Dagatal

Karl Lwanga og félagar, píslarvottar

Minningardagur — kirkjan minnist dýrlings í messu dagsins.

Almennur kirkjutími · Vika 9

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hvorki með hefð né ránihér þetta líf ég fann,sálin er svo sem að lánisamtengd við líkamann.Í Herrans höndum stendurað heimta sitt af mér,dauðinn má segjast sendurað sækja, hvað skaparans er.Nú vel, í Herrans nafni,fyrst nauðsyn ber til slík,ég er ei þeirra jafni,sem jörðin geymir nú lík.Hvenær sem kallið kemur,kaupir sig enginn frí,þar læt ég nótt, sem nemur,neitt skal ei kvíða því.Ég veit, minn ljúfur lifirlausnarinn himnum á,hann ræður öllu yfir,einn heitir Jesús sá,sigrarinn dauðans sannisjálfur á krossi dóog mér svo aumum mannieilíft líf víst til bjó. Amen.

Sálmur 57

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

1Miktam eftir Davíð * þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál.

2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis * og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.

3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs * er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

4Hann sendir af himni og hjálpar mér * þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti.

5Sál mín er meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar * og tungur þeirra eru bitur sverð.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!

7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína * sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela]

8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.

9Vakna þú, sál mín, vakna þú * harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

10Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

11því að miskunn þín nær til * himna og trúfesti þín til skýjanna.

12Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

Sálmur — Jer 31, 10-14 — Gleði hinnar frelsuðu þjóðar

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

10Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá * sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.

11Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess * sem honum var yfirsterkari.

12Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottinn, til kornsins, vínberjalagarins * olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast.

13Þá munu meyjarnar skemmta sér við dans og unglingar og gamalmenni gleðjast saman. Ég * mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.

14Og ég mun endurnæra sál prestanna á feiti * og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum – segir Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

Sálmur 48

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

1Ljóð. Kóraítasálmur.

2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs * á sínu helga fjalli.

3Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð * yst í norðri, borg hins mikla konungs.

4Guð hefur í höllum * hennar kunngjört sig sem vígi.

5Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu * héldu fram saman.

6Óðara en þeir sáu * urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.

7Felmtur greip þá samstundis * angist sem jóðsjúka konu.

8Með austanvindinum brýtur þú Tarsis–knörru.

9Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna * í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]

10Guð, vér ígrundum elsku * þína inni í musteri þínu.

11Eins og nafn þitt, Guð * svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.

12Síonfjall gleðst * Júdadætur fagna vegna dóma þinna.

13Kringið um Síon * gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.

14Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar * til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,

15að slíkur sé Drottinn * Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

Stuttur ritningarlestur

Jes 66, 1-2Svo segir Drottinn: Himinninn er hásæti mitt og jörðin er fótskör mín. Hvaða hús munduð þér geta reist mér, og hvar er sá staður, sem verið geti bústaður minn? Hönd mín hefir gjört allt þetta og þannig er það allt til orðið – segir Drottinn. Þeir sem ég lít til, eru hinir þjáðu og þeir er hafa sundurmarinn anda og skjálfa fyrir orði mínu.

Stutt svarvers

Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.

Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.

Ég vil halda boðorð þín.

Bænheyr mig, Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Þjónum Drottni í heilagleik og hann mun hrífa oss úr höndum óvina vorra.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur færði oss ljós þessa dags. Þökkum honum og segjum:Blessa oss og helga, Drottinn.Þú fórnaðir sjálfum þér vegna synda vorra,sameina fórn vora þinni.Sífellt gleður þú augu vor með gjöf ljóssins,fyll hjörtu vor með ljósi þínu.Veit oss í dag að vera þolgóð í öllu,svo að vér verðskuldum að líkja eftir þér.Drottinn, gjör hendur vorar að verkfærum kærleika þíns,lát gleði þína vera styrkur vorn í dag.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi, eilífi Guð, þig biðjum vér morgun, kvöld og miðjan dag, að kasta á brott skugga syndarinnar úr hjörtum vorum og láta oss komast til Krists, hins sanna ljóss. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. KARLS LWANGA OG FÉLAGA, PÍSLARVOTTA

Guð, þú gjörðir blóð píslarvotta að frækorni kristinna manna. Veit náðarsamlega að akur Kirkju þinnar, sem er vættur blóði hinna sælu Karls og félaga hans, færi þér stöðugt ríkulega uppskeru. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ó, þá náð að eiga Jesúeinkavin í hverri þraut.Ó, þá heill að halla megahöfði sínu' í Drottins skaut.Ó, það slys því hnossi' að hafna,hvílíkt fár á þinni braut,ef þú blindur vilt ei varpavon og sorg í Drottins skaut.Eigir þú við böl að búa,bíðir freistni, sorg og þraut,óttast ekki, bænin ber ossbeina leið í Drottins skaut.Hver á betri hjálp í nauðum?Hver á slíkan vin á braut,hjartans vin, sem hjartað þekkir?Höllum oss í Drottins skaut.Ef vér berum harm í hjarta,hryggilega dauðans þraut,þá hvað helst er Herrann Jesúshjartans fró og líknar skaut.Vilji bregðast vinir þínir,verðirðu' einn á kaldri braut,flýt þér þá að halla' og hneigjahöfuð þreytt í Drottins skaut. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Guð hefur elskað oss með ævarandi elsku; þegar hann var hafinn upp frá jörðu dró hann oss til hjarta síns sökum miskunnar sinnar.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð hefur elskað oss með ævarandi elsku; þegar hann var hafinn upp frá jörðu dró hann oss til hjarta síns sökum miskunnar sinnar.

Sálmur 146

Andstef · Lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.

1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!

2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.

4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.

5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,

8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Ég er góði hirðirinn. Þeir eru gæslulýður minn og ég legg líf mitt í sölurnar fyrir þá.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég er góði hirðirinn. Þeir eru gæslulýður minn og ég legg líf mitt í sölurnar fyrir þá.

Stuttur ritningarlestur

Ef 5, 25b-27Kristur elskaði Kirkjuna og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hana, til þess að helga hana og hreinsa í laug vatnsins með orði. Hann vildi leiða hana fram fyrir sig í dýrð án þess hún hefði blett eða hrukku né neitt þess háttar. Heilög skyldi hún og lýtalaus.

Stutt svarvers

Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.

Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.

Hann gjörði oss að konungsríki og prestum til að þjóna Guði vorum og Föður.

Með blóði sínu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Ég er kominn til að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég, að hann væri þegar kveiktur

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, almáttugi Guð, að vér, sem heiðrum hjarta þíns elskaða Sonar og minnumst hinna miklu kærleiksverka hans oss til handa, verðskuldum hlutdeild þeirrar náðar er fram streymir í gnægð sinni frá þessari himnesku gjafalind. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007