Jeremíabók 23Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 23

Vei hirðunum, sem eyða og tvístra gæzluhjörð minni! segir Drottinn.

Fyrir því segir Drottinn, Ísraels Guð, svo um hirðana, sem gæta þjóðar minnar: Þér hafið tvístrað sauðum mínum og sundrað þeim og ekki litið eftir þeim; sjá, eg skal vitja vonzku verka yðar á yður — segir Drottinn.

En eg vil sjálfur safna leifum hjarðar minnar saman úr öllum löndum, þangað sem eg hefi rekið þá, og leiða þá aftur í haglendi þeirra, og þeir skulu frjóvast og fjölga;

og eg vil setja hirða yfir þá, og þeir skulu gæta þeirra, og þeir skulu eigi framar hræðast né skelfast og einskis þeirra skal saknað verða — segir Drottinn.

Sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn — að eg mun uppvekja Davíð réttan kvist, er ríkja skal sem konungur og breyta viturlega og iðka rétt og réttlæti í landinu.

Á hans dögum mun Júda hólpinn verða og Ísrael búa óhultur, og þetta mun verða nafn hans, það er menn nefna hann með: Drottinn er vort réttlæti!

Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma — segir Drottinn — að menn munu eigi framar segja: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi Ísraelsmenn út af Egiptalandi!

heldur: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi og flutti heim niðja Ísraels húss úr landinu norður frá og úr öllum þeim löndum, þangað sem eg hafði rekið þá, svo að þeir mættu búa í landi sínu!

Viðvíkjandi spámönnunum: Hjartað í brjósti mér er sundurmarið, öll bein mín skjálfa; eg er eins og drukkinn maður, eins og maður, sem vínið hefir bugað, vegna Drottins og vegna hans heilögu orða.

Því að Landið er full af hórkörlum, — já, vegna bölvunarinnar syrgir landið, eru beitilöndin í öræfunum skrælnuð —, og hlaup þeirra er vonzka og styrkur þeirra ósannsögli;

því að bæði spámenn og prestar eru guðlausir, jafnvel í húsi mínu hefi eg rekið mig á vonzku þeirra — segir Drottinn.

Fyrir því mun vegur þeirra verða þeim eins og sleipir staðir í myrkri; þeim skal verða hrundið, svo að þeir detti á honum; því að eg leiði óhamingju yfir þá árið sem þeim verður refsað — segir Drottinn.

Hjá spámönnum Samaríu sá eg og hneykslanlegt athæfi: þeir spáðu í nafni Baals og leiddu lýð minn Ísrael afvega.

En hjá spámönnum Jerúsalem sá eg hryllilegt athæfi: þeir drýgja hór og fara með lygar Og styrkja illgjörðamennina, svo að enginn þeirra snýr sér frá ilsku sinni. Þeir eru allir orðnir mér eins og Sódóma, og íbúar hennar eins og Gómorra.

Fyrir því segir Drottinn hersveitanna svo um spámennina: Sjá, eg vil gefa þeim malurt að eta og eiturvatn að drekka, því að frá spámönnum Jerúsalem hefir guðleysi breiðst út um alt landið.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Hlýðið ekki á orð spámannanna, Sem spá yður; þeir draga yður á tálar; þeir boða vitranir, sem þeir Sjálfir hafa spunnið upp, en ekki fengið frá Drottni.

Sífeldlega segja þeir við þá, er mér hafa hafnað: Drottinn hefir sagt: Yður mun heill hlotnast! Og þótt þeir fari allir eftir þverúð hjarta síns, segja þeir: Engin ógæfa mun yfir yður koma!

SJá, sá sem stendur í ráði Drottinn, hann sér og heyrir orð hans. Sá, sem gefur gaum að orðum mínum, kunngjörir þau!

Sjá, stormur Drottins brýst fram — reiði — og hvirfilbylur — hann steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.

Reiði Drottinn léttir ekki fyr en hann hefir framkvæmt og leitt til lykta fyrirætlanir hjarta síns, — síðar meir munuð þér skilja það greinilega.

Eg hefi ekki sent spámennina — og þó hlupu þeir; eg hefi eigi talað til þeirra — og þó spáðu þeir.

Hefðu þeir staðið í mínu ráði, þá mundu þeir kunngjöra þjóð minni mín orð og snúa þeim frá þeirra vonda vegi og frá þeirra vondu verkum.

Er eg þá aðeins Guð í nánd — segir Drottinn — og ekki Guð í fjarlægð?

Getur nokkur falið sig í fylgsnum, svo að eg sjái hann ekki? — segir Drottinn. Uppfylli eg ekki himin og jörð? — segir Drottinn.

Eg heyri hvað spámennirnir segja, þeir sem boða lygar í mínu nafni; þeir segja: Mig dreymdi, mig dreymdi!

Hversu lengi á þetta svo að ganga? Ætla spámennirnir, þeir er boða lygar og flytja tál, er þeir sjálfir hafa upp spunnið

hvort hyggjast þeir að koma þjóð minni með draumum sínum, er þeir segja hver öðrum, til að gleyma nafni mínu, eins og feður þeirra gleymdu nafni mínu vegna Baals?

Sá spámaður, sem hefir draum, segi hann draum, og sá, sem hefir mitt orð, flytji hann mitt orð í sannleika. Hvað er sameiginlegt hálmstrái og korni? — segir Drottinn.

Er ekki orð mitt eins og eldur — segir Drottinn — og eins og hamar, sem sundurmolar klettana?

Sjá, þess vegna skal eg finna spámennina — segir Drottinn—, sem stela orðum mínum hver frá öðrum.

Eg skal finna spámennina — segir Drottinn —, sem taka til sinnar eigin tungu, til þess að umla guðmæli.

Eg skal finna spámennina, sem kunngjöra lygadrauma — segir Drottinn — og segja frá þeim og leiða þjóð mína afvega með lygum sínum og gorti, og þó hefi eg ekki sent þá og ekkert umboð gefið þeim, og þeir gjöra þessari þjóð alls ekkert gagn — segir Drottinn.

Og þegar þessi lýður spyr þig, eða einhver spámaðurinn eða einhver presturinn, og segir: Hver er byrði Drottins? þá skalt þú segja við þá: Þér eruð byrðin og eg mun varpa yður af mér — segir Drottinn.

En sá spámaður og sá prestur og sá lýður, sem talar um »byrði Drottins« — slíks manns vil eg vitja og húss hans.

Svo skuluð þér segja hver við annan og einn við annan: »Hverju hefir Drottinn svarað?« eða »Hvað hefir Drottinn sagt?«

En ybyrði Drottinn skuluð þér ekki framar nefna, því að hverjum manni munu þau orð hans verða byrði, þar sem þér hafið rangfært orð hins lifanda Guðs, Drottins hersveitanna, vors Guðs.

svo skulu menn segja við spámanninn: »Hverju hefir Drottinn svarað þér?« eða »Hvað hefir Drottinn sagt?«

En ef þér talið um byrði« Drottins — fyrir því, svo segir Drottinn: Af því að þér viðhafið þetta orð byrði Drottins, þótt eg gjörði yður þá orðsending: Þér skuluð ekki tala um byrði Drottins«! —

sjá, fyrir því vil eg hefja yður upp og varpa yður og borginni, sem eg gaf yður og feðrum yðar, burt frá mínu augliti.

Og eg legg á yður eilífa smán og eilífa skömm, sem aldrei mun gleymast.