Tómas postuli
Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.
Almennur kirkjutími · Vika 13Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Efesusbréfið 2:19-22
- Davíðssálmur
- Sálmur 117:1bc, 2
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 20:24-29
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Upp, skapað allt í heimi hér,að heiðra Guð, vorn Drottin,hið minnsta verk hans mikið er,um mátt hans allt ber vottinn.Þótt kóngar fylgdust allir aðmeð auð og veldi háu,þeir megnuðu' ei hið minnsta blaðað mynda' á blómi smáu.Hvað get ég sagt? Ó, málið mittei megnar, Guð, að lýsa,hve margt er ástarundur þitt,hve öflug stjórnin vísa.Ó, miklið Guð, þér menn á jörð,á málum óteljandi,ó, mikla Guð, þú hólpin hjörð,á himna dýrðarlandi. Amen.
Sálmur 119, 145-152
Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.
146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.
147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.
148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.
149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.
152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
Sálmur — 2M 15, 1-4a. 8-13. 17-18 — Sigursöngur eftir gönguna gegnum Rauðahaf
Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.
1Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottins þennan lofsöng: Ég vil lofsyngja Drottni * því að hann hefur sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.
2Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er minn Guð * og ég vil vegsama hann, Guð föður míns, og ég vil tigna hann.
3Drottinn er stríðshetja * Drottinn er hans nafn.
4Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið * og hinir völdustu kappar hans drukknuðu í Hafinu rauða.
8Og fyrir blæstri nasa þinna hlóðust vötnin upp * rastirnar stóðu eins og veggur, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.
9Óvinurinn sagði: „Ég skal elta þá, ég skal ná þeim, ég skal skipta herfangi * sál mín skal skeyta skapi sínu á þeim, ég skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.“
10Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá * þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.
11Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú * dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?
12Þú útréttir þína hægri hönd * jörðin svalg þá.
13Þú hefur leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni * þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.
17Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú * Drottinn, hefur gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.
18Drottinn skal ríkja um * aldur og að eilífu!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.
Sálmur 117
Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.
Stuttur ritningarlestur
2Pt 1, 10-11Bræður, kostið kapps um að gjöra köllun yðar og útvalning vissa. Ef þér gjörið þetta, munuð þér aldrei hrasa. Á þann hátt mun yður ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors og frelsara Jesú Krists.
Stutt svarvers
Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.
Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.
Hlutdeild mín á landi lifenda.
Þú ert hæli mitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Sól af hæðum lýsi öllum þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Blessaður sé Kristur, sem vildi verða bræðrum sínum líkur í öllu, og er miskunnsamur og trúfastur meðalgangari fyrir oss hjá Guði. Biðjum til hans og segjum:Opna fyrir oss fjársjóði kærleika þíns, Drottinn.Sól réttlætisins, þú upplýstir oss með skírninni,vér helgum þér þennan dag.Á hverri stundu viljum vér blessa þig,og lofa nafn þitt í öllu.María, móðir þín, brást við orði þínu,bein einnig skrefum vorum með orðum þínum í dag.Veit oss, sem göngum um í forgengileika, að vænta hins himneska óforgengileika,svo að vér fáum nú fyrir trú, von og kærleika, forskot á gleði hins eilífa lífs.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn, vér biðjum þig: Upplýs hjörtu vor með dýrð upprisu þinnar, eyð skugga dauðans og leið oss til eilífrar dýrðar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. TÓMASAR, POSTULA
Almáttugi Guð, lát oss gleðjast á hátíð hins sæla Tómasar. Mættum vér ávallt finna stuðning af fulltingi hans og fyrir trú vora öðlast lífið í nafni þess sem hann sjálfur játaði sem Drottin sinn. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Lofgjörð, já, lof ég segi,lifandi Drottinn, þérá helgum hvíldardegi,hver enn nú birtist mér.Þín hjartagæskan hreinahlífði mér vel í nóttfrá ógnum allra meina,angist, voða og sótt.Umliðna viku allaáhyggju fyrir mér barst,svo máttu' ei mein til falla,mildur og góður varst.Ei hefndir illsku minnar,oft þó ég styggði þig,naut ég því náðar þinnar,nákvæm var hún við mig.Hjarta, mál, hold og andi,hugur og allt mitt sinnsyngi nú samfagnandi:Sé þér lof, Drottinn minn. Amen.
Sálmur 119, 105-112
Andstef · Orð þitt, Drottinn, er lampi fóta minna, hallelúja.
105Þitt orð er lampi fóta * minna og ljós á vegum mínum.
106Ég hefi svarið og haldið * það að varðveita þín réttlátu ákvæði.
107Ég er mjög beygður, Drottinn * lát mig lífi halda eftir orði þínu.
108Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns * Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.
109Sál mín er ætíð í hættu * en þínu lögmáli hefi ég eigi gleymt.
110Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig * en ég hefi eigi villst frá fyrirmælum þínum.
111Reglur þínar eru eign mín um aldur * því að þær eru yndi hjarta míns.
112Ég hneigi hjarta mitt að því að breyta eftir lögum þínum * um aldur og allt til enda.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Orð þitt, Drottinn, er lampi fóta minna, hallelúja.
Sálmur 16
Andstef · Auglit þitt, Drottinn, fyllir mig gleði, hallelúja.
1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.
2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“
3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.
4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.
5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.
6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.
7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.
8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.
9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,
10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.
11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Auglit þitt, Drottinn, fyllir mig gleði, hallelúja.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Fyrir nafni Jesú skal hvert kné beygja sig á himni og á jörðu, hallelúja.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Fyrir nafni Jesú skal hvert kné beygja sig á himni og á jörðu, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Kól 1, 2b-6aNáð sé með yður og friður frá Guði Föður vorum. Vér þökkum Guði, Föður Drottins vors Jesú Krists, ávallt er vér biðjum fyrir yður. Því að vér höfum heyrt um trú yðar á Krist Jesúm og um kærleikann, sem þér berið til allra heilagra, vegna vonar þeirrar, sem yður er geymd í himnunum. Um þá von hafið þér áður heyrt í orði sannleikans, fagnaðarerindinu, sem til yðar er komið, eins og það einnig ber ávöxt og vex í öllum heiminum.
Stutt svarvers
Frá sólarupprás til sólarlags, * sé nafn Drottins vegsamað.
Frá sólarupprás til sólarlags, * sé nafn Drottins vegsamað.
Dýrð hans er hafin yfir himnana.
Sé nafn Drottins vegsamað.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Frá sólarupprás til sólarlags, * sé nafn Drottins vegsamað.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þeir sem á hann hlýddu, undruðust stórum og sögðu: Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu. Hvaðan kemur honum þetta?
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, með auðmýkt Sonar þíns reistir þú við hrasaðan heim. Gef þeim heilaga gleði sem á þig trúa, svo að þú látir þá njóta eilífs fagnaðar sem þú hefur leyst undan þrælkun syndarinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007