Dagatal

Miðvikudagur í 6. viku páskatíðar

Virkur dagur á páskatíð.

Páskatíð · Vika 6

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.

Sálmur 77

Andstef · Vötnin sáu þig, ó Guð; þú leiddir lýð þinn yfir um hafið, hallelúja.

1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs–sálmur.

2Ég kalla til Guðs og hrópa * kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.

3Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins * rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi.

4Ég minnist Guðs og kveina * ég styn, og andi minn örmagnast. [Sela]

5Þú heldur uppi augnalokum mínum * mér er órótt og ég má eigi mæla.

6Ég í huga fyrri daga * ár þau sem löngu eru liðin,

7ég minnist strengjaleiks míns um nætur * ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar.

8Mun Drottinn þá útskúfa um * eilífð og aldrei framar vera náðugur?

9Er miskunn hans lokið um eilífð * fyrirheit hans þrotin um aldir alda?

10Hefur Guð gleymt að sýna líkn * byrgt miskunn sína með reiði? [Sela]

11Þá sagði ég: „Þetta er kvöl mín * að hægri hönd Hins hæsta hefur brugðist.“

12Ég víðfrægi stórvirki Drottins * ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum,

13ég íhuga allar athafnir þínar * athuga stórvirki þín.

14Guð, helgur er vegur þinn * hver er svo mikill Guð sem Drottinn?

15Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir * þú hefur kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna.

16Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn * sonu Jakobs og Jósefs. [Sela]

17Vötnin sáu þig, ó Guð * vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu.

18Vatnið streymdi úr skýjunum * þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu.

19Reiðarþrumur þínar kváðu við * leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.

20Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn * og spor þín urðu eigi rakin.

21Þú leiddir lýð þinn eins * og hjörð fyrir Móse og Aron.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vötnin sáu þig, ó Guð; þú leiddir lýð þinn yfir um hafið, hallelúja.

Sálmur — 1 S 2, 1-10 — Hinn fátæki gleðst í Drottni

Andstef · Drottinn deyðir og lífgar, hallelúja.

1Hanna gjörði bæn sína og mælti: Hjarta mitt fagnar í Drottni * horn mitt er hátt upp hafið fyrir fulltingi Drottins. Munnur minn er upp lokinn gegn óvinum mínum, því að ég gleðst yfir þinni hjálp.

2Enginn er heilagur sem Drottinn, því að enginn er til nema þú * ekkert bjarg er til sem vor Guð.

3Mælið eigi án afláts drambyrði, ósvífni komi eigi út af munni yðar. Því að Drottinn er Guð * sem allt veit, og af honum eru verkin vegin.

4Bogi kappanna er sundur brotinn * en máttfarnir menn gyrðast styrkleika.

5Mettir leigja sig fyrir brauð, en hungraðir njóta hvíldar. Óbyrjan fæðir jafnvel sjö * en margra barna móðirin mornar og þornar.

6Drottinn deyðir og lífgar * færir til Heljar niður og leiðir upp þaðan.

7Drottinn gjörir fátækan og ríkan * niðurlægir og upphefur.

8Hann reisir hinn lítilmótlega úr duftinu, lyftir hinum snauða upp úr skarninu * leiðir þá til sætis hjá þjóðhöfðingjum og setur þá á tignarstól. Því að Drottinn heyra stólpar jarðarinnar, á þá setti hann jarðríkið.

9Fætur sinna guðhræddu varðveitir hann, en hinir guðlausu farast í myrkri * því að fyrir eigin mátt sigrar enginn.

10Þeir sem berjast móti Drottni, verða sundur molaðir * hann lætur þrumur af himni koma yfir þá. Drottinn dæmir endimörk jarðarinnar. Hann veitir kraft konungi sínum og lyftir upp horni síns smurða.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn deyðir og lífgar, hallelúja.

Sálmur 97

Andstef · Ljós rennur upp réttlátum, og gleði hjartahreinum, hallelúja.

1Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni * eyjafjöldinn gleðjist.

2Ský og sorti eru umhverfis hann * réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans,

3eldur fer fyrir honum * og bálast umhverfis spor hans.

4Leiftur hans lýsa um jarðríki * jörðin sér það og nötrar.

5Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni * fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.

6Himnarnir kunngjöra réttlæti hans * og allar þjóðir sjá dýrð hans.

7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar * þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum.

8Síon heyrir það og gleðst * Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn.

9Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni * þú ert hátt hafinn yfir alla guði.

10Drottinn elskar þá er hata hið illa * hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.

11Ljós rennur upp * réttlátum og gleði hjartahreinum.

12Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni * vegsamið hans heilaga nafn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ljós rennur upp réttlátum, og gleði hjartahreinum, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Rm 6, 8-11Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með honum lifa. Vér vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. Með dauða sínum dó hann syndinni í eitt skipti fyrir öll, en með lífi sínu lifir hann Guði. Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa vera dauða syndinni, en lifandi Guði í Kristi Jesú.

Stutt svarvers

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Enn hef ég margt að segja yður, en þér getið ekki borið það nú. En þegar hann kemur, Andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikan, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Með gjöf Föðurins fengu postularnir að sjá Krist upprisinn. Biðjum til Föðurins og segjum:Gef oss, Drottinn, dýrð Sonar þíns.Faðir ljósanna, í dag berum vér fram fyrir þig þakkir vorar og lof fyrir að kalla oss til þíns undursamlega ljóss,til að meðtaka miskunn þína.Megi viðleitni mannanna að gera heiminn mannlegri,hreinsast og styrkjast með krafti Anda þíns.Megum vér helga oss þjónustu við aðra að slíku marki,að öll fjölskylda mannkynsins megi vera þóknanleg fórn þér til heiðurs.Fyll oss miskunn þinni við dögun nýs dags,til að dagurinn allur megi vera dagur gleði og lofs.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum þig, Drottinn, heyr þú bænir vorar, svo að vér verðskuldum að fagna í hópi hinna heilögu við endurkomu Sonar þíns, eins og vér minnumst nú hátíðlega á táknrænan hátt upprisu hans. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 62

Andstef · Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á mig, hallelúja.

1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur.

2Bíð róleg eftir Guði, sála mín * frá honum kemur hjálpræði mitt.

3Hann einn er klettur minn og hjálpræði * háborg mín – ég verð eigi valtur á fótum.

4Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni * til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?

5Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans * þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela]

6Bíð róleg eftir Guði, sála mín * því að frá honum kemur von mín.

7Hann einn er klettur minn og hjálpræði * háborg mín – ég verð eigi valtur á fótum.

8Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd * minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.

9Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum * Guð er vort hæli. [Sela]

10Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn * á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.

11Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna * þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.

12Eitt sinn hefur Guð talað * tvisvar hefi ég heyrt það: „Hjá Guði er styrkleikur.“

13Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn * því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á mig, hallelúja.

Sálmur 67

Andstef · Lát þjóðirnar lofa þig, Guð; lát þær fagna í hjálpræði þínu, hallelúja.

1Til söngstjórans. Með * strengjaleik. Sálmur. Ljóð.

2Guð sé oss náðugur og blessi oss * hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]

3svo að þekkja megi veg þinn á * jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.

4Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð * þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

5Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar * því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]

6Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð * þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

7Jörðin hefur gefið ávöxt sinn * Guð, vor Guð, blessar oss.

8Guð blessi oss * svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lát þjóðirnar lofa þig, Guð; lát þær fagna í hjálpræði þínu, hallelúja.

Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum

Andstef · Dýrð hans hylur himnanna og vegsemd hans fyllir jörðina, hallelúja.

12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.

13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.

14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.

15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.

16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.

17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.

18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.

19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa

20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Dýrð hans hylur himnanna og vegsemd hans fyllir jörðina, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Heb 7, 24-27Jesús er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti. Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir Guð, þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim. Slíks æðsta prests höfðum vér þörf, sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri. Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gjörði hann í eitt skipti fyrir öll, er hann fórnfærði sjálfum sér.

Stutt svarvers

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Andi sannleikans mun gjöra mig dýrlegan, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum þig, Drottinn, heyr þú bænir vorar, svo að vér verðskuldum að fagna í hópi hinna heilögu við endurkomu Sonar þíns, eins og vér minnumst nú hátíðlega á táknrænan hátt upprisu hans. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 31, 2-6

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,

3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.

4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.

5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.

6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007