Dagatal

Þriðjudagur í 12. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 12

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Allrar veraldar vegurvíkur að sama punkt,fetar þann fús sem tregur,hvort fellur létt eða þungt.Hvorki fyr'ir hefð né valdihopar dauðinn eitt strik,fæst síst með fögru gjaldifrestur um augnablik,allt hann að einu gildir,þótt illa líki' eða vel,bón ei né bræði mildirhans beiska heiftarþel.Menn vaða' í villu og svíma,veit enginn neitt um það,hvernig, á hverjum tímaeða hvar hann kemur að.Einn vegur öllum greiðirinngang í heimsins rann,margbreyttar líst mér leiðirliggi þó út þaðan.Afl dauðans eins nam krenkjaalla í veröld hér.Skal ég þá þurfa að þenkja,hann þyrmi einum mér?Adams er eðli runniðí mitt náttúrlegt hold,ég hef þar og til unniðaftur að verða mold. Amen.

Sálmur 101

Andstef · Ég lofsyng þér, Drottinn, ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda.

1Ég vil syngja um miskunn og rétt * lofsyngja þér, Drottinn.

2Ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda * hvenær kemur þú til mín? Í grandvarleik hjartans vil ég ganga um í húsi mínu.

3Ég læt mér eigi til hugar koma neitt níðingsverk. Ég hata þá sem illa breyta * þeir fá engin mök við mig að eiga.

4Rangsnúið hjarta skal frá mér víkja * ég kannast eigi við hinn vonda.

5Rægi einhver náunga sinn í leyni * þagga ég niður í honum. Hver sem er hrokafullur og drembilátur í hjarta, hann fæ ég ekki þolað.

6Augu mín horfa á hina trúföstu í landinu * að þeir megi búa hjá mér. Sá sem gengur grandvarleikans vegu, hann skal þjóna mér.

7Enginn má dvelja í húsi mínu * er svik fremur. Sá er lygar mælir stenst eigi fyrir augum mínum.

8Á hverjum morgni þagga ég niður í öllum óguðlegum * í landinu. Ég útrými úr borg Drottins öllum illgjörðamönnum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég lofsyng þér, Drottinn, ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda.

Sálmur — Dn 3, 26. 27a. 29. 34-41 — Bæn Asarja í eldsofninum

Andstef · Lát miskunn þína eigi hverfa frá oss, Drottinn.

26„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra * og nafn þitt er lofs vert og dýrlegt að eilífu.

27Því að réttlátur ert þú í öllu, sem þú hefur oss gjört * og öll verk þín eru sönn og vegir þínir réttir og allir dómar þínir sannir.

29Því að vér höfum syndgað og drýgt ranglæti og horfið frá þér * og vér höfum brotið í öllu

34Ofursel oss eigi að eilífu, vér biðjum þig * sakir nafns þíns, og ógild eigi sáttmála þinn.

35Og tak eigi miskunn þína frá oss sakir Abrahams * þíns elskaða, og Ísaks, þjóns þíns, og Ísraels, þíns heilaga,

36sem þú talaðir við og hést því * að þú mundir margfalda niðja þeirra sem stjörnur himinsins og sem sand, er á sjávarströnd er.

37Því að vér, Drottinn, erum orðnir færri en nokkur þjóð og * niður lægðir á allri jörðunni á þessum degi sakir synda vorra.

38Og eigi er á þessum tíma höfðingi né leiðtogi né spámaður né * brennifórn né sláturfórn né matfórn né reykelsi né staður frumgróða frammi fyrir þér,

39að vér mættum finna miskunn þína * en með iðrandi hjarta og auðmjúkum anda látum oss þegna verða.

40Eins og í brennifórnum hrúta og nauta og eins og í þúsundum feitra lamba, svo verði fórn vor gjörð í augsýn þinni í dag * að hún megi þér þóknast; því að engin skömm er þeim, sem á þig treysta.

41Og nú fylgjum vér þér af öllu hjarta * og vér óttumst þig og leitum ásjónu þinnar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lát miskunn þína eigi hverfa frá oss, Drottinn.

Sálmur 144, 1-10

Andstef · Guð, ég vil syngja þér nýjan söng.

1Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt * sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

2Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari * skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

3Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann * mannsins barn, að þú gefir því gaum.

4Maðurinn er sem vindblær * dagar hans sem hverfandi skuggi.

5Drottinn, sveig þú himna þína og stíg niður * snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

6Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum * skjót örvum þínum og skelf þá.

7Rétt út hönd þína frá hæðum * hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

8Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng * ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

10Þú veitir konungunum sigur * hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð, ég vil syngja þér nýjan söng.

Stuttur ritningarlestur

Jes 55, 1Heyrið, allir þér sem þyrstir eruð, komið hingað til vatnsins, og þér sem ekkert silfur eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaupið korn án silfurs og endurgjaldslaust bæði vín og mjólk!

Stutt svarvers

Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.

Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.

Á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

Á orð þitt vona ég.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, úr höndum allra, er hata oss.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð hefur gefið oss á þessum morgni gleðina, sem fylgir því að lofa hann. Með endurnýjaðri von biðjum vér til hans og segjum fyllt trausti:Heyr oss, vegna dýrðar nafns þíns, Drottinn.Vér færum þér þakkir, Guð og Faðir Drottins vors Jesú Krists,fyrir þekkinguna og ódauðleikann sem þú gafst oss í Syni þínum.Veit oss auðmýkt hjartans,þannig að vér séum hvert öðru undirgefin í ótta Krists.Gef fjölskyldu þinni Anda þinn,svo að bróðurkærleikur vor sé heill og hreinskiptinn.Þú sem boðaðir að maðurinn skyldi með vinnu sinni gjöra sér sköpunina undirgefna,gef að störf vor séu þér til dýrðar og helgi meðbræður vora.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum þig, Drottinn: Auk í oss gjöf trúarinnar, svo að lofgjörð vor sé fullkomin og beri ávöxt er vari. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Jesús Kristur, lífsins ljómi,leysti oss frá sekt og dómi,þoldi háðung, þraut og kross,það var gjaldið hans til lausnar oss.Að vér sjá og muna megummiskunn þá og líf hans eigum,býr hann oss sitt borð og erbrauði með og kaleik sjálfur hér.Komum til hans, krjúpum niður,Kristur er vort líf og friður,alla kallar elskan hans,athvarf, líkn og frelsi syndugs manns.Lofum hann, sem heiminn leysti,hjartað játi, elski, treystiföðurnáð, sem frelsar ossfyrir Jesú heilagt blóð og kross.Kristur mettar, Kristur svalar,kærleiksríkur við oss talar,hverjum þeim, sem byrði ber,býður hann að þiggja frið hjá sér. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Elísabet, kona Sakaría, ól merkan mann, Jóhannes skírara, sem greiddi götu Drottins.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Elísabet, kona Sakaría, ól merkan mann, Jóhannes skírara, sem greiddi götu Drottins.

Sálmur 146

Andstef · Gömul og barnlaus hjón fæddu Jóhannes, fyrirrennara Drottins.

1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!

2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.

4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.

5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,

8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Gömul og barnlaus hjón fæddu Jóhannes, fyrirrennara Drottins.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri er en Jóhannes skírari.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri er en Jóhannes skírari.

Stuttur ritningarlestur

P 13, 23-25Af kyni Davíðs sendi Guð Ísrael frelsara, Jesú, samkvæmt fyrirheiti. En áður en hann kom fram, boðaði Jóhannes öllum Ísraelslýð iðrunarskírn. Þegar Jóhannes var að enda skeið sitt, sagði hann: Hvern hyggið þér mig vera? Ekki er ég hann. Annar kemur eftir mig, og er ég eigi verður þess að leysa skó af fótum honum.

Stutt svarvers

Greiðið veg Drottins, * gjörið beinar brautir hans.

Greiðið veg Drottins, * gjörið beinar brautir hans.

Sá sem kemur eftir mig, var á undan mér.

Gjörið beinar brautir hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Greiðið veg Drottins, * gjörið beinar brautir hans.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Sakaría gekk inn í musteri Drottins og birtist honum engillinn Gabríel, sem stóð hægra megin við reykelsisaltarið.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú kallaðir hinn sæla Jóhannes skírara til að búa Kristi Drottni altygjaðan lýð. Gef lýð þínum náð andlegrar gleði og bein hugum allra trúaðra á veg sáluhjálpar og friðar. Sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007