Mánudagur í 1. viku langaföstu
Virkur dagur á lönguföstu.
Langafasta · Vika 1Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 3. Mósebók 19:1-2, 11-18
- Davíðssálmur
- Sálmur 19:8, 9, 10, 15
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 25:31-46
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, Jesús, líkn og lífið mitt,þú lífið gafst í dauða þitt,til þess að deyða dauða minn,í deyð til lífs því geng ég inn.Þú gráta hlaust, svo gleddist ég,þú gekkst hinn þunga kvalaveg,svo ævi minnar efsta leiðmér yrði heimför sæl og greið.Þú krónu þyrna krýndur varst,af kærleiks nægð þú hana barst,svo djásn ég megi dýrlegt fá,ó, Drottinn minn, þér sjálfum hjá.Þú barst þinn eiginn kvalakross,frá kvölum þegar leystir oss,svo krossburð minn í heimi hérþví hægri létir verða mér.Með hverju get ég þakkað þér?Við þig um allt í skuld ég er.Þú gafst mér lífið góða þitt,ég gef þér hjartað veika mitt. Amen.
Sálmur 5, 2-10. 12-13
Andstef · Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig.
2Heyr orð mín, Drottinn * gef gaum að andvörpum mínum.
3Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn * því að til þín bið ég.
4Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína * á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.
5Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki * hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
6Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér * þú hatar alla er illt gjöra.
7Þú tortímir þeim, sem lygar mæla * á blóðvörgum og svikurum hefur Drottinn andstyggð.
8En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína * fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.
9Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna * gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
10Einlægni er ekki til í munni þeirra * hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.
12Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu * því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.
13Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta * hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig.
Sálmur — 1 Kro 29, 10b-13 — Guði einum sé heiður og dýrð
Andstef · Guð vor, vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.
10Þá lofaði Davíð Drottins, að öllum söfnuðinum ásjáanda, og Davíð mælti * „Lofaður sért þú, Drottinn, Guð Ísraels, forföður vors, frá eilífð til eilífðar.
11Þín, Drottinn, er tignin, mátturinn og dýrðin, vegsemdin og hátignin, því að allt er þitt * á himni og jörðu. Þinn er konungdómurinn, Drottinn, og sá, er gnæfir yfir alla sem höfðingi.
12Auðlegðin og heiðurinn koma frá þér; þú drottnar yfir öllu, máttur og megin er í hendi þinni * og á þínu valdi er það, að gjöra hvern sem vera skal mikinn og máttugan.
13Og nú, Guð vor * vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guð vor, vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.
Sálmur 29
Andstef · Tilbiðjið Drottin í heilögum bústað hans.
1Tjáið Drottni vegsemd, þér synir hins almáttuga * tjáið Drottni vegsemd og vald.
2Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir * fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða.
3Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja * Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum.
4Raust Drottins hljómar með krafti * raust Drottins hljómar með tign.
5Raust Drottins brýtur sundur sedrustré * Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon.
6Hann lætur Líbanonfjöll hoppa eins og * kálfa og Hermonfjall eins og ungan vísund.
7Raust Drottins klýfur eldsloga.
8Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa * Drottinn lætur Kadeseyðimörk skjálfa.
9Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann og gjörir skógana nakta * og allt í helgidómi hans segir: Dýrð!
10Drottinn situr í hásæti uppi yfir flóðinu * Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu.
11Drottinn veitir lýð sínum styrkleik * Drottinn blessar lýð sinn með friði.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Tilbiðjið Drottin í heilögum bústað hans.
Stuttur ritningarlestur
2M 19, 4-6aÞér hafið sjálfir séð, hvað ég hefi gjört Egyptum, og hversu ég hefi borið yður á arnarvængjum og flutt yður til mín. Nú ef þér hlýðið minni röddu grandgæfilega og haldið minn sáttmála, þá skuluð þér vera mín eiginleg eign umfram allar þjóðir, því að öll jörðin er mín. Og þér skuluð vera mér prestaríki og heilagur lýður.
Stutt svarvers
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Og frá illum tíðindum.
Úr snöru fuglarans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Komið þér, hinir blessuðu Föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Lof sé Jesú, Frelsara vorum; með dauða sínum opnaði hann oss leiðina til hjálpræðis. Vér skulum biðja hann:Drottinn, leið lýð þinn til að ganga á þínum vegum.Guð miskunnarinnar, þú gafst oss nýtt líf með skírninni,gef oss að vaxa á hverjum degi til að vera lík þér.Megi örlæti vort í dag færa þeim fögnuð sem þurfandi eru,megum vér finna þig með aðstoð vorri við þá.Hjálpa oss að gera það sem er gott, rétt og satt í þínum augum,og að leita ávallt þín með óskiptu hjarta.Fyrirgef oss syndir vorar gegn einingu fjölskyldu þinnar,gjör oss eitt í hjarta og anda.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Snú oss, Guð, hjálpræði vort, og uppfræð hugi vora með himneskum lærdómi, svo að iðja föstunnar gagnist oss. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Jesús Kristur, lífsins ljómi,leysti oss frá sekt og dómi,þoldi háðung, þraut og kross,það var gjaldið hans til lausnar oss.Að vér sjá og muna megummiskunn þá og líf hans eigum,býr hann oss sitt borð og erbrauði úr og kaleik sjálfur hér.Komum til hans, krjúpum niður,Kristur er vort líf og friður,alla kallar elskan hans,athvarf, líkn og frelsi syndugs manns.Lofum hann, sem heiminn leysti,hjartað játi, elski, treystiföðurnáð, sem frelsar ossfyrir Jesú heilagt blóð og kross.Kristur mettar, Kristur svalar,kærleiksríkur við oss talar,hverjum þeim, sem byrði ber,býður hann að þiggja frið hjá sér. Amen.
Sálmur 11
Andstef · Augu Drottins líta með mildi á hina fátæku.
1Hvernig getið þér sagt við sál mína * „Fljúg sem fugl til fjallanna!“
2Því að nú benda hinir óguðlegu bogann * leggja örvar sínar á streng til þess að skjóta í myrkrinu á hina hjartahreinu.
3Þegar stoðirnar eru rifnar niður * hvað megna þá hinir réttlátu?
4Drottinn er í sínu heilaga musteri, hásæti Drottins er á himnum * augu hans sjá, sjónir hans rannsaka mennina.
5Drottinn rannsakar hinn réttláta og hinn óguðlega * og þann er elskar ofríki, hatar sál hans.
6Á óguðlega lætur hann rigna glóandi kolum * eldur og brennisteinn og brennheitur vindur er þeirra mældi bikar.
7Því að Drottinn er réttlátur og hefur mætur * á réttlætisverkum. Hinir hreinskilnu fá að líta auglit hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Augu Drottins líta með mildi á hina fátæku.
Sálmur 15
Andstef · Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
1Davíðssálmur Drottins, hver fær að gista í tjaldi þínu * hver fær að búa á fjallinu þínu helga?
2Sá er fram gengur í flekkleysi og * iðkar réttlæti og talar sannleik af hjarta,
3sá er eigi talar róg með tungu sinni * eigi gjörir öðrum mein og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;
4sem fyrirlítur þá er illa breyta, en heiðrar þá er óttast Drottin * sá er sver sér í mein og bregður eigi af,
5sá er eigi lánar fé sitt með okri og eigi þiggur mútur gegn saklausum * sá er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Í Syni sínum kaus Guð oss, sem börn sín.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Í Syni sínum kaus Guð oss, sem börn sín.
Stuttur ritningarlestur
Rm 12, 1-2Ég brýni yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi. Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.
Stutt svarvers
Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.
Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.
Lækna sál mína, því að ég hef syndgað gegn þér.
Miskunna þú mér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Allt það, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér, segir Jesús.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Snú oss, Guð, hjálpræði vort, og uppfræð hugi vora með himneskum lærdómi, svo að iðja föstunnar gagnist oss. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 86
Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.
1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.
2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.
4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!
11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,
13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.
14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007