Miðvikudagur í 7. viku páskatíðar
Virkur dagur á páskatíð.
Páskatíð · Vika 7Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Einnig í dag
Nereus og Akkilleus píslarvottar / Pankrasíus píslarvottur
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 20:28-38
- Davíðssálmur
- Sálmur 68:29-30, 33-35a, 35bc-36ab
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 17:11b-19
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Sjá þann hinn mikla flokk sem fjöll,er fjölsett gnæfa' í skrúði' af mjöll,hið prúða lið, sem pálmaviðfyr'ir hástól heldur á.Það hetjuvalið hér má sjá,er hörmunginni miklu fráheim komið hér til Herrans erfyr'ir lambsins blessað blóð.Þeir fyrirlitning hlutu' í heim,en hér er um skipt fyrir þeim.Þeir ljóma' í sól við lambsins stólí sælu' um eilíf ár.Æ, mörg var þeirra þrenging sár,á þrungnum augum brunnu tár.Þau hefur nú Guðs höndin trúaf þerrað þjónum sín.Ó, mikli, fríði hetjuher,af hjarta með þér gleðjumst vér,þú reyndist trúr og raunum úrert leiddur, laun að fá.Guð launi þér á himni há,þú hér á jörð með grát réðst sá,nú vitum vér þú víst upp skermeð gleði sætum söng.Já, syng af megni: leiðin löngtil lífs er stigin, hætt og þröng,þér, líknin blíð, sem leystir lýð,sé lofgjörð ár og síð. Amen.
Sálmur 86
Andstef · Allar þjóðir, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, hallelúja.
1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.
2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.
4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!
11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,
13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.
14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Allar þjóðir, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, hallelúja.
Sálmur — Jes 33, 13-16 — Guð mun dæma með réttlæti
Andstef · Augu vor skulu sjá konunginn og ljómandi fegurð hans, hallelúja.
13Heyrið, þér sem fjarlægir eruð, hvað ég hefi gjört * og sjáið, þér sem nálægir eruð, kraft minn!
14Syndararnir í Síon eru hræddir, skelfing hefur gagntekið guðleysingjana * „Hver af oss má búa við eyðandi eld, hver af oss má búa við eilíft bál?“
15Sá sem fram gengur réttvíslega og talar af hreinskilni, sá sem hafnar þeim ávinningi, sem fenginn er með ofríki, sá sem hristir mútugjafir af höndum sér * sá sem byrgir fyrir eyru sín til þess að heyra eigi morð ráðin, sá sem afturlykur augum sínum til þess að horfa eigi á það, sem illt er,
16hann skal búa uppi á hæðunum. Hamraborgirnar skulu vera vígi hans * brauðið skal verða fært honum og vatnið handa honum skal eigi þverra.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Augu vor skulu sjá konunginn og ljómandi fegurð hans, hallelúja.
Sálmur 98
Andstef · Allar þjóðir munu sjá hjálpræði Guðs vors, hallelúja.
1Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefur gjört dásemdarverk * hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.
2Drottinn hefur kunngjört hjálpræði sitt * fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
3Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar * við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.
4Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd * hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.
5Leikið fyrir Drottni á gígju * á gígju með lofsöngshljómi,
6með lúðrum og básúnuhljómi * látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottins.
7Hafið drynji og allt sem í því er * heimurinn og þeir sem í honum lifa.
8Fljótin skulu klappa lof í lófa * fjöllin fagna öll saman
9fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. * Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Allar þjóðir munu sjá hjálpræði Guðs vors, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 6, 8-11Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með honum lifa. Vér vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. Með dauða sínum dó hann syndinni í eitt skipti fyrir öll, en með lífi sínu lifir hann Guði. Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa vera dauða syndinni, en lifandi Guði í Kristi Jesú.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Þökk sé Guði sem gefið hefur oss sigur fyrir Drottin vorn, Jesúm Krist, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Heilagur Andi ber vitni um anda vorn að vér erum börn Guðs. Færum Guði Föðurnum þakkir og biðjum:Faðir, bænheyr þú börnin þín.Guð langlyndi og huggunar, kenn oss að vera eitt í huga og hjarta eftir fyrirdæmi Jesú,til að vér megum lofa þig einni röddu og einum anda.Gef að vér leitum öll þess að þjóna náunga vorum,með því að gera það sem gott er og byggja upp samfélag kærleikans.Lát eigi anda heimsins, rótfastan í hinu illa, leiða oss,heldur leið oss með Andanum sem frá þér kemur.Þú rannsakar hjörtu allra,leið oss ávallt á vegu heilinda og sannleika.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Miskunnsami Guð, veit líknsamlega Kirkju þinni, sem saman er komin í Heilögum Anda, að hún þjóni þér af öllu hjarta og varðveiti heils hugar eindrægni sína. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. NEREUSAR OG ACHILLEUSAR, PÍSLARVOTTA
Vér biðjum, almáttugi Guð, veit að vér, sem vitum að hinir dýrlegu píslarvottar Nereus og Achilleus játuðu trú sína af hugrekki, megum skynja árnað þeirra hjá þér. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Skaparinn stjarna, Herra hreinn,sem hverri sálu lýsir einn,Kristur, sem allan leystir lýð,líknsamur vorum bænum hlýð.Mæddi þinn hug vor mikla neyð,með oss þín heilög elska leið,þú vildir frelsa veröld þá,er villt og sek í myrkri lá.Þú komst með dögun, Drottinn hár.Sem dimman flýr við morgunsár,eins breiddist ljós þitt bjart um heim,brosir allt líf í geisla þeim.Þú ert það orð, sem allt er fráog öllu ráða og stjórna má,það föður orð, sem flutt þá var,er fæddist ljós og stjörnurnar.Eins muntu síðast, Drottinn dýr,dæma það allt, sem með oss býr,og skapa nýjan, hreinan heim.Hjálpa þú oss á degi þeim.Himnar og jörðin hneigi þér,helja og allt, sem skapað er.Viljinn þinn góði, valdið þitt,veki og lífgi hjartað mitt. Amen.
Sálmur 126
Andstef · Hryggð yðar mun snúast í fögnuð, hallelúja.
1Þegar Drottinn sneri við hag Síonar * þá var sem oss dreymdi.
2Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna * „Mikla hluti hefur Drottinn gjört við þá.“
3Drottinn hefur gjört mikla hluti við oss * vér vorum glaðir.
4Snú við hag vorum, Drottinn * eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.
5Þeir sem sá með tárum * munu uppskera með gleðisöng.
6Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar * með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hryggð yðar mun snúast í fögnuð, hallelúja.
Sálmur 127
Andstef · Hvort sem vér lifum eða deyjum, tilheyrum vér Drottni, hallelúja.
1Ef Drottinn verndar eigi borgina * vakir vörðurinn til ónýtis.
2Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð * sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!
3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni * ávöxtur móðurkviðarins er umbun.
4Eins og örvar í hendi kappans * svo eru synir getnir í æsku.
5Sæll er sá maður, er fyllt hefur örvamæli sinn með þeim * þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hvort sem vér lifum eða deyjum, tilheyrum vér Drottni, hallelúja.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Allt er til vegna hans, fyrir hann og í honum: Dýrð sé honum að eilífu, hallelúja.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Allt er til vegna hans, fyrir hann og í honum: Dýrð sé honum að eilífu, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
1Kor 2, 9-10Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns, allt það fyrirbjó Guð þeim, er elska hann. En oss hefur Guð opinberað hana fyrir Andann, því að Andinn rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs.
Stutt svarvers
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Hann mun kenna yður allt,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Kristur mun skíra yður með Heilögum Anda og eldi, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Miskunnsami Guð, veit líknsamlega Kirkju þinni, sem saman er komin í Heilögum Anda, að hún þjóni þér af öllu hjarta og varðveiti heils hugar eindrægni sína. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 31, 2-6
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,
3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.
4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.
5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.
6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007