Laugardagur í 6. viku páskatíðar
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 18:23-28
- Davíðssálmur
- Sálmur 47:2-3, 8-9, 10
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 16:23b-28
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.
Sálmur 92
Andstef · Þú hefur glatt mig, Drottinn, og yfir handaverkum þínum fagna ég, hallelúja.
1Sálmur. Hvíldardagsljóð.
2Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu * þú Hinn hæsti,
3að kunngjöra miskunn þína að * morgni og trúfesti þína um nætur
4á tístrengjað hljóðfæri og * hörpu með strengjaleik gígjunnar.
5Þú hefur glatt mig, Drottinn * með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég.
6Hversu mikil eru verk þín * Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar.
7Fíflið eitt skilur eigi * og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.
8Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust * þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,
9en þú sem ert á hæðum * ert til að eilífu, Drottinn.
10Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá * óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.
11En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn * mig hressir þú með ferskri olíu.
12Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína * eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.
13Hinir réttlátu gróa sem pálminn * vaxa sem sedrustréð á Líbanon.
14Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins * gróa í forgörðum Guðs vors.
15Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt * þeir eru safamiklir og grænir.
16Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur * klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú hefur glatt mig, Drottinn, og yfir handaverkum þínum fagna ég, hallelúja.
Sálmur — 5M 32, 1-12 — Gæska Guðs til lýðs hans
Andstef · Ég deyði og ég lífga; ég særi og ég græði, hallelúja.
1Hlustið, þér himnar, því að nú mun ég mæla * og jörðin hlýði á mál munns míns!
2Kenning mín streymi sem regn, ræða mín drjúpi sem dögg * eins og gróðrarskúrir á grængresið og sem þungaregn á jurtirnar. Verk Guðs eru fullkomin
3Ég vil kunngjöra nafn Drottins * Gefið Guði vorum dýrðina!
4Bjargið – fullkomin eru verk hans * því að allir vegir hans eru réttlæti. Trúfastur Guð og tállaus, réttlátur og réttvís er hann.
5Synir hans eru spilltir orðnir * blettur er á þeim, rangsnúin og rammspillt kynslóð.
6Ætlið þér að launa Drottni þannig, þú heimska og óvitra þjóð? Er hann ekki faðir þinn * sá er skóp þig, sá er gjörði þig og myndaði?
7Minnstu fyrri tíða, hyggið að árum liðinna alda! Spyr föður þinn, að hann megi fræða þig * gamalmenni þín, að þau megi segja þér frá! Guð annast lýð sinn
8Þá er hinn hæsti skipti óðulum meðal þjóðanna, þá er hann greindi í sundur mannanna börn * þá skipaði hann löndum þjóðflokkanna eftir tölu Ísraels sona.
9Því að hlutskipti Drottins er lýður hans * Jakob úthlutuð arfleifð hans.
10Hann fann hann í eyðimerkurlandi og í óbyggðum, innan um öskrið á öræfunum. Hann verndaði hann * hugði að honum, hann varðveitti hann sem sjáaldur auga síns.
11Eins og örn, sem vekur upp hreiður sitt og svífur yfir ungum sínum * svo útbreiddi hann vængi sína, tók hann upp og bar hann á flugfjöðrum sínum.
12Drottinn einn leiddi hann * og enginn annar guð var með honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég deyði og ég lífga; ég særi og ég græði, hallelúja.
Sálmur 8
Andstef · Með sæmd og heiðri krýndir þú þinn Smurða, hallelúja.
1Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur.
2Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt * um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himnana.
3Af munni barna og brjóstmylkinga hefur þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum * til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.
4Þegar ég horfi á himnana, verk handa þinna * tunglið og stjörnurnar, er þú hefur skapað,
5hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans * og mannsins barn, að þú vitjir þess?
6Þú lést hann verða litlu minni en Guð * með sæmd og heiðri krýndir þú hann.
7Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum * allt lagðir þú að fótum hans:
8sauðfénað allan og uxa * og auk þess dýr merkurinnar,
9fugla loftsins og fiska hafsins * allt það er fer hafsins vegu.
10Drottinn, Guð vor * hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Með sæmd og heiðri krýndir þú þinn Smurða, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 14, 7-9Enginn af oss lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi, að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Sannarlega, sannarlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið Föðurinn um í mínu nafni, mun hann veita yður, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Kristur hefur gjört oss kunnugt lífið sem varir að eilífu. Með trú og fögnuði skulum vér hrópa upp yfir oss og segja við hann:Drottinn, megi upprisa þín færa oss ríkdóm náðar þinnar.Eilífi hirðir, lít á hjörð þína þar sem hún rís af svefni,gef oss til fæðu orð lífsins og brauðið af himni.Verndaðu oss gegn úlfum og leiguliðum,og gef oss að hlýða af trúfesti á rödd þína.Þú ert með öllum þeim sem prédika fagnaðarerindi þitt og gefur orðum þeirra kraft,gjör oss í dag prédikara upprisu þinnar með heilagleika lífs vors.Vertu vor mikli fögnuður sem enginn getur frá oss tekið,til að vér megum hafna syndinni og ólund hennar og halda til vors eilífa lífs.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn, kenndu oss að þekkja þig betur með því að gera öðrum gott. Hjálpa oss að vaxa í kærleika þínum og komast til betri skilnings á hinum eilífa leyndardómi dauða og upprisu Krists. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Mín sál, þinn söngur hljómi,þinn söng lát stíga háttfrá Herrans helgidómium Herrans tign og mátt.Hann skrúði ljóss er skrýddur,og skýin vagn er hans,og himinn hár og prýddurer höllin skaparans.Hann sól oss lætur lýsameð lífsins yl og skartog mánann milda rísa,svo myrkrið verður bjart.Um loft og lönd, í höfumbýr lífið ótalfalt,allt mettast Guðs af gjöfum,á Guð sinn vonar allt.Ó, Drottinn dýrðarinnar,þín dásöm eru verkog vottur visku þinnar.Þín veldishönd er sterk. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Ég er út genginn frá Föðurnum og kominn í heiminn. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til Föðurins, hallelúja.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég er út genginn frá Föðurnum og kominn í heiminn. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til Föðurins, hallelúja.
Sálmur 117
Andstef · Þegar Drottinn Jesús hefur talað við lærisveinana, var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði, hallelúja.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þegar Drottinn Jesús hefur talað við lærisveinana, var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði, hallelúja.
Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs
Andstef · Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn, sem er á himnum, hallelúja.
17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.
18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.
10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.
11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.
12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn, sem er á himnum, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Ef 2, 4-6Guð er auðugur að miskunn. Af mikilli elsku sinni, sem hann gaf oss, hefur hann endurlífgað oss með Kristi, þegar vér vorum dauðir vegna misgjörða vorra. Af náð eruð þér hólpnir orðnir. Guð hefur uppvakið oss í Kristi Jesú og búið oss stað í himinhæðum með honum.
Stutt svarvers
Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, * hallelúja, hallelúja.
Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, * hallelúja, hallelúja.
Með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Faðir, ég hef opinberað nafn þitt þeim mönnum, sem þú gafst mér. Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum, því að ég kem til þín, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi Guð, veit oss að gleðjast heilagri gleði og fagna með frómri þakkargjörð, því að uppstigning Krists, Sonar þíns, er einnig upphafning vor. Þar sem höfuðið er farið á undan í dýrð sinni, þar liggur einnig von líkamans. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007