Dagatal

Föstudagur í 3. viku páskatíðar

Virkur dagur á páskatíð.

Páskatíð · Vika 3

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.

Sálmur 51

Andstef · Drottinn, þvo mig hreinan af misgjörð minni, hallelúja.

1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,

2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,

5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.

8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.

11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.

13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,

15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.

16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!

21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, þvo mig hreinan af misgjörð minni, hallelúja.

Sálmur — Jer 14, 17-21 — Harmaljóð þjóðarinnar á tímum hungurs og styrjalda

Andstef · Kristur bar syndir vorar á líkama sínum þar sem hann hékk á krossinum, hallelúja.

17Þú skalt tala til þeirra þessi orð: Augu mín skulu fljóta í tárum nótt og dag * og tárin eigi stöðvast, því að mærin, dóttir þjóðar minnar, hefur orðið fyrir ógurlegu áfalli, hefur særð verið al–ólæknandi sári.

18Gangi ég út á völlinn, þá liggja þar þeir, er fallið hafa fyrir sverði, og gangi ég inn í borgina * þá sé ég þar menn dána úr hungri. Já, spámenn og prestar fara um landið og bera ekki kennsl á það.

19Hefir þú þá hafnað Júda algjörlega, eða er sál þín orðin leið á Síon? Hví hefur þú lostið oss svo * að vér verðum eigi læknaðir? Menn vænta hamingju, en ekkert gott kemur, vænta lækningartíma, og sjá, skelfing!

20Vér þekkjum, Drottinn, yfirsjón vora, misgjörð feðra vorra * að vér höfum syndgað gegn þér.

21Fyrirlít eigi, vegna nafns þíns, – óvirð eigi hásæti dýrðar þinnar * minnstu sáttmála þíns við oss og rjúf hann eigi.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kristur bar syndir vorar á líkama sínum þar sem hann hékk á krossinum, hallelúja.

Sálmur 100

Andstef · Komið fyrir auglit Drottins með fagnaðarsöng, hallelúja!

1Öll veröldin fagni fyrir Drottni!

2Þjónið Drottni með gleði * komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng!

3Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss * og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð.

4Gangið inn um hlið hans með lofsöng * í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.

5Því að Drottinn er góður * miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Komið fyrir auglit Drottins með fagnaðarsöng, hallelúja!

Stuttur ritningarlestur

P 5, 30-32Guð feðra vorra hefur upp vakið Jesú, sem þér hengduð á tré og tókuð af lífi. Hann hefur Guð hafið sér til hægri handar og gjört hann að foringja og frelsara til að veita Ísrael afturhvarf og fyrirgefningu synda sinna. Vér erum vottar alls þessa, og Heilagur Andi, sem Guð hefur gefið þeim, er honum hlýða.

Stutt svarvers

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Biðjum til Guðs Föður sem gaf oss nýtt líf fyrir hinn upprisna Krist:Gef oss dýrð Sonar þíns.Drottinn Guð vor, mikil verk þín hafa opinberað eilífa fyrirætlun þína: Þú skapaðir heiminn og ert trúfastur á öllum öldum,Faðir miskunnar, bænheyr þú oss.Hreinsa hjörtu vor með sannleika þínum og leiddu þau á vegu heilagleikans,til að vér megum gjöra það sem þér er velþóknanlegt.Lát ásjónu þína skína yfir oss,til að vér megum vera laus við synd og fyllt gnægð þinni.Þú gafst postulunum frið Krists,gef lýð þínum frið og heiminum öllum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, vér höfum kynnst upprisunáð Drottins. Vér biðjum þig, mættum vér fyrir kærleik Andans rísa upp til nýs lífs. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 135 I

Andstef · Ég, Drottinn, er frelsari þinn og lausnari, hallelúja.

1Hallelúja. Lofið nafn Drottins * lofið hann, þér þjónar Drottni,

2er standið í húsi Drottins * í forgörðum húss Guðs vors.

3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður * leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.

4Því að Drottinn hefur útvalið sér Jakob * gert Ísrael að eign sinni.

5Já, ég veit * að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.

6Allt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann * á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.

7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar * gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.

8Hann laust frumburði Egyptalands * bæði menn og skepnur,

9sendi tákn og undur yfir Egyptaland * gegn Faraó og öllum þjónum hans.

10Hann laust margar þjóðir * og deyddi volduga konunga:

11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan * og öll konungsríki í Kanaan,

12og gaf lönd þeirra að erfð * að erfð Ísrael, lýð sínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég, Drottinn, er frelsari þinn og lausnari, hallelúja.

Sálmur 135 II

Andstef · Blessað sé ríki föður vors Davíðs, sem er komið meðal vor, hallelúja.

13Drottinn, nafn þitt varir að eilífu * minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,

14því að Drottinn réttir hlut þjóðar * sinnar og aumkast yfir þjóna sína.

15Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull * handaverk manna.

16Þau hafa munn, en tala ekki * augu, en sjá ekki,

17þau hafa eyru, en heyra ekki * og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.

18Eins og þau eru, verða smiðir þeirra * allir þeir, er á þau treysta.

19Ísraels ætt, lofið Drottin * Arons ætt, lofið Drottin!

20Leví ætt, lofið Drottin * þér sem óttist Drottin, lofið Drottin!

21Lofaður sé Drottinn frá Síon * hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Blessað sé ríki föður vors Davíðs, sem er komið meðal vor, hallelúja.

Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni

Andstef · Lofsyngjum Drottni því að hann er dýrlegur í sigri sínum, hallelúja.

3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.

4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni því að hann er dýrlegur í sigri sínum, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Heb 5, 8-10Þótt Kristur væri Sonur, lærði hann hlýðni af því, sem hann leið. Þegar hann var orðinn fullkominn, gjörðist hann öllum þeim, er honum hlýða, höfundur eilífs hjálpræðis, af Guði nefndur æðsti prestur að hætti Melkísedeks.

Stutt svarvers

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Drottinn vor krossfestur og upprisinn hefur endurleyst oss, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, vér höfum kynnst upprisunáð Drottins. Vér biðjum þig, mættum vér fyrir kærleik Andans rísa upp til nýs lífs. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 88

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

1Syngist með Makalat–lagi. Hemans–maskíl Esraíta.

2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga * um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

3Lát bæn mína koma fyrir þig * hneig eyra að hrópi mínu,

4því að sál mín er mett orðin af böli * og líf mitt nálægist Hel.

5Ég er talinn með þeim * sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.

6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni * er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.

7Þú hefur lagt mig í gryfju undirheima * í myrkrið niðri í djúpinu.

8Reiði þín hvílir á mér * og alla boða þína hefur þú látið skella á mér. [Sela]

9Þú hefur fjarlægt frá mér kunningja mína * gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,

10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig * Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.

11Gjörir þú furðuverk vegna látinna * eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela]

12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni * frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?

13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu * eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?

14En ég hrópa til þín, Drottinn * og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni * hylur auglit þitt fyrir mér?

16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku * ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.

17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig * ógnir þínar eyða mér.

18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn * lykja um mig allar saman.

19Þú hefur fjarlægt frá mér ástvini og * félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Jer 14, 9Þú ert mitt á meðal vor, Drottinn, og vér erum nefndir eftir nafni þínu. Yfirgef oss eigi!

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Almáttugi Guð, veit oss náð til að sameinast eingetnum Syni þínum, sem þoldi dauða og gröf, svo að vér fáum risið upp til nýs lífs ásamt honum, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007