Laugardagur í 7. viku páskatíðar
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 28:16-20, 30-31
- Davíðssálmur
- Sálmur 11:4, 5 og 7
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 21:20-25
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Sjá þann hinn mikla flokk sem fjöll,er fjölsett gnæfa' í skrúði' af mjöll,hið prúða lið, sem pálmaviðfyr'ir hástól heldur á.Það hetjuvalið hér má sjá,er hörmunginni miklu fráheim komið hér til Herrans erfyr'ir lambsins blessað blóð.Þeir fyrirlitning hlutu' í heim,en hér er um skipt fyrir þeim.Þeir ljóma' í sól við lambsins stólí sælu' um eilíf ár.Æ, mörg var þeirra þrenging sár,á þrungnum augum brunnu tár.Þau hefur nú Guðs höndin trúaf þerrað þjónum sín.Ó, mikli, fríði hetjuher,af hjarta með þér gleðjumst vér,þú reyndist trúr og raunum úrert leiddur, laun að fá.Guð launi þér á himni há,þú hér á jörð með grát réðst sá,nú vitum vér þú víst upp skermeð gleði sætum söng.Já, syng af megni: leiðin löngtil lífs er stigin, hætt og þröng,þér, líknin blíð, sem leystir lýð,sé lofgjörð ár og síð. Amen.
Sálmur 119, 145-152
Andstef · Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf, hallelúja.
145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.
146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.
147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.
148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.
149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.
152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf, hallelúja.
Sálmur — SS 9, 1-6. 9-11 — Drottinn, gef mér visku
Andstef · Drottinn, þú hefur reist musteri og altari á þínu heilaga fjalli, hallelúja.
1„Guð feðra minna og Drottinn miskunnarinnar * þú sem gjörðir alla hluti með orði þínu
2og skipaðir manninn með speki þinni * að hann skyldi drottna yfir sköpuninni, sem af þér var gjörð,
3að hann skyldi stjórna heiminum eftir jöfnuði * og réttlæti og fullnægja rétti með einlægu hjarta:
4Gef mér spekina, sem situr hjá hásæti þínu * og hafna mér eigi meðal barna þinna.
5Því að ég er þjónn þinn og sonur ambáttar þinnar * veikur maður og skammær og skortir skilning á dómi og lögum.
6Því að þótt einhver sé fullkominn meðal mannanna barna * mun hann að engu metinn verða, ef speki þín er eigi með honum.
9Og speki þín er með þér, sú sem þekkir verk þín og var og viðstödd * þegar þú gjörðir heiminn, og vissi, hvað þóknanlegt var augum þínum og hvað rétt var í boðorðum þínum.
10Send hana út af þínum heilaga himni og frá hásæti tignar þinnar * að hún sé með mér og vinni með mér, að ég megi vita, hvað þér er þóknanlegt.
11Því að hún þekkir og skilur alla hluti og mun leiða * mig hóflega í verkum mínum og varðveita mig með mætti sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, þú hefur reist musteri og altari á þínu heilaga fjalli, hallelúja.
Sálmur 117
Andstef · Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið, hallelúja.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 14, 7-9Enginn af oss lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi, að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Vér vorum skírð í Heilögum Anda. Gefum Drottni dýrð og biðjum hann ásamt öllum sem skírðir eru:Drottinn Jesús, gef oss Anda þinn til að helga oss.Send oss þinn Heilaga Anda,til að vér megum ákalla nafn þitt, Drottinn og konungur, frammi fyrir öllum heiminum.Gef oss hræsnislausa elsku,til að Kirkja þín megi vera ein elskandi fjölskylda.Gef öllum trúuðum þína lífgandi náð,til að þeir megi meðtaka af fögnuði gjafir Anda þíns.Gef oss kraft Heilags Anda þíns,til að græða sár vor og styrkja oss.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, almáttugi Guð, veit að vér sem haldið höfum páskahátíð megum fyrir örlæti þitt lifa í anda hennar með breytni vorri og líferni. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Verði ljós, verði hér ljós!heim er skóp, Herrann kvað.Braust þá úr myrkranna geigvænum geimgullfagra ljósið, sem skín yfir heim.Verði ljós, verði hér ljós!aftur bauð einnig hann.Elskaði' hann heiminn, í áþján er svaf,eingetinn son sinn því mönnunum gaf.Verði ljós, verði hér ljós!heyrðist hjá hverri þjóð.Mennirnir elskuðu myrkrið heims svartmeir þó en ljósið Guðs skínandi bjart.Verði ljós, viskunnar ljósbreiðist um alla jörð,eyði það villunnar ánauð og lygð,efli það vísdóm og sannleik og tryggð,Verði ljós, vermandi ljósbreiðist um alla byggð,þíði það kuldann og klakann úr sál,kveiki þar elskunnar logandi bál,Verði ljós, vonarbjart ljóshjarta í hvers eins manns.Eyði það kvíða, en efli þar frið,unun og gleði minn lausnara við. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir, hallelúja.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir, hallelúja.
Sálmur 147, 1-11
Andstef · Postulunum birtust tungur, eins og af eldi væru og kom Heilagur Andi yfir hvern og einn þeirra, hallelúja.
1Hallelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum * því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.
2Drottinn endurreisir Jerúsalem * safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael.
3Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta * og bindur um benjar þeirra.
4Hann ákveður tölu stjarnanna * kallar þær allar með nafni.
5Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi * speki hans er ómælanleg.
6Drottinn annast hrjáða * en óguðlega lægir hann að jörðu.
7Syngið Drottni með þakklæti * leikið á gígju fyrir Guði vorum.
8Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni * lætur gras spretta á fjöllunum.
9Hann gefur skepnunum fóður þeirra * hrafnsungunum, þegar þeir kalla.
10Hann hefur eigi mætur á styrkleika hestsins * eigi þóknun á fótleggjum mannsins.
11Drottinn hefur þóknun á þeim er óttast hann * þeim er bíða miskunnar hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Postulunum birtust tungur, eins og af eldi væru og kom Heilagur Andi yfir hvern og einn þeirra, hallelúja.
Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni
Andstef · Andinn, er út gengur frá Föðurnum, mun gjöra mig dýrlegan, hallelúja.
3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.
4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Andinn, er út gengur frá Föðurnum, mun gjöra mig dýrlegan, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 11Ef Andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með Anda sínum, sem í yður býr.
Stutt svarvers
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Hann mun kenna yður allt,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Kom þú, Heilagur Andi, fyll hjörtu alla hinna trúuðu og lát þá brenna af kærleika þínum. Þótt þær töluðu mörgum tungum sameinaðir þú þjóðirnar í játningu sömu trúar, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi eilífi Guð, þú vildir að sakramenti páskanna væri fólgið í leyndardómi fimmtíu daga. Veit að tungur þjóðanna, sem sundrast hafa, komi saman í himneskri þjónustu til að játa sameiginlega nafn þitt. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007