Föstudagur í 3. viku aðventu
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Jeremía 23:5-8
- Davíðssálmur
- Sálmur 72:1-2, 12-13, 18-19
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 1:18-25
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í öllum löndum lið sig býrí ljóssins tygi skær,og æskufjör það áfram knýr,svo ekkert tálmað fær,sem döggin tær mót himni hlær,er heilsar morgunroðans blær,svo skín hin prúða fylking fríðaf frjálsum æskulýð.Í öllum löndum sama söngá sér hinn ungi her,um sama fána' og fánastöngþeir fylkja allir sér,og allir sjá hið sama hlið,hin sama dýrð þeim blasir við,í einni von, í ást og trúþeir áfram stefna nú.Og Jesús undan öllum fer,þeir eru' hans heiðurssveit.Til konungs þeir hann kusu sér,hann kærleiks þáði heit,svo vöxt og afl fær æskuþjóðvið alheimssólar mildu glóð,í skugga krossins skjól og hlíf,í skauti Jesú líf. Amen.
Sálmur 51
Andstef · Konungur vor kemur frá Síon; Drottinn Guð er með oss, er voldugt nafn hans.
1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,
2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.
3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.
4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,
5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.
6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.
7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.
8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!
9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.
10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.
11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.
12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.
13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.
14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,
15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.
16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.
17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!
18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.
19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.
20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!
21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Konungur vor kemur frá Síon; Drottinn Guð er með oss, er voldugt nafn hans.
Sálmur — Jer 14, 17-21 — Harmaljóð þjóðarinnar á tímum hungurs og styrjalda
Andstef · Bíðið Drottins og hann mun koma til yðar með frelsandi mætti sínum.
17Þú skalt tala til þeirra þessi orð: Augu mín skulu fljóta í tárum nótt og dag * og tárin eigi stöðvast, því að mærin, dóttir þjóðar minnar, hefur orðið fyrir ógurlegu áfalli, hefur særð verið al–ólæknandi sári.
18Gangi ég út á völlinn, þá liggja þar þeir, er fallið hafa fyrir sverði, og gangi ég inn í borgina * þá sé ég þar menn dána úr hungri. Já, spámenn og prestar fara um landið og bera ekki kennsl á það.
19Hefir þú þá hafnað Júda algjörlega, eða er sál þín orðin leið á Síon? Hví hefur þú lostið oss svo * að vér verðum eigi læknaðir? Menn vænta hamingju, en ekkert gott kemur, vænta lækningartíma, og sjá, skelfing!
20Vér þekkjum, Drottinn, yfirsjón vora, misgjörð feðra vorra * að vér höfum syndgað gegn þér.
21Fyrirlít eigi, vegna nafns þíns, – óvirð eigi hásæti dýrðar þinnar * minnstu sáttmála þíns við oss og rjúf hann eigi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Bíðið Drottins og hann mun koma til yðar með frelsandi mætti sínum.
Sálmur 100
Andstef · Ákaft bíð ég Drottins; vonglaður bíð ég þess að Drottinn, Frelsari minn komi.
1Öll veröldin fagni fyrir Drottni!
2Þjónið Drottni með gleði * komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng!
3Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss * og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð.
4Gangið inn um hlið hans með lofsöng * í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.
5Því að Drottinn er góður * miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ákaft bíð ég Drottins; vonglaður bíð ég þess að Drottinn, Frelsari minn komi.
Stuttur ritningarlestur
Rm 13, 11-12Yður er mál að rísa af svefni, því að nú er oss hjálpræðið nær en þá er vér tókum trú. Liðið er á nóttina og dagurinn í nánd. Leggjum því af verk myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins.
Stutt svarvers
Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Þú munt sjá dýrð hans í þér:
Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Vakið og bíðið af heilum huga því Drottinn Guð vor er í nánd.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Elskuðu bræður (og systur), biðjum til Drottins Jesú Krists, dómara lifenda og dauðra:Kom, Drottinn Jesús!Drottinn Jesús, þú komst til að frelsa syndara,vernda oss á tímum freistinganna.Þú munt koma í dýrð til að vera dómari vor,sýn í oss frelsunarmátt þinn.Hjálpa þú oss með mætti Heilags Anda að halda boðorð þín,og vænta komu þinnar í kærleika.Þú ert vegsamaður um aldir. Hjálpa þú oss í miskunn þinni að lifa þessu lífi í guðrækni og hófsemi,á meðan vér bíðum í fagnaðarríkri von eftir opinberun dýrðar þinnar.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, almáttugi Guð, að þú veitir oss að vér, sem beygð erum undir oki syndar í hinni fornu ánauð, verðum frjáls fyrir nýja fæðingu þíns eingetna Sonar, þá sem í vændum er. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Gef þú, maður, Guði þínumgjörvallt það, er honum ber,eins og hann í orðum sínumætlast til og býður þér.Gættu þess, að öllum áyfirburðum mönnum hjáyfirskrift hans er og myndin,ekkert þitt er nema syndin.Gef þú honum hjartans inni,hreint og prýtt sem best þú mátt,svo á því hann þóknun finni,þangað vilji koma brátt,bú þú honum bústað þar,bið hann sjálfan liðsemdar,að það honum helgast megi,helgidóm svo þar hann eigi.Gef þú honum athöfn allaorð og verk og lífið sjálft,láttu þér ei þungbært falla,þótt hann kjósi meira' en hálft.Hættu' að gefa heimi' og syndhelming lífs, og þeirra myndframar hygg ei fremd að vera,fegri mynd þú átt að bera. Amen.
Sálmur 135 I
Andstef · Konungur vor kemur frá Síon; Drottinn Guð er með oss, er voldugt nafn hans.
1Hallelúja. Lofið nafn Drottins * lofið hann, þér þjónar Drottni,
2er standið í húsi Drottins * í forgörðum húss Guðs vors.
3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður * leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.
4Því að Drottinn hefur útvalið sér Jakob * gert Ísrael að eign sinni.
5Já, ég veit * að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.
6Allt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann * á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.
7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar * gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.
8Hann laust frumburði Egyptalands * bæði menn og skepnur,
9sendi tákn og undur yfir Egyptaland * gegn Faraó og öllum þjónum hans.
10Hann laust margar þjóðir * og deyddi volduga konunga:
11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan * og öll konungsríki í Kanaan,
12og gaf lönd þeirra að erfð * að erfð Ísrael, lýð sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Konungur vor kemur frá Síon; Drottinn Guð er með oss, er voldugt nafn hans.
Sálmur 135 II
Andstef · Bíðið Drottins og hann mun koma til yðar með frelsandi mætti sínum.
13Drottinn, nafn þitt varir að eilífu * minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,
14því að Drottinn réttir hlut þjóðar * sinnar og aumkast yfir þjóna sína.
15Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull * handaverk manna.
16Þau hafa munn, en tala ekki * augu, en sjá ekki,
17þau hafa eyru, en heyra ekki * og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.
18Eins og þau eru, verða smiðir þeirra * allir þeir, er á þau treysta.
19Ísraels ætt, lofið Drottin * Arons ætt, lofið Drottin!
20Leví ætt, lofið Drottin * þér sem óttist Drottin, lofið Drottin!
21Lofaður sé Drottinn frá Síon * hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Bíðið Drottins og hann mun koma til yðar með frelsandi mætti sínum.
Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni
Andstef · Ákaft bíð ég Drottins; vonglaður bíð ég þess að Drottinn, Frelsari minn komi.
3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.
4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ákaft bíð ég Drottins; vonglaður bíð ég þess að Drottinn, Frelsari minn komi.
Stuttur ritningarlestur
Flp 4, 4-5Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.
Stutt svarvers
Drottinn, sýn oss * miskunn þína
Drottinn, sýn oss * miskunn þína.
Og veit oss frelsun þína.
Miskunn þína.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, sýn oss * miskunn þína.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Adonai, voldugi Guð, leiðtogi Ísraels. Þú, sem birtist Móse í loga þyrnirunnans og gafst honum lögin á Sínaífjalli, kom og frelsa oss með almætti þínu.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, almáttugi Guð, að þú veitir oss að vér, sem beygð erum undir oki syndar í hinni fornu ánauð, verðum frjáls fyrir nýja fæðingu þíns eingetna Sonar, þá sem í vændum er. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 88
Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
1Syngist með Makalat–lagi. Hemans–maskíl Esraíta.
2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga * um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
3Lát bæn mína koma fyrir þig * hneig eyra að hrópi mínu,
4því að sál mín er mett orðin af böli * og líf mitt nálægist Hel.
5Ég er talinn með þeim * sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.
6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni * er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.
7Þú hefur lagt mig í gryfju undirheima * í myrkrið niðri í djúpinu.
8Reiði þín hvílir á mér * og alla boða þína hefur þú látið skella á mér. [Sela]
9Þú hefur fjarlægt frá mér kunningja mína * gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,
10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig * Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.
11Gjörir þú furðuverk vegna látinna * eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela]
12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni * frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?
13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu * eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?
14En ég hrópa til þín, Drottinn * og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.
15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni * hylur auglit þitt fyrir mér?
16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku * ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.
17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig * ógnir þínar eyða mér.
18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn * lykja um mig allar saman.
19Þú hefur fjarlægt frá mér ástvini og * félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Jer 14, 9Þú ert mitt á meðal vor, Drottinn, og vér erum nefndir eftir nafni þínu. Yfirgef oss eigi!
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Almáttugi Guð, veit oss náð til að sameinast eingetnum Syni þínum, sem þoldi dauða og gröf, svo að vér fáum risið upp til nýs lífs ásamt honum, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007