Gamla testamentiðLögmálið
En báðir englarnir komu um kveldið til Sódómu; sat Lot í borgarhliði; og er hann sá þá, stóð hann upp í móti þeim og hneigði ásjónu sína til jarðar.
Því næst mælti hann: Heyrið, herrar mínir, sýnið litillæti og komið inn í hús þjóns ykkar, og verið hér í nótt og þvoið fætur ykkar; getið þið þá risið árla á morgun og farið leiðar ykkar. En þeir sögðu: Nei, við ætlum að hafast við á strætinu í nótt.
Þá lagði hann mikið að þeim, unz þeir fóru inn til hans og gengu inn í hús hans. Og hann bjó þeim máltíð og bakaði ósýrðar kökur, og þeir neyttu.
En áður en þeir gengu til hvíldar, slógu borgarmenn, mennirnir í Sódómu, hring um húsið, bæði ungir og gamlir, allur múgurinn hvaðanæfa.
Og þeir kölluðu á Lot og sögðu við hann: Hvar eru mennirnir, sem komu til þín í kveld? leið þú þá út til vor, að vér megum kenna þeirra.
Lot gekk þá út til þeirra, út fyrir dyrnar, og lokaði hurðinni að baki sér.
Og hann sagði: Fyrir hvern mun, bræður mínir, fremjið ekki óhæfu.
Sjá, eg á tvær dætur, sem ekki hafa karlmann kent; eg skal leiða þær út til yðar, gjörið við þær sem yður gott þykir; aðeins megið þér ekkert gjöra þessum mönnum, úr því að þeir eru komnir undir skugga þaks míns.
’á æptu þeir: Haf þig á burt! og sögðu: þessi eini maður er hingað kominn, til þess að dveljast hér sem útlendingur og vill nú stöðugt vera að siða oss; nú skulum vér leika þig enn ver en þá. Og þeir gjörðu ákallega þröng að manninum, að Lot, og gengu nær, til að brjóta upp dyrnar.
Þá seildust mennirnir út og drógu Lot til sín inn í húsið og lokuðu dyrunum.
En mennina, sem voru úti fyrir dyrum lmssins, slógu þeir með blindu, smáa og stóra, svo að þeir urðu að gefast upp við að finna dyrnar.
Og mennirnir sögðu við Lot: Átt þú hér nokkra fleiri þér nákomna? Tengdasonu þína og dætur þínar og alla í borginni, sem þér eru áhangandi — haf þá burt héðan;
því að við munum eyða þennan stað, af því að hrópið yfir þeim fyrir Drottni er mikið, og Drottinn hefir sent okkur, til að eyða borgina.
Þá gekk Lot út og talaði við tengdasonu sína, sem ætluðu að ganga að eiga dætur hans, og mælti: Standið upp skjótt og farið úr þessum stað, því að Drottinn mun eyða borgina. En tengdasynir hans hugðu, að hann væri að gjöra að gamni sínu,
En er dagur rann, ráku englarnir eftir Lot og sögðu: Statt þú upp skjótt! tak þú konu þína og báðar dætur þínar, sem hjá þér eru, svo að þú fyrirfarist ekki vegna syndar borgarinnar.
En er hann hikaði við, tóku mennirnir í hönd honum og í hönd konu hans og í hönd báðum dætrum hans, af því að Drottinn vildi þyrma honum, og leiddu hann út og létu hann út fyrir borgina.
Og er þeir höfðu leitt þau út, sagði hann: Forða þér; líf þitt liggur við! lít ekki aftur fyrir þig og nem hvergi staðar á öllu sléttlendinu; forða þér á fjöll upp, að þú farist eigi.
Þá sagði Lot við þá: Æ nei, herra minn!
Sjá þjónn þinn hefir fundið náð í augum þínum og þú hefir sýnt á mér mikla miskunn, að láta mig halda lífi; en eg get ekki forðað mér á fjöll upp; ógæfan getur komið yfir mig og eg dáið.
Sjá, þarna er borg í nánd; þangað gæti eg flúið, og hún er lítil; eg vil forða mér þangað — er hún ekki lítil? — að eg megi halda lífi.
Og hann sagði við hann: Sjá, eg hefi einnig veitt þér þessa bæn, að leggja ekki í eyði borgina, sem þú talaðir um.
Flýt þér! forða þér þangað, því að eg get ekkert gjört, fyr en þú kemst þangað. Þess vegna nefna menn borgina Zóar.
Sólin var runnin upp yfir jörðina, er Lot kom il Zóar.
í Og Drottni lét rigna yfir Sódómu og Gómorru brennisteini Og eldi frá Drottni, af himni.
Og hann gjöreyddi þessar borgir og alt sléttlendið og alla íbúa borganna og gróður jarðarinnar.
En kona hans leit við að baki honum og varð að saltstöpli.
En Abraham Sekk snemma morguns þangað, er hann hafði staðið frammi fyrir Drottni.
Og er hann horfði niður á Sódómu og Gómorru og yfir alt sléttlendið, þá sá hann að reyk lagði upp af jörðunni, því líkast sem reykur úr ofni.
En er Guð eyddi borgirnar á sléttlendinu, mintist Guð Abrahams og leiddi Lot út úr eyðingunni, þá er hann lagði í eyði borgirnar, sem Lot hafði búið í.
En Lot fór frá Zóar upp á fjöllin og staðnæmdist þar og báðar dætur hans með honum; því að hann Ótltaðist að vera kyrr í Zóar, og hann hafðist við í helti, hann og báðar dætur hans.
Þá sagði hin eldri við hina yngri: Faðir okkar er Samafl og enginn karlmaður er eftir á jörðunni, sem samfarir megi við Okkur hafa, eins og siðvenja er til alstaðar á jörðunni.
Kom þú, við skulum gefa föður okkar vín að drekka og leggjast hjá honum, að við megum kveikja kyn af föður okkar.
Síðan gáfu þær föður sínum vín að drekka þá nótt, og hin eldri fór og lagðist hjá föður sínum; en hann varð hvorki var við, að hún lagðist niður, né að hún reis á fætur.
Og morguninn eftir sagði hin eldri við hina yngri: Sjá, í nótt lá eg hjá föður mínum; við skulum nú og í nótt gefa honum vín að drekka; far þú síðan inn og leyst hjá honum, að við megum kveikja kyn af föður okkar.
Síðan gáfu þær föður sínum vín að drekka einnig þá nótt, og hin yngri tók sig til og lagðist hjá honum, en hann varð hvorki var við, að hún lagðist niður, né að hún reis á fætur.
Þannig urðu báðar dætur Lots þungaðar af völdum föður síns.
Og hin eldri ól son og nefndi hann Móab; hann er ættfaðir Móabíta alt til þessa dags.
Og hin yngri ól einnig son og nefndi hann Ben-Ammi; hann er ættfaðir Ammóníta alt til þessa dags. Abraham kemur til Gerar. Abímelek tekur Söru, en skilar henni aftur.