Jeremíabók 24Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 24

Drottinn lét mig sjá: tvær karfir fullar af fíkjum voru settar fyrir framan musteri Drottins, eftir að Nebúkadrezar Babel-konungur hafði herleitt Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, og Júdahöfðingja og trésmiðina og járnsmiðina burt frá Jerúsalem og flutt þá til Babel.

Í annari körfinni voru mjög góðar fíkjur, líkar árfíkjum, en í hinni körfinni voru mjög vondar fíkjur, sem voru svo vondar, að þær voru óætar.

Þá sagði Drottinn við mig: Hvað sér þú, Jeremía? Og eg svaraði: Fíkjur! Góðu fíkjurnar eru mjög góðar, en þær vondu eru mjög vondar, Já svo vondar, að þær eru óætar.

Þá kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:

Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Eins og á þessar góðu fíkjur, svo lít eg á hina herleiddu úr Júda, sem eg hefi sent héðan til Kaldealands, þeim til heilla.

Eg beini augum mínum á þá þeim til heilla og flyt þá aftur inn í þetta land, svo að eg megi byggja þá upp og ekki rifa þá niður aftur og gróðursetja þá og ekki uppræta þá aftur.

Og eg gef þeim hjarta til að þekkja mig, að eg er Drottinn; og þeir skulu vera mín þjóð og eg skal vera þeirra Guð, þegar þeir snúa sér til mín af öllu hjarta.

og vondu fíkjurnar, sem eru svo vondar, að þær eru óætar — já, Svo segir Drottinn — þannig vil eg fara með Zedekia Júdakonung og höfðingja hans og leifarnar af Jerúsalem, þá sem eftir eru í þessu landi og þá sem sezt hafa að í Egiptalandi,

eg mun gjöra þá að grýlu, að andstygð öllum konungsríkjum jarðar, að háðung, orðskvið, spotti og formæling á öllum þeim stöðum, þangað sem eg rek þá.

Og eg sendi sverð, hungur og drepsótt í móti þeim, þartif er þeir eru gjöreyddir úr landinu, sem eg gaf þeim og feðrum þeirra.