Laugardagur í 5. viku páskatíðar
Virkur dagur á páskatíð.
Páskatíð · Vika 5Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Einnig í dag
Jósef verkamaður
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 16:1-10
- Davíðssálmur
- Sálmur 100:1b-2, 3, 5
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 15:18-21
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.
Sálmur 119, 145-152
Andstef · Lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum, hallelúja.
145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.
146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.
147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.
148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.
149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.
152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum, hallelúja.
Sálmur — 2M 15, 1-4a. 8-13. 17-18 — Sigursöngur eftir gönguna gegnum Rauðahaf
Andstef · Þeir sem unnið höfðu sigur sungu söng Móse, Guðs þjóns, og söng Lambsins, hallelúja.
1Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottins þennan lofsöng: Ég vil lofsyngja Drottni * því að hann hefur sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.
2Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er minn Guð * og ég vil vegsama hann, Guð föður míns, og ég vil tigna hann.
3Drottinn er stríðshetja * Drottinn er hans nafn.
4Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið * og hinir völdustu kappar hans drukknuðu í Hafinu rauða.
8Og fyrir blæstri nasa þinna hlóðust vötnin upp * rastirnar stóðu eins og veggur, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.
9Óvinurinn sagði: „Ég skal elta þá, ég skal ná þeim, ég skal skipta herfangi * sál mín skal skeyta skapi sínu á þeim, ég skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.“
10Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá * þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.
11Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú * dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?
12Þú útréttir þína hægri hönd * jörðin svalg þá.
13Þú hefur leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni * þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.
17Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú * Drottinn, hefur gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.
18Drottinn skal ríkja um * aldur og að eilífu!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þeir sem unnið höfðu sigur sungu söng Móse, Guðs þjóns, og söng Lambsins, hallelúja.
Sálmur 117
Andstef · Staðföst og óbifanleg er elska hans til vor, hallelúja.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Staðföst og óbifanleg er elska hans til vor, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 14, 7-9Enginn af oss lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi, að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Kristur dó og reis upp frá dauðum til að verða Drottinn bæði yfir dauðum og lifandi, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Kristur er brauð lífsins, hann mun reisa upp á efsta degi alla sem hlut eiga í borði orðs hans og líkama. Biðjum í fögnuði:Drottinn, gef oss frið og fögnuð.Sonur Guðs, þú varst reistur upp frá dauðum til að leiða oss til lífsins,blessa og helga öll börn Föður þíns.Þú gefur frið og fögnuð öllum þeim sem trúa á þig,veit að vér megum ganga sem börn ljóssins, fagnandi í sigri þínum.Byggðu upp trú líðandi Kirkju þinnar á jörðu,til að hún megi bera upprisu þinni vitni frammi fyrir öllum heiminum.Þú leiðst píslir og gekkst þannig inn til dýrðar Föðurins,breyttu tárum hinna sorgmæddu í fögnuð.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi, eilífi Guð, þú vildir með endurfæðingu í skírninni gefa oss himneskt líf. Vér biðjum þig, að þeir, sem þú hefur réttlætt og gert hæfa til ódauðleika, megi ná til fullrar dýrðar undir forystu þinni. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · Sjötti á páskatíð Sunnudagur
Guð, skapari allra hluta, þú settir mannkyni lögmál vinnunnar. Veit líknsamlega að fyrir fulltingi og fordæmi hins sæla Jósefs fullvinnum vér þau verk sem þú felur oss og njótum þeirra launa sem þú heitir. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Nú vil eg enn í nafni þínu,náðugi Guð sem léttir pínu,mér að minni hvílu hallaog heiðra þig fyrir gæsku allaþáða af þér á þessum degi,því er skylt eg gleymi eigi.En það má eg aumur játa,angri vafinn sýta og gráta,móðgað hef eg margfaldlegamildi þína guðdómlega.Útslétt mínar syndir svartar,sundurkramið lækna hjarta.Þá mun ásókn illra andaei hið minnsta kunna að granda.Lát mig þenkja á þessu kvöldiþað eg lifi i veiku holdi,brothætt gler og bólan þunnabrotna senn og hjaðna kunna.Þú einn, Guð, skalt þar um ráðaþínar kný eg á dyr náðaraf míns hjarta innsta grunniandvarpa og bið með munni.Þegar eg skal seinast sofnasál viðskilur, fjörið dofnar,hjartans faðir, í hendur þínarhverfa lát þá öndu mína.Hold í jörðu hægt lát blundahelgra svo þar bíði fundaog upprisinn að eg víkiinn með þér í himnaríki.Þar mun eg þúsund þakkir færa,þér sé lofgjörð, prís og æra. Amen.
Sálmur 119, 105-112
Andstef · Sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, hallelúja.
105Þitt orð er lampi fóta * minna og ljós á vegum mínum.
106Ég hefi svarið og haldið * það að varðveita þín réttlátu ákvæði.
107Ég er mjög beygður, Drottinn * lát mig lífi halda eftir orði þínu.
108Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns * Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.
109Sál mín er ætíð í hættu * en þínu lögmáli hefi ég eigi gleymt.
110Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig * en ég hefi eigi villst frá fyrirmælum þínum.
111Reglur þínar eru eign mín um aldur * því að þær eru yndi hjarta míns.
112Ég hneigi hjarta mitt að því að breyta eftir lögum þínum * um aldur og allt til enda.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, hallelúja.
Sálmur 16
Andstef · Guð frelsaði Jesúm undan harmkvölum dauðans og reisti hann upp til lífsins, hallelúja.
1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.
2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“
3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.
4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.
5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.
6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.
7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.
8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.
9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,
10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.
11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guð frelsaði Jesúm undan harmkvölum dauðans og reisti hann upp til lífsins, hallelúja.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga svo inn i dýrð sína? Hallelúja.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga svo inn i dýrð sína? Hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
1Pt 2, 9-10Þér eruð útvalin kynslóð, konunglegt prestafélag, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þér skuluð víðfrægja dáðir hans, sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss. Þér sem áður voruð ekki lýður eruð nú orðnir Guðs lýður. Þér, sem ekki nutuð miskunnar, hafið nú miskunn hlotið.
Stutt svarvers
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Ég hef elskað yður eins og Faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðugir í elsku minni, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi Guð, lát oss fagna af einlægum ákafa þessum gleðidögum sem vér höldum til heiðurs hinum upprisna Drottni, svo að vér fylgjum ávallt í verki því sem vér minnumst. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · Sjötti á páskatíð Sunnudagur
Almáttugi Guð, lát oss fagna af einlægum ákafa þessum gleðidögum sem vér höldum til heiðurs hinum upprisna Drottni, svo að vér fylgjum ávallt í verki því sem vér minnumst. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007