Dagatal

Dýridagur

Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.

Almennur kirkjutími · Vika 9

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Hvað þýðir það

Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.

Lesa meira

Á Íslandi færður til sunnudagsins eftir þrenningarhátíð.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í sunnudagsmessunni

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið,svo býður hann sitt ríka kærleiksborðiðog sendir einkason sinn til að kallatil sinnar kvöldmáltíðar alla – alla.En fyrsti' og annar afsökunar biðja,og eins fer fyrir boðsmanninum þriðja,og það er kunngjört Herra hefðarríkum,að heimsins börn ei sinni boðskap slíkum.Þá spyr hann að, hvort veikir ekki vilji,hvort volaðir og blindir ekki skilji,þá býður hann þeim bjargarlausu' og snauðu,þeim breysku, særðu, föllnu, týndu' og dauðu.Hvert orð er sterkast? Orðið hans, er kallar.Sjá, einnig dauðir ganga lífs til hallar,þeir koma' í hópum, heimurinn sem smáir,en Herrann segir: "Þeir eru' enn of fáir."Hann býður ennþá: "Farið, laðið, leiðið,og leitið, kallið, biðjið, þrýstið, neyðið,mitt kærleiks djúp á himins víðar hallir,í húsi mínu rúmast allir – allir."Ó, Drottinn, þú, sem býður, biður, neyðir,ég blindur er, en sonur þinn mig leiðirfrá synd og hættum gegnum dauðans dalinn,í dýrðar þinnar fagra gleðisalinn. Amen.Eða:Verbum supérnum pródiensnec Patris linquens déxteram,ad opus suum éxiensvenit ad vitæ vésperam.In mortem a discípulosuis tradéndus áemulis,prius in vitæ férculose trádidit discípulis.Quibus sub bina spéciecarnem dedit et sánguinem,ut dúplicis substántiætotum cibáret hóminem.Se nascens dedit sócium,convéscens in edúlium,se móriens in prétium,se regnans dat in práemium.O salutáris hóstia,quæ cæli pandis óstium,bella premunt hostília:da robur, fer auxílium.Uni trinóque Dóminosit sempitérna glória,qui vitam sine términonobis donet in pátria. Amen.

Sálmur 63, 2-9

Andstef · Lýð þínum gafst þú englafæðu; þú sendir þeim brauð af himni, hallelúja.

2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.

6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.

8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.

9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lýð þínum gafst þú englafæðu; þú sendir þeim brauð af himni, hallelúja.

Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Heilagir prestar munu fórna Guði reykelsi og brauði, hallelúja.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Heilagir prestar munu fórna Guði reykelsi og brauði, hallelúja.

Sálmur 149

Andstef · Þeim er sigrar mun ég gefa hið hulda brauð og nýtt nafn, hallelúja.

1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.

5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum

6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum

7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,

8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þeim er sigrar mun ég gefa hið hulda brauð og nýtt nafn, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Ml 1, 11Frá upprás sólar allt til niðurgöngu hennar er nafn mitt mikið meðal þjóðanna, og alls staðar er nafni mínu fórnað reykelsi og hreinni matfórn, því að nafn mitt er mikið meðal þjóðanna segir Drottinn allsherjar.

Stutt svarvers

Þú framleiðir brauð af jörðinni, * hallelúja, hallelúja.

Þú framleiðir brauð af jörðinni, * hallelúja, hallelúja.

Og vín sem gleður mannsins hjarta,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Þú framleiðir brauð af jörðinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Ég er hið lifandi brauð, sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði, mun lifa að eilífu, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Bræður (og systur), vér skulum biðja til Jesú Krists, brauðs lífsins, og segja fagnandi:Sælir eru þeir sem kallaðir eru til þinnar himnesku veislu.Kristur, prestur hins nýja og eilífa sáttmála, þú fórnfærðir Föðurnum fullkomna fórn á altari krossins,kenndu oss að bjóða oss sjálf fram til fórnar með þér.Kristur, konungur réttlætis og friðar, þú helgaðir brauðið og vínið sem tákn um fórnfæringu þína,sameina oss sem fórnarlömb með þér.Kristur, sannur dýrkandi Föðurins: Kirkjan hefur um hönd þína fullkomnu fórn frá upprás sólar til niðurgöngu hennar,sameina í líkama þínum alla þá sem eiga hlutdeild í hinu eina brauði.Kristur, þú sem ert manna sem niður steig af himni, þú nærir Kirkjuna með líkama þínum og blóði,gef að þessi fæða megi styrkja oss á vegferð vorri.Kristur, ósýnilegi gestgjafi veislu vorrar, þú ert fyrir utan og knýr á dyrnar,komdu og dveldu með oss og snæddu kvöldverð með oss.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur eftirlátið oss minningu um þjáningu þína í hinu undursamlega sakramenti. Vér biðjum, veit oss að tigna svo heilaga leyndardóma líkama þíns og blóðs, að vér skynjum ávallt í oss ávöxtinn af endurlausn þinni. Þú sem lifir og ríkir með Guði Föður, í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Tunga mín af hjarta hljóðihelgan leyndardóm um þann,líkam Krists og blessað blóðið,bót sem öllum heimi vann,konungs þjóða þá hins góðaþað á krossi' úr æðum rann.Oss var gefinn, oss var fædduröllum helgri meyju af,meðan hér var holdi klæddur,heimi náðarorðið gaf,ævi sína svo lét dvína.Sjá hér Drottins kærleiks haf.Síðstu nótt, þá sat að borðisjálfur Kristur bræðrum meðlögmáls gjörla eftir orði-engin máltíð dýrri' er séð-höndum hreinum sínum sveinumsig til fæðu gefa réð.Hold í brauði, blóð í vínibauð sitt væri Drottinn kær.Miskunn slík þótt manna' ei skínimyrkum skilning, trúum vær.Trúin eina hjarta hreinuhuggun, gleði' og styrkleik fær.Helgidóm svo háan allirheiðra skulum alla tíð.Gamlar lögmálsfórnir fallifyrir Drottins nýjum sið.Trúin mæta best má bætabrestinn skilnings kristnum lýð.Sönnum Guði, son getanda,syni getnum fyr'ir upphaf,huggaranum, helgum anda,hinum tveim sem kemur af,æ skal syngja sérhver tungasanna vegsemd, dýrð og lof. Amen.Eða:Pange, lingua, gloriósicórporis mystérium,sanguinísque pretiósi,quem in mundi prétiumfructus ventris generósiRex effúdit géntium.Nobis datus, nobis natusex intácta Vírgine,et in mundo conversátus,sparso verbi sémine,sui moras incolátusmiro clausit órdine.In suprémæ nocte cenærecúmbens cum frátribus,observáta lege plenecibis in legálibus,cibum turbæ duodénæse dat suis mánibus.Verbum caro panem verumverbo carnem éfficit,fitque sanguis Christi merum,et, si sensus déficit,ad firmándum cor sincérumsola fides súfficit.Tantum ergo sacraméntumvenerémur cérnui,et antíquum documéntumnovo cedat rítui;præstet fides suppleméntumsénsuum deféctui.Genitóri Genitóquelaus et iubilátio,salus, honor, virtus quoquesit et benedíctio;procedénti ab utróquecompar sit laudátio. Amen.

Sálmur 110, 1-5. 7

Andstef · Kristur Drottinn er prestur að eilífu að hætti Melkísedeks; hann bar fram brauð og vín.

1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“

2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“

5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kristur Drottinn er prestur að eilífu að hætti Melkísedeks; hann bar fram brauð og vín.

Sálmur 116, 10-19

Andstef · Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ber fram lofgjörðarfórn.

10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“

11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“

12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?

13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.

14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.

15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.

16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.

17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.

18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,

19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ber fram lofgjörðarfórn.

Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7

Andstef · Öllum heiminum ertu vegurinn, sannleikurinn og lífið, Drottinn.

1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.

2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“

5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“

6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.

7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Öllum heiminum ertu vegurinn, sannleikurinn og lífið, Drottinn.

Stuttur ritningarlestur

1Kor 11, 23-25Ég hef meðtekið frá Drottni það, sem ég hef kennt yður: Nóttina, sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð, gjörði þakkir, braut það og sagði: Þetta er minn líkami, sem er fyrir yður. Gjörið þetta í mína minningu. Sömuleiðis tók hann og bikarinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu.

Stutt svarvers

Hann gaf þeim brauð af himni. * Hallelúja, hallelúja.

Hann gaf þeim brauð af himni. * Hallelúja, hallelúja.

Englabrauð fengu menn að eta.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Hann gaf þeim brauð af himni. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Þetta er mikil hátíð þegar Kristur er vor fæða; píslir hans eru rifjaðar upp; náðin fyllir hjörtu vor; og vér fáum heit um þá dýrð sem á oss mun opinberast, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur eftirlátið oss minningu um þjáningu þína í hinu undursamlega sakramenti. Vér biðjum, veit oss að tigna svo heilaga leyndardóma líkama þíns og blóðs, að vér skynjum ávallt í oss ávöxtinn af endurlausn þinni. Þú sem lifir og ríkir með Guði Föður, í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007