Símon Pétur, þjónn og postuli Jesú Krists, til þeirra, sem hlotið hafa jafndýrmæta trú og vér fyrir réttlæti Guðs vors og frelsara Jesú Krists;
náð og friður margfaldist yður til handa með þekkingu á Guði og Jesú drotni vorum.
Þar eð hans guðdómlegi máttur hefir veitt oss alt, sem heyrir til lífs og guðrækni með þekkingunni á þeim, sem kallaði oss með sinni eigin dýrð og dáð,
og með því hefir hann veitt oss hin dýrmætu og stórmiklu fyrirheit, til þess að þér fyrir þau skylduð verða hluttakandi í guðlegu eðli, er þér hafið komist undan girndaspillingunni, sem er í heiminum,
þá leggið einmitt þessa vegna alla stund á þetta, og auðsýnið í trú yðar dygðina, en í dygðinni þekkinguna,
en í þekkingunni bindindið, en í bindindinu þolgæðið, en í þolgæðinu guðræknina,
en í guðrækninni bróðurelskuna, en í bróðurelskunni kærleikann.
Því að ef þessir hlutir eru hjá yður og fara vaxandi, munu þeir ekki láta yður vera iðjulausa né ávaxtarlausa í þekkingu Drottins vors Jesú Krists;
því að sá, sem ekki hefir þessa hluti, er blindur í skammsýni sinni, er hann hefir gleymt hreinsun hinna fyrri synda sinna.
Kostið þess vegna því fremur kapps um, bræður, að gjöra köllun yðar og útvalningu vissa; því ef þér gjörið þetta, munuð þér ekki nokkuru sinni hrasa;
því að á þann hátt mun yður ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors og frelsara Jesú Krists.
Þess vegna ætla eg mér ávalt að áminna yður um þetta, þótt þér vitið það og þér standið stöðugir í þeim sannleika, sem hjá yður er.
Og eg álít það rétt, á meðan eg er í þessari tjaldbúð, að vekja yður með áminningu,
því að eg veit, að þess er skamt að bíða að tjaldbúð minni verði svift, eins og sjálfur Drottinn vor Jesús Kristur birti mér;
og eg vil einnig leggja kapp á, að þér ætíð eftir burtför mína getið minst þessara hluta.
Því að ekki fylgdum vér spaklega uppspunnum skröksögum, er vér kunngjörðum yður mátt og tilkomu Drottins vors Jesú Krists, heldur vorum vér sjónarvottar að hátign hans,
því að hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð, þá er þvílík raust barst honum frá hinni hátignarfullu dýrð: »Þessi er sonur minn, hinn elskaði, sem eg hefi velþóknun á«.
Og þessa raust heyrðum vér sjálfir koma frá himni, þá er vér vorum með honum á fjallinu helga.
Og vér höfum því meiri vissu fyrir hinu spámannlega orði, og þér breytið vel, ef þér gefið gaum að því eins og lampa, sem skín á myrkum stað, þangað til dagur ljómar og morgunstjarna rennur upp í hjörtum yðar.
Vitið það umfram alt, að enginn ritningar-spádómur verður þýddur af sjálfum sér.
Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn frá Guði bornir af heilögum anda.