
Boðun Maríu.
Gustave Doré · 1880
Ættarskrá Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams.
Abraham gat Ísak; og Ísak gat Jakob; og Jakob gat Júda og bræður hans;
og Júda gat Perez og Sera við Tamar; og Perez gat Esrom; og Esrom gat Ram;
og Ram gat Ammínadab; og Ammínadab gat Nahson; og Nahson gat Salmon;
og Salmon gat Bóas við Rahab; og Bóas gat Óbeð við Rut; og Óbeð gat Ísaí;
og Ísaí gat Davíð konung. Og Davíð gat Salómon við konu Úría;
og Salómon gat Róbóam; og Róbóam gat Abía; og Abía gat Asa;
og Asa gat Jósafat; og Jósafat gat Jóram; og Jóram gat Ússía;
og Ússía gat Jótam; og Jótam gat Akas; og Akas gat Esekía;
og Esekía gat Manasse; og Manasse gat Amón; og Amón gat Jósía;
og Jósía gat Jekonja og bræður hans á tíma herleiðingarinnar til Babýlonar.
En eftir herleiðinguna til Babýlonar gat Jekonja Sealtíel; og Sealtíel gat Serúbabel;
og Serúbabel gat Abíúd; og Abíúd gat Eljakím; og Eljakím gat Azór;
og Azór gat Sadók; og Sadók gat Akím; og Akím gat Elíúd;
og Elíúd gat Eleasar; og Eleasar gat Mattan; og Mattan gat Jakob;
og Jakob gat Jósef, mann Maríu; af henni fæddist Jesús, sem kallast Kristur.
Eru þannig allir ættliðirnir frá Abraham til Davíðs fjórtán ættliðir, og frá Davíð til herleiðingarinnar til Babýlonar fjórtán ættliðir, og frá herleiðingunni til Babýlonar til Krists fjórtán ættliðir.
En fæðing Jesú Krists varð á þessa leið: Móðir hans María var föstnuð Jósef, en áður en þau kæmu saman, reyndist hún þunguð af heilögum anda.
En með því að Jósef maður hennar var réttlátur, og vildi þó ekki gjöra henni opinbera minkun, ásetti hann sér að skiljast við hana á laun.
En meðan hann var að hugsa um þetta, sjá, þá vitraðist honum engill Drottins í draumi og sagði: Jósef, sonur Davíðs, óttast þú ekki að taka til þín Maríu, konu þína, því að fóstur hennar er af heilögum anda.
Og hún mun son ala og skalt þú kalla nafn hans Jesús, því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.
En alt þetta varð, til þess að rætast skyldi það, sem mælt er af drotni fyrir spámanninn, er segir:
Sjá, meyjan mun þunguð verða og son ala, og nafn hans munu menn kalla Immanúel, sem er útlagt: Guð með oss.
En þegar Jósef vaknaði, gjörði hann eins og engill Drottins hafði boðið honum, og tók konu sína til sín;
og hann kendi hennar ekki, uns hún hafði alið son, og hann kallaði nafn hans JESÚS.