Síðari Konungabók 19Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 19

Og er Hiskía konungur heyrði þetta, reif hann klæði sín, huldi sig hærusekk og gekk í hús Drottins.

En Eljakím dróttseta og Sébna kanzlara og prestaðldungana sendi hann klædda hærusekk til Jesaja spámanns Amozsonar,

Og skyldu þeir segja við hann: svo segir Hiskía: Þessi dagur er neyðar, hirtingar og háðungardagur; þv! að barnið er komið í burðarliðinn, en krafturinn er enginn til að fæða:

Vera má að Drottinn, Guð þinn, heyri öll orð Rabsake, er sendur er af Assýríu-konungi, herra sínum, til að spotta hinn lifandi Guð, og láb hegnt verða þeirra orða, er Drottinn, Guð þinn, hefir heyrt. En bið þú fyrir leifunum, sem enn eru eftir.

En er þjónar Hiskía konungs komu til Jesaja,

Þá sagði Jesaja við þá: Segið svo herra yðar: Svo segir Drottinn: Óttast þú eigi smánaryrði þau, er þú hefir heyrt sveina Assýríu-konungs láta sér um munn fara í gegn mér.

Sjá, eg læt hann verða þess hugar, að þegar hann spyr tíðindi, skal hann hverfa aftur heim í land sitt, og þá skal eg láta hann fyrir sverði falla í sínu eigin landi.

Síðan sneri Rabsake aftur og hitti Assýríu-konung, þar sem hann sat um Líbna, því að hann hafði frétt, að hann væri farinn burt frá Lakís.

Þar kom honum svolátandi fregn af Tírhaka Blálands-konungi: Hann er lagður af stað til þess að berjast við þig. Gjörði hann þá aftur sendimenn til Hiskía með þessari orðsending:

Segið svo Hiskía Júda-konungi: Lát eigi Guð þinn, er þú treystir á, tæla þig, Er þú hugsar: Jerúsalem verður eigi seld í hendur Assýríu-konungi.

þú hefir sjálfur heyrt, hverju Assýríu-konungar hafa fram farið við Sr lönd, hversu þeir hafa gjöreytt þau, og munt þú þá frelsaður verða,

Hvort hafa guðir þjóðanna, er feður mínir hafa að velli lagt, frelsað þær — Gósan og Haran og Resef og Edenmenn, sem voru í Telessar?

Hvar er nú konungurinn í Hamat og konungurinn í Arpad og konungurinn í Sefarvaímborg, Hena og Íva?

Hiskía tók við bréfinu af sendimönnunum og las það. Síðan gekk hann upp í hús Drottins; og Hiskía rakti það sundur frammi fyrir Drottni.

Og Hiskía gjörði bæn sína frammi fyrir Drottni og sagði: Drottinn, Ísraels Guð, þú sem situr uppi yfir kerúbunum, þú einn ert Guð yfir öllum konungsríkjum jarðar, þú hefir gjört himin og jörð.

Hneig, Drottinn, eyra þitt og heyr; opna, Drottinn, auga þitt og sjá! Heyr þú orð Sanheríbs, er hann hefir sent til að smána með hinn lifandi Guð.

Satt er það, Drottinn, að Assýríu-konungar hafa gjöreytt öllum þjóðum og löndum þeirra,

og kastað guðum þeirra á eld, því að þeir voru ekki guðir, heldur handaverk manna, stokkar og steinar, svo að þeir gátu gjört þá að engu.

En Drottinn, Guð vor, frelsa oss nú af hans hendi, svo að öll konungsríki jarðar megi við kannast, að þú, Drottinn, einn ert Guð!

Þá sendi Jesaja Amozson til Hiskía og lét segja honum: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Þar sem þú hefir beðið til mín um hjálp gegn Sanheríb Assýríu-konungi, þá hefi eg heyrt það.

Þetta er orðið, er Drottinn hefir um hann sagt: Mærin, dóttirin Zíon, fyrirlítur þig og gjörir gys að þér; dóttirin Jerúsalem skekur höfuðið á eftir þér.

Hvern hefir þú smánað og spottað og gegn hverjum hefir þú hafið upp raustina og lyft augum þínum í hæðirnar? Gegn hinum Heilaga í Ísrael.

Þú hefir látið sendimenn þína smána Drottin og sagt: »Með fjölda hervagna minna steig eg upp á hæðir fjallanna, efst upp á Líbanon-fjall; eg hjó hin hávöxnu sedrustré þess og hin ágætu kýprestré þess; eg brauzt upp í efsta herbergi þess, inn í aldinskóginn, þar sem hann var þéttastur.

Eg gróf til vatns og drakk útlent vatn, og með iljum fóta minna þurkaði eg upp öll vatnsföll Egiptalands«.

Hefir þú þá ekki tekið eftir því, að eg hefi ráðstafað þessu svo fyrir löngu og hagað því svo fyrir öndverðu? Og nú hefi eg látið það koma fram, svo að þú mættir leggja víggirtar borgir í eyði og gjöra þær að eyðilegum grjóthrúgum.

En íbúar þeirra voru aflvana og skelfdust því og urðu sér til minkunar; jurtir vallarins og grængresið varð sem gras á þekjum og í hlaðvarpa.

Eg sé þig þegar þú stendur og þegar þú situr, og eg veit af því, þegar þú fer og kemur, svo og um ofsa þinn gegn mér.

Sökum ofsa þíns í gegn mér og af því að ofmetnaður þinn er kominn mér til eyrna, þá vil eg setja hring minn í nasir þínar og bitil minn í munn þér og færa þig aftur sama veg og þú komst.

Og þetta skalt þú til marks hafa: Þetta árið munuð þér eta sjálfsáið korn, annað árið sjálfvaxið korn, en þriðja árið munuð þér sá og uppskera, planta víngarða og eta ávöxtu þeirra.

Og leifarnar af Júda húsi, sem komist hafa undan, skulu að nýju festa rætur að neðan og bera ávöxt að ofan.

Því að frá Jerúsalem munu leifar út ganga og þeir, er undan komust, frá Zíon-fjalli; vandlæti Drottins hersveitanna mun þessu til vegar koma.

Fyrir því segir Drottinn svo um Assýríu-konung: Eigi skal hann inn komast í þessa borg, engri ör þangað inn skjóta, engan herskjöld að henni bera og engan virkisvegg hlaða gegn henni.

Hann skal aftur snúa sömu leiðina sem hann kom, og inn í þessa borg skal hann ekki koma, segir Drottinn.

Og eg vil vernda þessa borg, til þess að frelsa hana, mín vegna og vegna Davíðs þjóns míns.

En þessa sömu nótt fór engill Drottins og laust hundrað áttatíu og fimm þúsundir manns í herbúðum Assýringa; og er menn risu á morguninn eftir, sjá, þá voru þeir allir liðin lík.

Þá tók Sanherib Assýríu-konungur sig upp, hélt af stað og sneri heim aftur og sat um kyrt í Níníve.

En er hann eitt sinn baðst fyrir í hofi Nísroks, guðs síns, unnu synir hans, Adramelek og Sarezer, á honum með sverði; þeir komust undan á flótta til Ararat-lands, en Asharaddon sonur hans tók ríki eftir hann.