Dagatal

Íreneus biskup og píslarvottur

Minningardagur um Íreneus biskup og píslarvott.

Almennur kirkjutími · Vika 13

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Nú frammi fyrir þér,ó, faðir, birtumst vérog heitt af huga klökkumþinn helgan kærleik þökkum.Þín miskunn, Herra hár,oss hlífði liðið ármeð ástúð óþreytandi,við allri neyð og grandi.Þótt harma skelfdu ský,oss skein hvern morgun nýmeð blessun lands og lýðaþín líknarsólin blíða.Þitt signað sannleiksorð,þíns sonar náðarborðoss huggun helga færðiog hjörtun endurnærði.Oss börn þín bænheyr þú,vér biðjum, faðir, nú:Sem áður enn vor gættuvið allri neyð og hættu.Lát gróa sorgarsár,lát sorgar þorna tár,lát ástarásján þínamót öllum þjáðum skína.Ver faðir fáráðumog föðurleysingjum,ver hrelldum hjálp í nauðum,ver hæli' og auðlegð snauðum.Vér biðjum umfram allt:Til enda lífs oss haltvið trú af hjarta hreinaog himinstefnu beina. Amen.

Sálmur 5, 2-10. 12-13

Andstef · Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig.

2Heyr orð mín, Drottinn * gef gaum að andvörpum mínum.

3Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn * því að til þín bið ég.

4Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína * á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.

5Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki * hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.

6Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér * þú hatar alla er illt gjöra.

7Þú tortímir þeim, sem lygar mæla * á blóðvörgum og svikurum hefur Drottinn andstyggð.

8En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína * fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.

9Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna * gjör sléttan veg þinn fyrir mér.

10Einlægni er ekki til í munni þeirra * hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.

12Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu * því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.

13Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta * hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig.

Sálmur — 1 Kro 29, 10b-13 — Guði einum sé heiður og dýrð

Andstef · Guð vor, vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.

10Þá lofaði Davíð Drottins, að öllum söfnuðinum ásjáanda, og Davíð mælti * „Lofaður sért þú, Drottinn, Guð Ísraels, forföður vors, frá eilífð til eilífðar.

11Þín, Drottinn, er tignin, mátturinn og dýrðin, vegsemdin og hátignin, því að allt er þitt * á himni og jörðu. Þinn er konungdómurinn, Drottinn, og sá, er gnæfir yfir alla sem höfðingi.

12Auðlegðin og heiðurinn koma frá þér; þú drottnar yfir öllu, máttur og megin er í hendi þinni * og á þínu valdi er það, að gjöra hvern sem vera skal mikinn og máttugan.

13Og nú, Guð vor * vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð vor, vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.

Sálmur 29

Andstef · Tilbiðjið Drottin í heilögum bústað hans.

1Tjáið Drottni vegsemd, þér synir hins almáttuga * tjáið Drottni vegsemd og vald.

2Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir * fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða.

3Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja * Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum.

4Raust Drottins hljómar með krafti * raust Drottins hljómar með tign.

5Raust Drottins brýtur sundur sedrustré * Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon.

6Hann lætur Líbanonfjöll hoppa eins og * kálfa og Hermonfjall eins og ungan vísund.

7Raust Drottins klýfur eldsloga.

8Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa * Drottinn lætur Kadeseyðimörk skjálfa.

9Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann og gjörir skógana nakta * og allt í helgidómi hans segir: Dýrð!

10Drottinn situr í hásæti uppi yfir flóðinu * Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu.

11Drottinn veitir lýð sínum styrkleik * Drottinn blessar lýð sinn með friði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Tilbiðjið Drottin í heilögum bústað hans.

Stuttur ritningarlestur

2Þ 3, 10b-13Ef einhver vill ekki vinna, þá á hann heldur ekki mat að fá. Vér heyrum að nokkrir meðal yðar lifi óreglulega, vinni ekkert, heldur gefi sig alla að því, sem þeim kemur eigi við. Slíkum mönnum bjóðum vér og áminnum þá vegna Drottins Jesú Krists, að vinna kyrrlátlega og eta eigið brauð. En þér, bræður, þreytist ekki gott að gera.

Stutt svarvers

Drottinn sé lofaður * frá eilífð til eilífðar.

Drottinn sé lofaður * frá eilífð til eilífðar.

Hann einn gerir furðuverk.

Frá eilífð til eilífðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn sé lofaður * frá eilífð til eilífðar.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Lofaður sé Drottin Guð vor.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Lof sé Kristi, frelsara vorum. Vér skulum biðja til hans:Veit oss Anda þinn, Drottinn.Hjálpa oss, Drottinn, að lifa án syndar í dag,svo að vér getum lofað þig að kveldi.Vak yfir oss í dýrð þinni, Drottinnog blessa dagsverk vort.Lát ásjónu þína lýsa yfir ossog vernda oss með styrkum armlegg þínum.Ver nálægur öllum sem vér felum þér í dag,og tak við bænum vorum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn Guð vor, kom af náð oss til hjálpar í bæn og starfi. Leiðbein oss, svo að allt sem vér hefjumst handa um að gera eigi upphaf sitt og fullkomnun í þér. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. ÍRENEUSAR, BISKUPS OG PÍSLARVOTTS, KIRKJUFRÆÐARA

Guð, þú gafst hinum sæla biskupi Íreneusi mátt til að efla sannleika kenningarinnar og trúfastlega stuðla að friði kirkjunnar. Vér biðjum, veit fyrir árnað hans að vér endurnýjumst í trú og kærleika og séum ávallt reiðubúin að rækta einingu og samhug. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ég vil í Drottni sofna sætt,samviskustríðið allt er bætt,dauðahaldi ég Drottin þríf,dýrstur gef þú mér eilíft líf.Kveð ég í Guði góðan lýð,gleðilegar þeim nætur býð,þakkandi öllum þeirra styrk,þjónustu, hjálp og kærleiksverk.Ástkæra þá, ég eftir skil,afhenda sjálfum Guði vil,andvarpið sér hann sárt og heitt,segja þarf honum ekki neitt.Lúinn anda ég legg nú af,lífinu ráði sá sem gaf,í sárum Jesú mig sætt innvef,sálu mína ég Guði gef.Láttu mig, Drottinn, lofa þig,með lofi þínu hvíla mig,ljósið í þínu ljósi sjá,lofa þig strax sem vakna má. Amen.

Sálmur 117

Andstef · Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. Sæll ert þú, Símon Jónasson!

1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,

2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. Sæll ert þú, Símon Jónasson!

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja Kirkju mína.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja Kirkju mína.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Þú hinn sæli Páll postuli ert hið útvalda ker Guðs; þú prédikaðir sannleikann út um allan heim.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú hinn sæli Páll postuli ert hið útvalda ker Guðs; þú prédikaðir sannleikann út um allan heim.

Stuttur ritningarlestur

Rm 1, 1-3a. 7Páll heilsar yður, þjónn Jesú Krists, kallaður til postula, kjörinn til að boða fagnaðarerindi Guðs, sem hann gaf áður fyrirheit um fyrir munn spámanna sinna í helgum ritningum, fagnaðarerindið um Son hans. Ég heilsa öllum Guðs elskuðu í Róm, sem heilagir eru samkvæmt köllun. Náð sé með yður og friður frá Guði Föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Stutt svarvers

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Þeir báru vitni um upprisu Jesú Krists.

Og prédikuðu það af trúfesti.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Dýrlegir eru postular Krists; þeir elskuðu hver annan meðan þeir lifðu og í dauða fögnuðu þeir saman að eilífu.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur gefið oss heilaga og vegsamlega gleði þessa dags á stórhátíð postulanna Péturs og Páls. Gef Kirkju þinni að fylgja í öllu boðum þeirra, en fyrir þá hóf hún að útbreiða trúna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007