Gamla testamentiðSpámennirnir
K Orðið, sem kom til Jeremía um allan Júdalýð á fjórða ríkisári Jójakíms Jósíasonar, Júdakonungs— það er fyrsta ríkisár Nebúkad rezars Babel-konungs —,
það. er Jeremía spámaður talaði til alls Júdalýðs og til allra Jerúsalembúa, segjandi:
Frá þrettánda ríkisári Jósia Amónssonar, Júdakonungs, og fram á Þennan dag, nú í tuttugu og þrjú ár, hefir orð Drottins komið til mín og eg hefi talað til yðar seint og snemma, en þér hafið ekki heyrt.
Og Drottinn hefir sent til yðar alla þjóna sína, spámennina, bæði seint og snemma, en þér hafið ekki heyrt, né heldur lagt við eyrun, til þess að heyra.
Léti eg segja yður: »Snúið yður, hver og einn frá sínum vonda vegi Og frá yðar vondu verkum, þá skuluð þér búa kyrrir í landinu, sem Drottinn gaf yður og feðrum yðar, frá eilífð til eilífðar.
En eltið ekki aðra Guði, til þess að þjóna þeim og falla fram fyrir þeim, og egnið mig ekki til reiði með handaverkum yðar, svo að eg láti yður ekkert böl að höndum bera,
þá hlýdduð þér ekki á mig — segir Drottinn — til þess að egna mig til reiði með handaverkum yðar, yður sjálfum til ills.
Fyrir því segir Drottinn hersveitanna svo: Af því að þér hlýdduð ekki orðum mínum,
þá vil eg láta sækja allar kynkvíslir norðursins segir Drottinn — og Nebúkadrezar IBahel-konung þjón minn og láta fá brjótast inn yfir þetta land og inn á íbúa þess og inn á allar þessar Þjóðir hér umhverfis, og eg vil helga þá banni og gjöra þá að skelfing og sPotti og eilifri háðung,
og eg vil láta gjörsamlega hverfa meðal þeirra öll ánægju- og gleðihljóð, öll fagnaðarlæti brúðguma og brúðar, öll kvarnarhljóð og lampaljós.
Og alt þetta land skal verða að rúst, að auðn, og þessar þjóðir skulu þjóna Babel-konungi í sjötíu ár.
En þegar sjötíu ár eru liðin, mun eg refsa Babel-konungi og þessari þjóð — segir Drottinn — fyrir misgjörð þeirra, og landi Kaldea og gjöra það að eilífri auðn.
Og eg mun láta fram koma á þessu landi öll þau hótunarorð, er eg hefi talað gegn því, alt það sem ritað er í þessari bók, það sem Jeremía hefir spáð um allar þjóðir.
Því að voldugar þjóðir og miklir konungar munu og gjöra þá að þrælum, og eg mun gjalda þeim eftir athæfi þeirra og eftir handaverkum þeirra.
Því að svo sagði Drottinn, Ísraels Guð, við mig: Tak við þessum bikar reiðivínsins af hendi mér og lát allar þjóðirnar drekka af honum, þær er eg sendi þig til,
svo að þær drekki og reiki og verði vitskerlar af sverðinu, er eg sendi meðal þeirra.
Þá tók eg við bikarnum af hendi Drottins og lét allar þær þjóðir drekka, sem Drottinn hafði sent mig til:
Jerúsalem og Júdaborgir, konunga hennar og höfðingja,? til að gjöra þá að rúst, að skelfing, að spotti og formæling, eins og nú er fram komið;
Faraó, Egiptalands konung, og þjóna hans og höfðingja og alla þjóð hans og allan þjóðblending;
enn fremur alla konunga í Uz-landi og alla konunga í Filistalandi, sem sé Askalon, Gaza, Ekron og leifarnar af Asdód;
Edóm og Móab og Ammóníta;
og alla konunga í Týrus og alla konunga í Zídon og konungana á ströndunum, hinumegin hafsins;
Dedan og Tema og Bús og alla jaðarskorna,
gg alla konunga Arabíu og alla konunga þjóðblendinganna, sem búa í eyðimörkinni;
og alla konungana í Simrí og alla konungana í Elam og alla konungana í Medíu;
og alla konungana norður frá, hvort sem þeir búa nálægt hver öðrum eða langt hver frá öðrum, — í stutlu máli öll konungsríki á jörðunni; en konungurinn í Sesak skal drekka á eftir þeim.
En þú skalt segja við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Drekkið, til þess að þér verðið druknir og spúið og dettið og standið ekki upp aftur, af sverðinu, sem eg sendi meðal yðar.
En færist þeir undan að taka við bikarnum af hendi þinni, til þess að drekka, þá seg við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna: Drekka skuluð þér!
Því sjá, hjá borginni, sem nefnd er eftir nafni mínu, læt eg ógæfuna fyrst ríða yfir, — og þér skylduð sleppa óhegndir? Þér skuluð ekki sleppa óhegndir, því að sverði hýð eg út gegn öllum íbúum jarðarinnar — segir Drottinn hersveitanna.
En þú skalt kunngjöra þeim öll þessi orð og segja við þá: Drottinn öskrar af hæðum og lætur rödd sína gjalla frá sínum heilaga bústað. Hann öskrar hátt út yfir haglendi sitt, hefir upp fagnaðaróp, eins og þeir sem vínber troða, gegn öllum þeim, sem á jörðu búa.
Hávaðinn berst út á enda jarðar, því að Drottinn þreytir deilu við þjóðirnar. Hann gengur í dóm við alt hold; hina óguðlegu ofurselur hann sverðinu! — segir Drottinn.
Svo segir Drottinn hersveitanna: Sjá, ógæfa fer frá einni þjóð til annarrar og ákafur stormur rís á útjaðri jarðar;
og þeir sem Drottinn hefir felt, munu á þeim degi liggja dauðir frá einum enda jarðarinnar til annars. Þeir munu eigi verða harmaðir, eigi safnað saman og eigi jarðaðir; þeir skulu verða að áburði á akrinum.
Æpið, hirðar, og kveinið og veltið yður í duftinu, þér leiðtogar hjarðarinnar! Því að yðar tími er kominn, að yður verði slátrað og yður tvístrað, og þér skuluð detta niður eins og verðmætt ker.
Þá er ekkert athvarf lengur fyrir hirðana og engin undankoma fyrir leiðtoga hjarðarinnar.
Heyr kvein hirðanna og óp leiðtoga hjarðarinnar, af því að Drottinn eyðir haglendi þeirra,
og hin friðsælu beitilönd eru gjöreydd orðin fyrir hinni brennandi reiði Drottins.
Hann hefir yfirgefið skógarrunn sinn, eins og ljónið; já, að auðn varð land þeirra fyrir hinu vígfreka sverði og fyrir hans brennandi reiði.