Dagatal

Teresa frá Ávila mey og kirkjufræðari

Minningardagur um Teresu frá Ávila mey og kirkjufræðara.

Almennur kirkjutími · Vika 28

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ó, Guð, mér anda gefðu þinn,er glæðir kærleik, von og trú,og veit hann helgi vilja minn,svo vilji' eg það, sem elskar þú.Æ, lát hann stjórna lífi' og sál,að lifi' eg eins og kristnum ber,og öll mín hugsun, athöfn, mál,til æviloka helgist þér.Þig, sem hið góða gefur allt,ó, Guð, af hjarta bið ég nú:Við ótta þinn mér ætíð haltog elsku þína' og sanna trú.Minn greiði veg þín gæskan blíð,svo geti' eg trúr mitt runnið skeið,en þegar lyktar lífsins stríð,mér líkna þú í dauðans neyð.Að ég sé blessað barnið þitt,ég bið þinn andi vitni þá.Æ, heyr þú hjartans málið mitt,vor mildi faðir himnum á. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Drottinn, lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags.

Sálmur — Jes 66, 10-14a — Huggun og gleði í borginni helgu

Andstef · Drottinn mun veita velsæld til Jerúsalem eins og fljóti.

10Gleðjist með Jerúsalem og fagnið yfir henni * allir þér sem elskið hana! Kætist með henni, allir þér sem nú hryggist yfir henni,

11svo að þér megið sjúga og saddir verða við hugsvalandi brjóst hennar * svo að þér megið teyga og gæða yður við dýrðargnótt hennar.

12Því að svo segir Drottinn: Sjá, ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti * og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Þér skuluð liggja á brjóstum hennar og skuluð bornir verða á mjöðminni og yður skal hossað verða á hnjánum.

13Eins og móðir huggar son sinn * eins mun ég hugga yður. Í Jerúsalem skuluð þér huggaðir verða.

14Þér munuð sjá það, og hjarta yðar mun fagna og bein yðar blómgast sem grængresi. Hönd Drottins mun kunn verða á þjónum hans * og hann mun láta óvini sína kenna á reiði sinni.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn mun veita velsæld til Jerúsalem eins og fljóti.

Sálmur 147, 1-11

Andstef · Guði vorum hæfir lofsöngur.

1Hallelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum * því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.

2Drottinn endurreisir Jerúsalem * safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael.

3Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta * og bindur um benjar þeirra.

4Hann ákveður tölu stjarnanna * kallar þær allar með nafni.

5Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi * speki hans er ómælanleg.

6Drottinn annast hrjáða * en óguðlega lægir hann að jörðu.

7Syngið Drottni með þakklæti * leikið á gígju fyrir Guði vorum.

8Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni * lætur gras spretta á fjöllunum.

9Hann gefur skepnunum fóður þeirra * hrafnsungunum, þegar þeir kalla.

10Hann hefur eigi mætur á styrkleika hestsins * eigi þóknun á fótleggjum mannsins.

11Drottinn hefur þóknun á þeim er óttast hann * þeim er bíða miskunnar hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guði vorum hæfir lofsöngur.

Stuttur ritningarlestur

Rm 8, 18-21Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem á oss mun opinberast. Því að sköpunin þráir, að Guðs börn verði opinber. Sköpunin var undirorpin fallvaltleikanum, ekki sjálfviljug, heldur vegna hans, sem varp henni undir hann, í von um að jafnvel sjálf sköpunin muni verða leyst úr ánauð forgengileikans til dýrðarfrelsis Guðs barna.

Stutt svarvers

Ég hugsa um þig, Drottinn, * á næturvökunum.

Ég hugsa um þig, Drottinn, * á næturvökunum.

Því að þú ert mér fulltingi.

Á næturvökunum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég hugsa um þig, Drottinn, * á næturvökunum.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Veit þjóð þinni þekkingu á hjálpræðinu, Drottinn, og fyrirgef oss syndir vorar.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Sameinumst í lofsöngnum til Guðs Föður, sem hefur bjargað þjóð sinni og segjum:Þú ert líf vort, Drottinn.Blessaður sért þú, Guð og Faðir Drottins vors Jesú Krists, sem af miskunn þinni hefur endurfætt oss í lifandi von,með upprisu Jesú Krists frá dauðum.Þú skapaðir manninn í þinni mynd og endurnýjaðir hann í Kristi,lát oss samsvara fyrirmynd Sonar þíns.Úthell Heilögum Anda þínum í hjörtu vor,sem særð eru af öfund og hatri.Gef öllum í dag vinnu, næga fæðu og lífsgleði,öllum náð og hjálpræði.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Veit oss, Drottinn, djúpa þekkingu á leyndardómi hjálpræðisins, svo að vér séum án ótta og laus undan hendi óvina vorra og þjónum þér af trúfesti alla ævidaga vora. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. TERESU AF JESÚ, MEYJAR OG KIRKJUFRÆÐARA

Guð, þú örvaðir sæla Teresu með anda þínum, til þess að hún sýndi kirkjunni leiðina til þeirrar fullkomnunar sem henni er þörf. Gef oss að nærast ávallt af fæðu hinnar himnesku kenningar hennar og tendrast af þrá eftir hinum sanna heilagleika. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Þessi dagur nú úti er,en náttar tíð að höndum fer.Guð minn góður, ég gef mig þér,gættu nú enn í nótt að mér.Almáttug hönd og ásjá þínenn hefur náð og séð til mín.Lof sé þér, Guð, fyrir lán og hag,lífið, heilsu og vernd í dag.Ég vil ganga til náða nú,nú bið ég, Guð, mig geymir þú,vertu hér minni hvílu hjá,hjá mér vak þú og að mér gá.Veittu mér, Drottinn, værð og ró,vek mig í réttan tíma þó.Líkaminn sofi sætt sem ber,sálin og andinn vaki í þér.Svæfillinn minn og sængin mínsé önnur mjúka höndin þín,en aðra breið þú ofan á mig,er mér þá værðin rósamlig. Amen.

Sálmur 144 I

Andstef · Guð, miskunn mín og athvarf, á þig vona ég.

1Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt * sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

2Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari * skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

3Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann * mannsins barn, að þú gefir því gaum.

4Maðurinn er sem vindblær * dagar hans sem hverfandi skuggi.

5Drottinn, sveig þú himna þína og stíg niður * snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

6Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum * skjót örvum þínum og skelf þá.

7Rétt út hönd þína frá hæðum * hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

8Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð, miskunn mín og athvarf, á þig vona ég.

Sálmur 144 II

Andstef · Sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði.

9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng * ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

10Þú veitir konungunum sigur * hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

11Hríf mig burt og bjarga mér af hendi útlendinganna. Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

12Synir vorir eru sem þroskaðir teinungar í æsku sinni * dætur vorar sem hornsúlur, úthöggnar í hallarstíl.

13Hlöður vorar eru fullar og veita afurðir af hverri tegund * fénaður vor getur af sér þúsundir, verður tíþúsundfaldur á haglendum vorum,

14uxar vorir klyfjaðir * ekkert skarð og engir hernumdir og ekkert óp á torgum vorum.

15Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir * sæl er sú þjóð, sem á Drottni að Guði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Nú er komið hjálpræðið og ríki Guðs vors.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Nú er komið hjálpræðið og ríki Guðs vors.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Kól 1, 23Standið stöðugir í trúnni, grundvallaðir og fastir fyrir og hvikið ekki frá von fagnaðarerindisins, sem þér hafið heyrt og prédikað hefur verið fyrir öllu, sem skapað er undir himninum.

Stutt svarvers

Drottinn er minn hirðir, * mig mun ekkert bresta.

Drottinn er minn hirðir, * mig mun ekkert bresta.

Á grænum grundum lætur hann mig hvílast.

Mig mun ekkert bresta.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er minn hirðir, * mig mun ekkert bresta.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Þá sem hungraði eftir réttlæti hefur Drottinn mettað og fyllt gæðum.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Tak mildilega, Drottinn, við þessari kvöldbæn vorri og gef oss sem af þolgæði fetum í fótspor Sonar þíns, að bera ávexti góðra verka. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007