Fyrsta Mósebók 18Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 18

Og Drottinn birtist honum í Mamre-lundi, er hann sat í tjalddyrum sínum í miðdegishitanum.

Og hann hóf upp augu sín og litaðist um, og sjá, þrír menn stóðu gagnvart honum; og er hann sá þá, skundaði hann til móts við þá úr tjalddyrum sínum og laut þeim til jarðar,

og mælti: Drottinn, hafi eg fundið náð í augum þínum, þá gakk eigi fram hjá þjóni þínum.

Leyfið, að sótt sé lítið eitt af vatni, að þér megið þvo fætur yðar, og hvílið yður undir trénu.

Og eg ætla að sækja brauðbita, að þér megið styrkja hjörtu yðar, — síðan getið þér haldið áfram ferðinni, — úr því að þér fóruð hér um hjá þjóni yðar. Og þeir svöruðu: Gjörðu eins og þú hefir sagt.

Þá flýtti Abraham sér inn í tjaldið til Söru og mælti: Sæktu nú sem skjótast þrjá mæla hveitimjöls, hnoðaðu það og bakaðu kökur.

Og Abraham skundaði til nautanna og tók kálf ungan og vænan og fékk sveini sínum, og hann flýtti sér að matbúa hann.

Og hann tók rjóma og mjólk og kálfinn, sem hann hafði matbúið, og setti fyrir þá, en sjálfur stóð hann frammi fyrir þeim undir trénu, meðan þeir mötuðust.

Þá sögðu þeir við hann: Hvar er Sara kona þín? Hann svaraði: Þarna inni í tjaldinu.

Og hann sagði: Vissulega mun eg aftur koma til þín að ári liðnu í sama mund, og mun þá Sara kona þín hafa eignast son. En Sara heyrði þetta í dyrum tjaldsins, sem var að baki hans.

En Abraham og Sara vöru gömul og hnigin á efra aldur, svo að kvenlegir eðlishættir voru horfnir frá Söru.

Og Sara hló með sjálfri sér og mælti: Eftir að eg er gömul orðin, skyldi eg þá á munuð hyggja, þar sem bóndi minn og er gamall?

Þá sagði Drottinn við Abraham: Hví hlær Sara og segir: »Mun það satt, að eg skuli barn fæða svo gömul?

Er Drottinn nokkuð ómáttugt? Í þetta mund mun eg aftur koma til þín að ári, og Sara hefir þá eignast son.

Og Sara neitaði því og sagði: Eigi hló eg, því að hún var hrædd. En hann sagði: Jú, víst hlóst þú.

Því næst tóku mennirnir sig upp þaðan og horfðu niður til Sódómu — en Abraham gekk með þeim, til að fylgja þeim á veg.

Þá sagði Drottinn: Skyldi eg dylja Abraham þess, sem eg ætla að gjöra,

þar sem Abraham mun verða að mikilli og voldugri þjóð, og allar þjóðir jarðarinnar munu af honum blessun hljóta?

Því að eg hefi útvalið hann, til þess að hann bjóði börnum sínum og húsi sínu eftir sig, að þau varðveiti vegu Drottins með því að iðka rétt og réttlæti, til þess að Drottinn láti koma fram við Abraham það, sem hann hefir honum heitið.

Og Drottinn mælti: Hrópið yfir Sódómu og Gómorru, það er vissulega mikið, og synd þeirra, hún er vissulega mjög þung.

Eg ætla því að stíga niður þangað, til þess að sjá, hvort þeir hafa fullkomlega að hafst það, sem þeir eru hrópaðir um fyrir mér; eða sé eigi svo, þá vil eg vita það.

Og mennirnir sneru í brott þaðan og héldu til Sódómu, en Abraham stóð enn þá frammi fyrir Drottni.

Og Abraham Sekk nær honum og mælti: Hvort munt þú afmá hina réttlátu með hinum óguðlegu?

Vera má að fimtíu réttlátir séu í borginni; hvort munt þú afmá þá og ekki þyrma staðnum vegna þeirra fimtíu réttlátu, sem þar eru?

Fjarri sé það þér að gjöra slíkt, að deyða hina réttlátu með hinum óguðlegu, svo að eitt gangi yfir réttláta og óguðlega; fjarri sé það þér! Mun dómari alls jarðríkis ekki gjöra rétt?

Og Drottinn mælti: Finni eg í Sódómu fimtíu réttláta innan borgar, þá þyrmi €Og öllum staðnum þeirra vegna.

Abraham svaraði og sagði: Æ, eg hefi byrjað að tala við Drottin, þótt eg sé duft eitt og aska.

Vera má að fimm skorti á fimtíu réttláta; munt þú eyða alla borgina vegna þessara fimm? Þá mælti hann: Eigi mun eg eyða hana, finni eg þar fjörutíu og fimm.

Og hann hélt áfram að tala við hann og mælti: Vera má að þar finnist ekki nema fjörutíu. En hann svaraði: Vegna þeirra fjörutíu mun eg láta það ógjört.

Og hann sagði: Eg bið þig, Árottinn, að þú reiðist ekki, þó að eg tali. Vera má að þar finnist Ekki nema þrjátíu. Og hann svaraði: Eg mun ekki gjöra það, finni Eg þar þrjátíu.

Og hann sagði: Æ, eg hefi byrjað að tala við Drottin! Vera má að þar finnist ekki nema tuttugu. Og hann mælti: Eg mun ekki eyða hana vegna þeirra tuttugu.

Og hann mælti: Eg bið þig, Drottinn, að þú reiðist ekki, þó að eg tali enn aðeins í þetta sinn. Vera má að þar finnist aðeins tíu. Og hann sagði: Eg mun ekki eyða hana vegna þeirra tíu.

Og Drottinn gekk í brott, er hann hafði lokið tali sínu við Abraham; en Abraham hvarf aftur heimleiðis.