Fyrra Tímóteusarbréf 1Krans-útgáfa

Fyrra Tímóteusarbréf 1

Páll postuli Krists Jesú, að boði Guðs frelsara vors og Krists Jesú, vonar vorrar,

til Tímóteusar, skilgetins sonar í trú. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, drotni vorum.

Svo sem eg hvatti þig að halda kyrru fyrir í Efesus, er eg var á förum til Makedóníu, til þess að þú skyldir bjóða sumum mönnum að fara ekki með annarlegar kenningar,

og gefa sig ekki við æfintýrum og endalausum ættartölum, er fremur efla þrætur en Guðs ráðstöfun, sem felst í trú. —

En markmið skipunarinnar er kærleikur af hreinu hjarta, góðri samvisku og hræsnislausri trú;

frá þessu eru sumir viknir og hafa snúið sér til hégómamáls;

vilja þeir vera lögmálskennendur, þó að hvorki skilji þeir, hvað þeir segja, né hvað það er, sem þeir eru að staðhæfa.

En vér vitum að lögmálið er gott, noti maðurinn það löglega

og viti það, að lögmálið er ekki ætlað réttlátum manni, heldur lögleysingjum og þverbrotnum, óguðlegum og syndurum, vanheilögum og óhreinum, föðurmorðingjum og móðurmorðingjum, manndrápurum,

frillulífismönnum, mannhórum, mannaþjófum, lygurum, meinsærismönnum, og hvað sem það er nú annað, sem gagnstætt er hinni heilnæmu kenningu,

samkvæmt fagnaðarerindinu um dýrð hins sæla Guðs, sem mér var trúað fyrir.

Eg þakka honum, sem mig styrkan gjörði, Kristi Jesú, drotni vorum, fyrir það að hann áleit mig trúan, er hann fól mér þjónustu,

mér, sem fyrrum var lastmælandi, ofsóknari og smánari; en mér var miskunnað, sökum þess að eg gjörði það óvitandi í vantrú.

Og náðin Drottins vors varð stórmikil með trúnni og kærleikanum í Kristi Jesú.

Það orð er satt, og í alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn, og er eg þeirra fremstur;

en fyrir þá sök var mér miskunnað, að Kristur Jesús skyldi sýna á mér, sem var fremstur, gjörvalt langlyndi sitt, þeim til dæmis, er á hann munu trúa til eilífs lífs.

En konungi aldanna, ókrenkilegum, ósýnilegum, einum Guði sé heiður og dýrð um aldir alda. Amen.

Þessa skipun legg eg fyrir þig, son minn Tímóteus, samkvæmt þeim spádómsorðum, sem áður voru yfir þér töluð, að þú berjist þeim samkvæmt hinni góðu baráttu,

hafandi trú og góða samvisku, sem nokkrir hafa frá sér varpað og liðið skipbrot á trú sinni;

í tölu þeirra manna eru þeir Hýmeneus og Alexander, sem eg hefi selt Satan á vald, til þess að hirtingin kenni þeim að láta af lastmælum.