Dagatal

Laugardagur í 23. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 23

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Upp, skapað allt í heimi hér,að heiðra Guð, vorn Drottin,hið minnsta verk hans mikið er,um mátt hans allt ber vottinn.Þótt kóngar fylgdust allir aðmeð auð og veldi háu,þeir megnuðu' ei hið minnsta blaðað mynda' á blómi smáu.Hvað get ég sagt? Ó, málið mittei megnar, Guð, að lýsa,hve margt er ástarundur þitt,hve öflug stjórnin vísa.Ó, miklið Guð, þér menn á jörð,á málum óteljandi,ó, mikla Guð, þú hólpin hjörð,á himna dýrðarlandi. Amen.

Sálmur 119, 145-152

Andstef · Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.

145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.

146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.

147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.

148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.

149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.

150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.

151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.

152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.

Sálmur — SS 9, 1-6. 9-11 — Drottinn, gef mér visku

Andstef · Speki þín, Drottinn, sé með mér og hjálpi mér í störfum mínum.

1„Guð feðra minna og Drottinn miskunnarinnar * þú sem gjörðir alla hluti með orði þínu

2og skipaðir manninn með speki þinni * að hann skyldi drottna yfir sköpuninni, sem af þér var gjörð,

3að hann skyldi stjórna heiminum eftir jöfnuði * og réttlæti og fullnægja rétti með einlægu hjarta:

4Gef mér spekina, sem situr hjá hásæti þínu * og hafna mér eigi meðal barna þinna.

5Því að ég er þjónn þinn og sonur ambáttar þinnar * veikur maður og skammær og skortir skilning á dómi og lögum.

6Því að þótt einhver sé fullkominn meðal mannanna barna * mun hann að engu metinn verða, ef speki þín er eigi með honum.

9Og speki þín er með þér, sú sem þekkir verk þín og var og viðstödd * þegar þú gjörðir heiminn, og vissi, hvað þóknanlegt var augum þínum og hvað rétt var í boðorðum þínum.

10Send hana út af þínum heilaga himni og frá hásæti tignar þinnar * að hún sé með mér og vinni með mér, að ég megi vita, hvað þér er þóknanlegt.

11Því að hún þekkir og skilur alla hluti og mun leiða * mig hóflega í verkum mínum og varðveita mig með mætti sínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Speki þín, Drottinn, sé með mér og hjálpi mér í störfum mínum.

Sálmur 117

Andstef · Trúfesti Drottins varir að eilífu.

1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,

2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Trúfesti Drottins varir að eilífu.

Stuttur ritningarlestur

Fil 2, 14-15Gjörið allt án þess að mögla og hika, til þess að þér verðið óaðfinnanlegir og hreinir, flekklaus Guðs börn meðal rangsnúinnar og gjörspilltrar kynslóðar. Þér skínið hjá þeim eins og ljós í heiminum.

Stutt svarvers

Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.

Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.

Hlutdeild mín á landi lifenda.

Þú ert hæli mitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Sól af hæðum lýsi öllum þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð vildi upphefja Maríu móður Krists yfir allar verur á himni og jörðu. Áköllum hann í trausti:Lít til móður Sonar þíns og bænheyr oss.Faðir miskunnsemdarinnar, vér færum þér, sem gafst oss Maríu að móður og fordæmi, þakkir,helga hjörtu vor vegna fyrirbæna hennar.Þú, sem gerðir Maríu árvaka fyrir orði þínu og trúfasta þernu þína,vegna fyrirbæna hennar, gerðu oss að þjónum og lærisveinum Sonar þíns.Þú, sem styrktir Maríu er hún stóð við krossinn og fylltir hana gleði upprisunnar,aflétt þjáningum vorum og staðfest von vora vegna fyrirbæna hennar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, lind og upphaf hjálpræðis vors, gef að líf vort sé ávallt vitnisburður kærleika þíns, svo að lofsöng vorum til þín linni hvorki á jörðu né himni. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Lofgjörð, já, lof ég segi,lifandi Drottinn, þérá helgum hvíldardegi,hver enn nú birtist mér.Þín hjartagæskan hreinahlífði mér vel í nóttfrá ógnum allra meina,angist, voða og sótt.Umliðna viku allaáhyggju fyrir mér barst,svo máttu' ei mein til falla,mildur og góður varst.Ei hefndir illsku minnar,oft þó ég styggði þig,naut ég því náðar þinnar,nákvæm var hún við mig.Hjarta, mál, hold og andi,hugur og allt mitt sinnsyngi nú samfagnandi:Sé þér lof, Drottinn minn. Amen.

Sálmur 122

Andstef · Biðjið Jerúsalem friðar.

1Ég varð glaður, er menn sögðu við mig * „Göngum í hús Drottins.“

2Fætur vorir standa * í hliðum þínum, Jerúsalem.

3Jerúsalem, þú hin endurreista * borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,

4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins – það er regla fyrir Ísrael * til þess að lofa nafn Drottins,

5því að þar standa dómarastólar * stólar fyrir Davíðs ætt.

6Biðjið Jerúsalem friðar * hljóti heill þeir, er elska þig.

7Friður sé kringum múra þína * heill í höllum þínum.

8Sakir bræðra minna og * vina óska ég þér friðar.

9Sakir húss Drottins, Guðs vors * vil ég leita þér hamingju.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Biðjið Jerúsalem friðar.

Sálmur 130

Andstef · Meir en vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,

2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!

3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?

4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.

5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.

6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.

8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Meir en vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs

Andstef · Fyrir nafni Jesú skal hvert kné beygja sig á himni og á jörðu, hallelúja.

6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.

7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.

9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,

10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu

11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Fyrir nafni Jesú skal hvert kné beygja sig á himni og á jörðu, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

2Pt 1, 19-21Enn þá áreiðanlegra er oss því nú hið spámannlega orð. Og það er rétt af yður að gefa gaum að því eins og ljósi, sem skín á myrkum stað, þangað til dagur ljómar og morgunstjarna rennur upp í hjörtum yðar. Vitið það umfram allt, að enginn þýðir neinn spádóm Ritningarinnar af sjálfum sér. Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af Heilögum Anda.

Stutt svarvers

Frá sólarupprás til sólarlags, * sé nafn Drottins vegsamað.

Frá sólarupprás til sólarlags, * sé nafn Drottins vegsamað.

Dýrð hans er hafin yfir himnana.

Sé nafn Drottins vegsamað.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Frá sólarupprás til sólarlags, * sé nafn Drottins vegsamað.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · En þér, hvern segið þér mig vera? Pétur svaraði Jesú: Þú ert Messías, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Lít til vor, Guð, skapari allra hluta og stjórnandi. Veit oss að þjóna þér af heilum hug, til þess að vér njótum ávaxtanna af mildi þinni. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007