Ummyndun Drottins
Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.
Almennur kirkjutími · Vika 18Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Daníel 7:9-10, 13-14
- Davíðssálmur
- Sálmur 97:1-2, 5-6, 9
- 2. lesning
- 2. Pétursbréf 1:16-19
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 17:1-9
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Fyrst var jörðin auð,þá var dimmt og kalt.Guð lét verða ljósog það lýsti allt.Upp úr hafi steigallt hið þurra land,bylgjur féllu að,bára lék við sand.Og hið fyrsta voróx hið fyrsta trégrænt í morgundögg,veitti skjól og hlé.Vindur, sól og regn,stjörnur, tungl og ský,fiskur, maur og fuglfagna yfir því.Manninn gjörði Guð,bæði meyju´ og svein.Annast sköpun hans.Gjöra engu mein.Guð, ég þakka þérað þú gjörðir mig.Líf mitt, leik og söngláttu tigna þig. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Í dag skein Jesús Kristur í dýrð á fjallinu; ásjóna hans var sem sólin og klæði hans urðu hvít eins og snjórinn.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Í dag skein Jesús Kristur í dýrð á fjallinu; ásjóna hans var sem sólin og klæði hans urðu hvít eins og snjórinn.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Í dag ummyndaðist Drottinn og rödd Föðurins vitnaði um hann; Móse og Elía birtust með honum í dýrð og töluðu við hann um dauðann sem beið hans.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Í dag ummyndaðist Drottinn og rödd Föðurins vitnaði um hann; Móse og Elía birtust með honum í dýrð og töluðu við hann um dauðann sem beið hans.
Sálmur 149
Andstef · Lögmálið var gefið fyrir Móse og spádómsgáfan fyrir Elía. Geislandi af hinni guðdómlegu tign sáust þeir á tali við Drottin.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lögmálið var gefið fyrir Móse og spádómsgáfan fyrir Elía. Geislandi af hinni guðdómlegu tign sáust þeir á tali við Drottin.
Stuttur ritningarlestur
Opb 21, 10. 23Engillinn flutti mig í anda upp á mikið og hátt fjall og sýndi mér borgina helgu, Jerúsalem, sem niður steig af himni frá Guði. Og borgin þarf ekki heldur sólar við eða tungls til að lýsa sér, því að dýrð Guðs skín á hana og Lambið er lampi hennar.
Stutt svarvers
Drottinn, þú krýndir hann með sæmd og heiðri. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, þú krýndir hann með sæmd og heiðri. * Hallelúja, hallelúja.
Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, þú krýndir hann með sæmd og heiðri. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Rödd úr björtu skýi sagði: Þessi er minn elskaði Sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Í nærveru lærisveina sinna var Frelsari vor ummyndaður með undursamlegum hætti á Taborfjalli. Biðjum til hans með djörfung:Drottinn, megum vér í þínu ljósi sjá ljós.Faðir miskunnar, þú gjörðir þinn himneska Son dýrlegan og opinberaðir sjálfan þig í björtu skýinu,gef að vér megum hlýða í trú á orð Krists.Guð, þú hefur fyllt þinn útvalda lýð gæsku húss þíns,gef að vér megum ávallt finna uppsprettu lífs vors í líkama Krists.Guð, þú hefur hrakið myrkrið á brott með ljósi þínu og úthellt því í hjörtu vor til að vér megum líta á geislandi ásjónu Jesú Krists,nærðu oss á þeirri þrá að íhuga Son þinn elskaðan.Guð, samkvæmt fyrirætlun þinni hefur þú kallað oss til heilagleika með náðargjöf þinni sem þú opinberaðir í Jesú Kristi,sýndu öllum mönnum, fyrir fagnaðarboðskap, hina dýrlegu tign eilífs lífs.Ástríki Faðir, þú elskar oss það mikið að vér erum kölluð börn Guðs,þegar Kristur kemur lát oss vera lík honum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, fyrir vitnisburð feðranna hefur þú staðfest leyndardóma trúarinnar við dýrlega ummyndun þíns eingetna Sonar. Þú hefur þegar undursamlega boðað að vér erum fullkomlega kjörbörn þín. Veit oss þjónum þínum að vér heyrum rödd þíns elskaða Sonar og verðskuldum að verða samerfingjar hans. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Þú heimsins ljós, Guðs ljómi skær,ó, lýs þú, Kristur, fjær og nær,leið alla týnda til þín heimog tak í náð á móti þeim.Lát alla, sem ei þekkja þig,og þá, sem villast, átta sig,frá birtu þinni bjarma fáog blessun finna, marki ná.Vek, hirðir góði, hverja sál,sem hyllir blekking, lokkar tál,og hverja sjúka, sára öndþín sefi mjúka læknishönd.Lát eyrun daufu opnast þér,ljúk upp þeim hug, sem byrgður er,svo hjartað finni frelsi sittog friðinn eina, ríki þitt.Gef blindum augum bót og sýn,að birtist öllum náðin þín,ger alla menn að einni hjörðí einni trú á nýrri jörð.Svo verði allir eitt í þér,sem allra synd og raunir ber,eins hér á jörð sem himnum á,þú hjartans sanna von og þrá. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Jesús tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes bróður hans og fór með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jesús tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes bróður hans og fór með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra.
Sálmur 121
Andstef · Yfir þá skyggði bjart ský og rödd úr skýinu sagði: Þessi er minn elskaði Sonur sem ég hef velþóknun á.
1Helgigönguljóð Ég hef augu mín til fjallanna * Hvaðan kemur mér hjálp?
2Hjálp mín kemur frá Drottni * skapara himins og jarðar.
3Hann mun eigi láta fót þinn skriðna * vörður þinn blundar ekki.
4Nei, hann blundar ekki og sefur ekki * hann, vörður Ísraels.
5Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér * hann er þér til hægri handar.
6Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein * né heldur tunglið um nætur.
7Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu * hann mun vernda sál þína.
8Drottinn mun varðveita útgöngu þína og * inngöngu héðan í frá og að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Yfir þá skyggði bjart ský og rödd úr skýinu sagði: Þessi er minn elskaði Sonur sem ég hef velþóknun á.
Sálmur — 1 Tm 3, 16 — Leyndarðómur Krists og dýrð
Andstef · A leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim og mælti: Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum, hallelúja.
16Og víst er leyndardómur guðhræðslunnar mikill: Hann opinberaðist í holdi, var réttlættur í anda * birtist englum, var boðaður með þjóðum, var trúað í heimi, var hafinn upp í dýrð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · A leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim og mælti: Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 16-17Sjálfur Andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn. En ef vér erum börn, þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar Guðs, en samarfar Krists, því að vér líðum með honum, til þess að vér einnig verðum vegsamlegir með honum.
Stutt svarvers
Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, * hallelúja, hallelúja.
Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, * hallelúja, hallelúja.
Máttur og prýði í helgidómi hans.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þegar lærisveinarnir heyrðu rödd úr skýinu, féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: Rísið upp og óttist ekki! Hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, fyrir vitnisburð feðranna hefur þú staðfest leyndardóma trúarinnar við dýrlega ummyndun þíns eingetna Sonar. Þú hefur þegar undursamlega boðað að vér erum fullkomlega kjörbörn þín. Veit oss þjónum þínum að vér heyrum rödd þíns elskaða Sonar og verðskuldum að verða samerfingjar hans. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 16
Andstef · Líkami minn hvílist í friði.
1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.
2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“
3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.
4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.
5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.
6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.
7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.
8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.
9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,
10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.
11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Líkami minn hvílist í friði.
Stuttur ritningarlestur
1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007