Mánudagur í 4. viku aðventu
Virkur dagur á aðventu.
Aðventa · Vika 4Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Einnig í dag
Pétur Kanisíus prestur og kirkjufræðari
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Ljóðaljóðin 2:8-14
- Davíðssálmur
- Sálmur 33:2-3, 11-12, 20-21
- Guðspjall
- Lúkasarguðspjall 1:39-45
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í öllum löndum lið sig býrí ljóssins tygi skær,og æskufjör það áfram knýr,svo ekkert tálmað fær,sem döggin tær mót himni hlær,er heilsar morgunroðans blær,svo skín hin prúða fylking fríðaf frjálsum æskulýð.Í öllum löndum sama söngá sér hinn ungi her,um sama fána' og fánastöngþeir fylkja allir sér,og allir sjá hið sama hlið,hin sama dýrð þeim blasir við,í einni von, í ást og trúþeir áfram stefna nú.Og Jesús undan öllum fer,þeir eru' hans heiðurssveit.Til konungs þeir hann kusu sér,hann kærleiks þáði heit,svo vöxt og afl fær æskuþjóðvið alheimssólar mildu glóð,í skugga krossins skjól og hlíf,í skauti Jesú líf. Amen.
Sálmur 90
Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.
1Drottinn, þú hefur verið oss * athvarf frá kyni til kyns.
2Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til * frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð.
3Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir * „Hverfið aftur, þér mannanna börn!“
4Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær * þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka.
5Þú hrífur þá burt, sem í svefni * þá er að morgni voru sem gróandi gras.
6Að morgni blómgast það og grær * að kveldi fölnar það og visnar.
7Vér hverfum fyrir reiði þinni * skelfumst fyrir bræði þinni.
8Þú hefur sett misgjörðir vorar fyrir augu þér * vorar huldu syndir fyrir ljós auglitis þíns.
9Allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni * ár vor líða sem andvarp.
10Ævidagar vorir eru sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár * og dýrasta hnossið er mæða og hégómi, því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt.
11Hver þekkir styrkleik reiði þinnar og bræði þína * svo sem hana ber að óttast?
12Kenn oss að telja daga vora * að vér megum öðlast viturt hjarta.
13Snú þú aftur, Drottinn. Hversu lengi er þess að bíða * að þú aumkist yfir þjóna þína?
14Metta oss að morgni með miskunn þinni * að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.
15Veit oss gleði í stað daga þeirra * er þú hefur lægt oss, ára þeirra, er vér höfum illt reynt.
16Lát dáðir þínar birtast þjónum * þínum og dýrð þína börnum þeirra.
17Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss * styrk þú verk handa vorra.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.
Sálmur — Jes 42, 10-16 — Sálmur um sigurvegarann og frelsarann Guð
Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.
10Syngið Drottni nýjan söng, syngið lof hans til endimarka jarðarinnar * þér sem farið um hafið og allt sem í hafinu er, þér fjarlægar landsálfur og þeir sem þær byggja!
11Eyðimörkin og borgir hennar og þorpin, þar sem Kedar býr * skulu hefja upp raustina. Fjallabúarnir skulu fagna, æpa af gleði ofan af fjallatindunum!
12Þeir skulu gefa Drottni dýrðina og * kunngjöra lof hans í fjarlægum landsálfum!
13Drottinn leggur af stað sem hetja, elur á hugmóð sínum eins og bardagamaður. Hann kallar * hann lýstur upp herópi, sýnir hetjuskap á óvinum sínum:
14Ég hefi þagað langan tíma, verið hljóður og stillt mig. Nú mun ég hljóða sem jóðsjúk kona * stynja og standa á öndinni í sama bili.
15Ég mun svíða fjöllin og hálsana og skrælna láta allar jurtir * er þar vaxa. Ég mun gjöra ár að eyjum og þurrka upp tjarnirnar.
16Ég mun leiða blinda menn um veg, er þeir ekki rata, færa þá um stigu * sem þeir ekki þekkja. Ég vil gjöra myrkrið fram undan þeim að ljósi og hólótt landið að jafnsléttu. Þessa hluti mun ég gjöra, og ég hætti eigi við þá.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.
Sálmur 135, 1-12
Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?
1Hallelúja. Lofið nafn Drottins * lofið hann, þér þjónar Drottni,
2er standið í húsi Drottins * í forgörðum húss Guðs vors.
3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður * leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.
4Því að Drottinn hefur útvalið sér Jakob * gert Ísrael að eign sinni.
5Já, ég veit * að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.
6Allt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann * á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.
7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar * gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.
8Hann laust frumburði Egyptalands * bæði menn og skepnur,
9sendi tákn og undur yfir Egyptaland * gegn Faraó og öllum þjónum hans.
10Hann laust margar þjóðir * og deyddi volduga konunga:
11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan * og öll konungsríki í Kanaan,
12og gaf lönd þeirra að erfð * að erfð Ísrael, lýð sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?
Stuttur ritningarlestur
Jes 7, 14b-15Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel. Við súrmjólk og hunang skal hann alast, þá er hann fer að hafa vit á að hafna hinu illa og velja hið góða.
Stutt svarvers
Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Þú munt sjá dýrð hans í þér:
Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Treystið og óttist ekki, því að eftir fimm daga mun Drottinn koma til yðar.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Elskuðu bræður (og systur), hrópum af fögnuði til Jesú Krists, Drottins vors, sem af miskunn sinni kom til vor:Kom, Drottinn Jesús!Þú komst frá Föðurnum til að taka á þig manneðli vort,máðu brott þá bletti í manneðli voru sem syndin hefur orsakað.Þú munt koma aftur í dýrð til þinna útvöldu,kom þú til vor í dag og hjálpa oss syndurum að skilja miskunn þína og kærleika.Vér lofum þig fagnandi, Drottinn Jesús,kom þú og fær oss endurlausn þína.Þú sem lýstir æviveg vorn með trúarljósi,gef að vér megum birta réttlæti þitt í verkum vorum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Drottinn, að þú hlýðir af miskunn á bænir lýðs þíns, svo að hann sem fagnar komu þíns eingetna Sonar í holdi sínu hljóti að launum eilíft líf, er hann kemur í hátign sinni. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. PÉTURS CANISÍUS, PRESTS OG KIRKJUFRÆÐARA
Guð, þú efldir hinn sæla prest Pétur að krafti og kenningu svo að hann gætti kaþólskrar trúar. Veit fyrir bænarstað hans að þeir sem leita sannleikans finni þig, Guð, í fögnuði og lýður hinna trúuðu játi þig staðfastlega. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Gef þú, maður, Guði þínumgjörvallt það, er honum ber,eins og hann í orðum sínumætlast til og býður þér.Gættu þess, að öllum áyfirburðum mönnum hjáyfirskrift hans er og myndin,ekkert þitt er nema syndin.Gef þú honum hjartans inni,hreint og prýtt sem best þú mátt,svo á því hann þóknun finni,þangað vilji koma brátt,bú þú honum bústað þar,bið hann sjálfan liðsemdar,að það honum helgast megi,helgidóm svo þar hann eigi.Gef þú honum athöfn allaorð og verk og lífið sjálft,láttu þér ei þungbært falla,þótt hann kjósi meira' en hálft.Hættu' að gefa heimi' og syndhelming lífs, og þeirra myndframar hygg ei fremd að vera,fegri mynd þú átt að bera. Amen.
Sálmur 136 I
Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.
1Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.
2Þakkið Guði guðanna * því að miskunn hans varir að eilífu,
3þakkið Drottni drottnanna * því að miskunn hans varir að eilífu,
4honum, sem einn gjörir mikil dásemdarverk * því að miskunn hans varir að eilífu,
5honum, sem skapaði himnana með speki * því að miskunn hans varir að eilífu,
6honum, sem breiddi jörðina út á vötnunum * því að miskunn hans varir að eilífu,
7honum, sem skapaði stóru ljósin * því að miskunn hans varir að eilífu,
8sólina til þess að ráða deginum * því að miskunn hans varir að eilífu,
9tunglið og stjörnurnar til þess að ráða nóttunni * því að miskunn hans varir að eilífu,
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.
Sálmur 136 II
Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.
10honum, sem laust Egypta með deyðing frumburðanna * því að miskunn hans varir að eilífu,
11og leiddi Ísrael burt frá þeim * því að miskunn hans varir að eilífu,
12með sterkri hendi og útréttum armlegg * því að miskunn hans varir að eilífu,
13honum, sem skipti Rauðahafinu sundur * því að miskunn hans varir að eilífu,
14og lét Ísrael ganga gegnum það * því að miskunn hans varir að eilífu,
15og keyrði Faraó og her hans út í Rauðahafið * því að miskunn hans varir að eilífu,
16honum, sem leiddi lýð sinn gegnum eyðimörkina * því að miskunn hans varir að eilífu,
17honum, sem laust mikla konunga * því að miskunn hans varir að eilífu,
18og deyddi volduga konunga * því að miskunn hans varir að eilífu,
19Síhon Amorítakonung * því að miskunn hans varir að eilífu,
20og Óg konung í Basan * því að miskunn hans varir að eilífu,
21og gaf land þeirra að erfð * því að miskunn hans varir að eilífu,
22að erfð Ísrael þjóni sínum * því að miskunn hans varir að eilífu,
23honum, sem minntist vor í læging vorri * því að miskunn hans varir að eilífu,
24og frelsaði oss frá fjandmönnum vorum * því að miskunn hans varir að eilífu,
25sem gefur fæðu öllu holdi * því að miskunn hans varir að eilífu.
26Þakkið Guði himnanna * því að miskunn hans varir að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?
Stuttur ritningarlestur
1Kor 4, 5Dæmið ekki fyrir tímann, áður en Drottinn kemur. Hann mun leiða það í ljós, sem í myrkrinu er hulið, og opinbera ráð hjartnanna. Og þá mun hver um sig hljóta þann lofstír af Guði, sem hann á skilið.
Stutt svarvers
Kom og frelsa oss, * Drottinn Guð allsherjar.
Kom og frelsa oss, * Drottinn Guð allsherjar.
Birtu auglit þitt og vér verðum hólpnir.
Drottinn Guð allsherjar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Kom og frelsa oss, * Drottinn Guð allsherjar.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Morgunroði, ljómi hins eilífa ljóss, sól réttlætisins, kom og upplýs þá er sitja í myrkri og skugga dauðans.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Drottinn, að þú hlýðir af miskunn á bænir lýðs þíns, svo að hann sem fagnar komu þíns eingetna Sonar í holdi sínu hljóti að launum eilíft líf, er hann kemur í hátign sinni. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 86
Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.
1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.
2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.
4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!
11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,
13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.
14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007