér og vita, að þá er þér sjáið þetta fram koma, er guðsríki í nánd.

Sannlega segi eg yður, að þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns þetta alt kemur fram.

Himinn og jörð munu líða undir lok, en mín orð munu ekki undir lok líða.

En gætið sjálfra yðar, að hjörtu yðar ekki ofþyngist við svall og drykkjuskap og áhyggju fyrir þessu lífi, og komi svo þessi dagur skyndilega yfir yður eins og snara;

því að koma mun hann yfir alla þá, sem búa á öllu yfirborði jarðarinnar.

Verið því ávalt vakandi og biðjandi, til þess að þér megnið að umflýja alt þetta, sem fram mun koma, og að standast frammi fyrir mannsins syni.

Á daginn var hann að kenna í helgidóminum, en á næturnar gekk hann út og hafði náttstað á Olíufjallinu, sem svo er nefnt.

Og alt fólkið flyktist að honum hvern morgun í helgidóminum, til að hlýða á hann.