Dagatal

Föstudagur í 29. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 29

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Einnig í dag

Jóhannes frá Capestrano prestur

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Með dauða Jesús deyddidauðann og sigur vann,makt hans og afli eyddi,ekkert mig skaða kann,þó leggist lík í jörðu,lifir mín sála frí,hún mætir aldrei hörðuhimneskri sælu í.Jesús er mér í minni,mig á hans vald ég gef,hvort ég er úti' eða inni,eins þá ég vaki' og sef.Hann er mín hjálp og hreysti,hann er mitt rétta líf,honum af hjarta' eg treysti,hann mýkir dauðans kíf.Ég lifi' í Jesú nafni,í Jesú nafni' eg dey,þó heilsa' og líf mér hafni,hræðist ég dauðann ei.Dauði, ég óttast eigiafl þitt né valdið gilt,í Kristí krafti' eg segi:Kom þú sæll, þá þú vilt. Amen.

Sálmur 51

Andstef · Drottinn, þú munt hafa þóknun á réttum fórnum, frambornum á altari þitt.

1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,

2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,

5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.

8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.

11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.

13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,

15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.

16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!

21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, þú munt hafa þóknun á réttum fórnum, frambornum á altari þitt.

Sálmur — Jes 45, 15-25 — Allar þjóðir snúa sér til Drottins

Andstef · Allir Ísraelsniðjar skulu réttlætast fyrir Drottin og miklast af honum.

15Sannlega ert þú Guð * sem hylur þig, Ísraels Guð, frelsari.

16Skurðgoðasmiðirnir verða sér til skammar, já * til háðungar allir saman, þeir ganga allir sneyptir.

17En Ísrael frelsast fyrir Drottni eilífri frelsun. Þér * skuluð eigi verða til skammar né háðungar að eilífu.

18Já, svo segir Drottinn, sá er himnana hefur skapað – hann einn er Guð, sá er jörðina hefur myndað og hana til búið, hann * sem hefur grundvallað hana og hefur eigi skapað hana til þess, að hún væri auðn, heldur myndað hana svo, að hún væri byggileg: Ég er Drottinn, og enginn annar.

19Ég hefi ekki talað í leynum, einhvers staðar í landi myrkranna. Ég hefi eigi sagt við sæði Jakobs * „Leitið mín út í bláinn!“ Ég, Drottinn, tala það sem rétt er og kunngjöri sannmæli.

20Safnist saman og komið, nálægið yður, allir þér af þjóðunum, sem undan hafið komist * Skynlausir eru þeir, sem burðast með trélíkneski sitt og biðja til guðs, er eigi getur hjálpað.

21Gjörið kunnugt og segið til! Já, ráðfæri þeir sig hver við annan! Hver hefur boðað þetta frá öndverðu og kunngjört það fyrir löngu? Hefi ég * Drottinn, ekki gjört það? Enginn Guð er til nema ég. Fyrir utan mig er enginn sannur Guð og hjálpari til.

22Snúið yður til mín og látið frelsast, þér gjörvöll endimörk jarðarinnar * því að ég er Guð og enginn annar.

23Ég hefi svarið við sjálfan mig, af munni mínum er sannleikur út genginn, orð * er eigi mun bregðast: Fyrir mér skal sérhvert kné beygja sig, sérhver tunga sverja mér trúnað.

24„Hjá Drottni einum,“ mun um mig sagt verða * „er réttlæti og vald.“ Allir fjendur hans skulu til hans koma og blygðast sín.

25Í Drottni skal allt sæði * Ísraels réttlætast og miklast af honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allir Ísraelsniðjar skulu réttlætast fyrir Drottin og miklast af honum.

Sálmur 100

Andstef · Komið fyrir auglit Drottins með fagnaðarsöng.

1Öll veröldin fagni fyrir Drottni!

2Þjónið Drottni með gleði * komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng!

3Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss * og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð.

4Gangið inn um hlið hans með lofsöng * í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.

5Því að Drottinn er góður * miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Komið fyrir auglit Drottins með fagnaðarsöng.

Stuttur ritningarlestur

Ef 4, 29-32Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, heldur það eitt, sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gjörist, til þess að það verði til góðs þeim, sem heyra. Hryggið ekki Guðs Heilaga Anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnardagsins. Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt yður og alla mannvonsku yfirleitt. Verið góðviljaðir hver við annan, miskunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið yður.

Stutt svarvers

Lát mig heyra miskunn þína að morgni dags, * því að þér treysti ég.

Lát mig heyra miskunn þína að morgni dags, * því að þér treysti ég.

Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga.

Því að þér treysti ég.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lát mig heyra miskunn þína að morgni dags, * því að þér treysti ég.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Drottinn hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Tilbiðjum Krist, sem færði mannkyni frelsi með dauða sínum á krossi og segjum:Veit oss miskunn þína, Drottinn.Kristur, sól vor og dagur, lýs oss með geislum þínum,og allt illt hörfar.Leiðbein hugsunum vorum, orðum og verkum,svo að það sem vér gjörum í dag þóknist þér.Snú ásjónu þinni að syndum vorum,og hreinsa oss af allri sök.Veit oss huggun Heilags Anda,fyrir kross þinn og upprisu.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú eyðir myrkri fáfræðinnar með ljósi Orðs þíns. Auk styrk trúarinnar í hjörtum vorum, svo að freistingar slökkvi ekki eldinn, sem náð þín kveikti. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. JÓHANNESAR FRÁ CAPISTRANO, PRESTS

Guð, þú reistir hinn sæla Jóhannes til þess að hann huggaði trúaðan lýðinn í þrengingum. Vér biðjum, hald oss í öruggri vernd þinni og varðveit Kirkju þína í ævarandi friði. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Nú hverfi oss sviðinn úr sárumog sjatni öll beiskja í tárum,því dauðinn til lífsins oss leiðir,sjá, lausnarinn brautina greiðir.Þótt líkaminn falli að folduog felist sem stráið í moldu,þá megnar Guðs miskunnarkrafturaf moldum að vekja hann aftur.Í jörðinni sáðkornið sefur,uns sumarið ylinn því gefur.Eins Drottinn til dýrðar upp vekurþað duft, sem hér gröfin við tekur.Sá andi, sem áður þar gistifrá eilífum frelsara, Kristi,mun, leystur úr læðingi, bíðaþess líkams, sem englarnir skrýða.Og brátt mun sá konungur kalla,sem kemur að fylla von alla.Hann græðir á fegurri folduþau fræ, er hann sáði í moldu. Amen.

Sálmur 41

Andstef · Lækna sál mína, Drottinn, því að ég hef syndgað móti þér.

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum * á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.

3Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu * í landinu. Og eigi ofurselur sál hans græðgi óvina hans.

4Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur * breytir þú beð hans í hvílurúm.

5Ég sagði: „Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína * því að ég hefi syndgað móti þér.“

6Óvinir mínir biðja mér óbæna * „Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?“

7Og ef einhver kemur til þess að vitja mín * talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga.

8Allir hatursmenn mínir hvískra um mig * þeir hyggja á illt mér til handa:

9„Hann er altekinn helsótt * hann er lagstur og rís eigi upp framar.“

10Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti * sá er etið hefur af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér.

11En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur * að ég megi endurgjalda þeim.

12Af því veit ég, að þú hefur þóknun á mér * að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.

13Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og * lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu.

14Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lækna sál mína, Drottinn, því að ég hef syndgað móti þér.

Sálmur 46

Andstef · Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi.

1Til söngstjórans. Eftir * Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð.

2Guð er oss hæli og styrkur * örugg hjálp í nauðum.

3Fyrir því hræðumst vér eigi * þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.

4Látum vötnin gnýja og freyða * látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]

5Elfar–kvíslir gleðja Guðs borg * heilagan bústað Hins hæsta.

6Guð býr í henni, eigi mun hún bifast * Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.

7Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu * raust hans þrumaði, jörðin nötraði.

8Drottinn hersveitanna er með oss * Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

9Komið, skoðið dáðir Drottinn * hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.

10Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann * slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.

11„Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð * hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.“

12Drottinn hersveitanna er með oss * Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi.

Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni

Andstef · Allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, Drottinn.

3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.

4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, Drottinn.

Stuttur ritningarlestur

Rm 15, 1-3Skylt er oss, hinum styrku, að bera veikleika hinna óstyrku og hugsa ekki um sjálfa oss. Sérhver af oss hugsi um náungann og það sem honum er gott og til uppbyggingar. Kristur hugsaði ekki um sjálfan sig, heldur eins og ritað er: Lastyrði þeirra, sem löstuðu þig, lentu á mér.

Stutt svarvers

Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.

Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.

Hann gjörði oss að konungsríki og prestum, til handa Guði

með blóði sínu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Drottinn hefur tekið að sér oss, þjóna sína og minnst miskunnar sinnar.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn, vér biðjum þig, veit að fjölskylda þín læri af fordæmi þjáninga Sonar þíns, svo að vér getum axlað byrðar hans. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 88

Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

1Syngist með Makalat–lagi. Hemans–maskíl Esraíta.

2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga * um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

3Lát bæn mína koma fyrir þig * hneig eyra að hrópi mínu,

4því að sál mín er mett orðin af böli * og líf mitt nálægist Hel.

5Ég er talinn með þeim * sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.

6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni * er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.

7Þú hefur lagt mig í gryfju undirheima * í myrkrið niðri í djúpinu.

8Reiði þín hvílir á mér * og alla boða þína hefur þú látið skella á mér. [Sela]

9Þú hefur fjarlægt frá mér kunningja mína * gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,

10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig * Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.

11Gjörir þú furðuverk vegna látinna * eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela]

12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni * frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?

13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu * eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?

14En ég hrópa til þín, Drottinn * og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni * hylur auglit þitt fyrir mér?

16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku * ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.

17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig * ógnir þínar eyða mér.

18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn * lykja um mig allar saman.

19Þú hefur fjarlægt frá mér ástvini og * félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Jer 14, 9Þú ert mitt á meðal vor, Drottinn, og vér erum nefndir eftir nafni þínu. Yfirgef oss eigi!

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Almáttugi Guð, veit oss náð til að sameinast eingetnum Syni þínum, sem þoldi dauða og gröf, svo að vér fáum risið upp til nýs lífs ásamt honum, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007