Miðvikudagur í 1. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 1Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Einnig í dag
Hílaríus frá Poitiers biskup og kirkjufræðari
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Hebreabréfið 2:14-18
- Davíðssálmur
- Sálmur 105:1-2, 3-4, 6-7, 8-9
- Guðspjall
- Markúsarguðspjall 1:29-39
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Minn Herra Jesús, hvert fer þú?ei hryggur þarf ég spyrja nú,ég veit þú fórst til föður heimog fagna nú af boðskap þeim.En hins má spyrja: Hvert fer þú,sem heyrir raust þíns Drottins nú?Hvort ferðast þú á ferli þeim,til föður þíns er liggur heim?Ó, hvert fer þú, mitt barnið blítt,er brosir nú svo milt og hlýtt?Ó, Guð veit, hvar þín liggur leið,hann leiði þig um æviskeið.Og hvert fer þú, sem hraðar þérog hart í lífsins kappleik fer?Ó, keppstu hnoss að höndla það,er himins dyrum leiðir að.Og hvert fer þú, sem langa leiðum lífsins hefur runnið skeið?Ef röngum vegi ertu á,tak aðra betri stefnu þá.Þú maður, hvert sem hér þú fer,Guðs helgur andi fylgi þér,og hvar sem liggur leiðin þín,þig leiði Drottinn heim til sín. Amen.
Sálmur 36
Andstef · Guð, í þínu ljósi sjáum vér ljós.
1Til söngstjórans. Eftir Davíð * þjón Drottins.
2Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans * enginn guðsótti býr í huga hans.
3Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og * misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.
4Orðin af munni hans eru tál og svik * hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.
5Í hvílu sinni hyggur hann á tál * hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.
6Drottinn, til himna nær miskunn þín * til skýjanna trúfesti þín.
7Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs * dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.
8Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð * mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.
9Þau seðjast af feiti húss þíns * og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.
10Hjá þér er uppspretta lífsins * í þínu ljósi sjáum vér ljós.
11Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig * og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.
12Lát eigi fót hins hrokafulla troða á * mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.
13Þar eru illgjörðamennirnir fallnir * þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guð, í þínu ljósi sjáum vér ljós.
Sálmur — Jdt 16, 1-2. 13-15 — Drottinn, skapari heimsins, verndar þjóð sína
Andstef · Drottinn, mikill ert þú, og dýrlegur í mætti þínum.
1Þá söng Júdít þennan * lofsöng Drottni og sagði:
2„Hefjið upp fyrir Drottni með bumbum, syngið Drottni með skálabumbum * stillið honum nýjan sálm, hefjið hann og ákallið nafn hans.
13Þá kveinuðu herbúðir Assýringa * er hinir lágu mínir komu fram, þjakaðir af þorsta.
14Synir meyjanna lögðu þá í gegn og drápu þá eins og börn á flótta * þeir fórust í orustu frammi fyrir ásjónu Drottins, Guðs míns.
15Syngjum Drottni lofsöng * syngjum Guði vorum nýjan lofsöng.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, mikill ert þú, og dýrlegur í mætti þínum.
Sálmur 47
Andstef · Fagnið fyrir Guði með gleðiópi.
1Til söngstjórans. Kóraítasálmur.
2Klappið saman lófum, allar þjóðir * fagnið fyrir Guði með gleðiópi.
3Því að Drottinn, Hinn hæsti * er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.
4Hann leggur undir oss lýði * og þjóðir fyrir fætur vora.
5Hann útvaldi handa oss óðal vort * fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. [Sela]
6Guð er upp stiginn með fagnaðarópi * með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.
7Syngið Guði, syngið * syngið konungi vorum, syngið!
8Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni * syngið Guði lofsöng!
9Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum * Guð er sestur í sitt heilaga hásæti.
10Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar * hann er mjög hátt upphafinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Fagnið fyrir Guði með gleðiópi.
Stuttur ritningarlestur
Tb 4, 15a. 16. 18-19Gerðu engum það sem kæmi illa við þig sjálfan. Miðla hungruðum af brauði þínu og nöktum af klæðum þínum. Gefðu allt sem þú getur án verið, barnið mitt, og horfðu ekki á eftir gjöfum þínum með eftirsjá. Leitaðu ráða hjá vitrum mönnum og teldu þig ekki yfir það hafinn að þiggja nytsöm ráð. Þú skalt ávallt lofa Guð og biðja hann að greiða götu þína og láta allar gjörðir þínar og áform heppnast.
Stutt svarvers
Beyg hjarta mitt, Guð, * að reglum þínum.
Beyg hjarta mitt, Guð, * að reglum þínum.
Lífga mig á vegum þínum.
Að reglum þínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Beyg hjarta mitt, Guð, * að reglum þínum.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Auðsýn oss miskunn, Drottinn, og minnstu þíns heilaga sáttmála.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Vér færum Kristi ávallt lof og þakkir því hann fyrirvarði sig ekki fyrir að kalla oss systkin sín og helga oss. Áköllum hann og segjum:Helga systkin þín, Drottinn.Gef að vér minnumst upprisu þinnar við upphaf þessa dags og helgum þér hjörtu vor,og verjum öllum deginum til þér þóknanlegra starfa.Þú gefur oss nýjan dag, sem tákn um kærleika þinn,endurnýja oss til dýrðar þinnar.Kenn oss í dag að þekkja þig í öllum mönnum,einkum í þeim er þjást.Gef oss að halda frið við alla í dag,og gjalda engum illt með illu.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, hjálpræði vort, heyr oss og gjör oss að vottum ljóss þíns og sannleika, svo að vér sem erum fædd þér sem börn ljóssins, verðskuldum að bera þér vitni frammi fyrir öllum mönnum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. HILARÍUSAR, BISKUPS OG KIRKJUFRÆÐARA
Vér biðjum, almáttugi Guð, lát oss megna að skilja réttum skilningi guðdóm Sonar þíns, sem hinn sæli biskup Hilaríus áréttaði stöðugt, og játast honum í sannleika. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ég vil í Drottni sofna sætt,samviskustríðið allt er bætt,dauðahaldi ég Drottin þríf,dýrstur gef þú mér eilíft líf.Kveð ég í Guði góðan lýð,gleðilegar þeim nætur býð,þakkandi öllum þeirra styrk,þjónustu, hjálp og kærleiksverk.Ástkæra þá, ég eftir skil,afhenda sjálfum Guði vil,andvarpið sér hann sárt og heitt,segja þarf honum ekki neitt.Lúinn anda ég legg nú af,lífinu ráði sá sem gaf,í sárum Jesú mig sætt innvef,sálu mína ég Guði gef.Láttu mig, Drottinn, lofa þig,með lofi þínu hvíla mig,ljósið í þínu ljósi sjá,lofa þig strax sem vakna má. Amen.
Sálmur 27 I
Andstef · Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast?
1Drottinn er ljós mitt og fulltingi * hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?
2Þegar illvirkjarnir nálgast mig til þess að fella mig * þá verða það andstæðingar mínir og óvinir, sem hrasa og falla.
3Þegar her sest um mig, óttast hjarta mitt eigi * þegar ófriður hefst í gegn mér, er ég samt öruggur.
4Eins hefi ég beðið Drottinn, það eitt þrái ég * Að ég fái að dveljast í húsi Drottins alla ævidaga mína til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.
5Því að hann geymir mig í skjóli á óheilladeginum * hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett.
6Þess vegna hefst upp höfuð mitt yfir óvini mína umhverfis mig * að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast?
Sálmur 27 II
Andstef · Ég leita ásjónu þinnar, Drottinn: Hyl eigi auglit þitt fyrir mér.
7Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt * sýn mér miskunn og svara mér!
8Mér er hugsað til þín, er sagðir * „Leitið auglitis míns!“ Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn.
9Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefur verið fulltingi mitt * hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.
10Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig * tekur Drottinn mig að sér.
11Vísa mér veg þinn, Drottinn * leið mig um slétta braut sakir óvina minna.
12Ofursel sál mína eigi græðgi andstæðinga minna * því að falsvitni rísa í gegn mér og menn er spúa rógmælum.
13Ég treysti því að fá að * sjá gæsku Drottins á landi lifenda!
14Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur * já, vona á Drottin.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég leita ásjónu þinnar, Drottinn: Hyl eigi auglit þitt fyrir mér.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Kristur er frumburður allrar sköpunar og þannig er hann fremstur í öllu.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Kristur er frumburður allrar sköpunar og þannig er hann fremstur í öllu.
Stuttur ritningarlestur
Jk 1, 22. 25Verið gjörendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þér sjálfa yður. Sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því, sem hann heyrir, heldur framkvæmir það, hann mun sæll verða í verkum sínum.
Stutt svarvers
Frelsa mig, Drottinn, * og líkna mér.
Frelsa mig, Drottinn, * og líkna mér.
Hríf eigi sál mína burt með syndurum.
Og líkna mér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Frelsa mig, Drottinn, * og líkna mér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört og heilagt er nafn hans.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn, heyr bænir vorar og vernda oss dag og nótt, svo að vér sem lifum í breytilegum heimi fáum stöðugt þegið styrk frá þér, sem ert óbreytanlegur. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 31, 2-6
Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.
2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,
3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.
4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.
5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.
6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.
Sálmur 130
Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,
2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!
3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?
4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.
5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.
6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.
7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.
8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007