Síðari Konungabók 18Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 18

En á þriðja ríkisári Hósea Elasonar Ísraels-konungs tók rík Hiskía Akasson Júda-konungs.

Hann var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Abía Sakaríadóttir.

Og hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins, að öllu svo sem gjört hafði Davíð forfaðir hans.

Hann afnumdi hæðirnar, braut merkissteinana; hjó í sundur aséruna og mölvaði eirorminn, þann er Móse hafði gjöra látið, því að alt til þess tíma höfðu Ísraelsmenn fært honum reykelsisfórnir og var hann nefndur Nehústan.

Hann treysti Drottni, Ísraels Guði, svo að efð! hann var enginn honum líkur meðal allra Júda-konunga, og eigi heldt, neinn þeirra, er á undan honum höfðu verið.

Hann hélt sér fast við Drottin, veik eigi frá honum og varðveitti boðorð hans, þau er Drottinn hafði lagt fyrir Móse.

Og Drottinn var með honum; í öllu því, er hann tók sér fyrir hendur, var hann lánsamur. Og hann brauzt undan Assýríu-konungi og var ekki lengur lýðskyldur honum.

Hann vann og sigur á Filistum alla leið til Gasa og eyddi landið umhverfis hana, jafnt varðmannaturna sem víggirtar borgir.

En á fjórða ríkisári Hiskía konungs — það er á sjöunda ríkisaó Hósea Elasonar ísraels-konungs — fór Sahnaneser Assýríu-konungur herför gegn Samaríu og settist um hana.

Unnu þeir hana eftir þrjú ár; á sjötta ríkisári Hiskía — það er á níunda ríkisári Hósea Ísraels-konungs, — var Samaría unnin.

Og Assýríu-konungur herleiddi Ístael til Assýríu og lét þá setjast að í Hafa og við Habór, fljótið í Gósan, og í borgum Meda,

af því að þeir höfðu ekki hlýtt raustu Drottins, Guðs þeirra, heldur rofið sáttmála hans, alt það er Móse, þjónn Drottins, hafði boðið. Þeir höfðu hvorki hlýtt því né breytt eftir því. Herför Sanheribs til Jerúsalem.

Á fjórtánda ríkisári Hiskía konungs fór Sanherib Assýríu-konllllgur herför gegn öllum víggirtum borgum í Júda og vann þær.

Þá sendi Hiskía Júda-konungur til Assýríu-konungs til Lakís og lét segja honum: Eg hefi syndgað, far aftur burt frá mér; mun eg greiða þér slíkt gjald, er þú á mig leggur. Þá lagði Assýríu-konungur þrjú hundruð talentur silfurs og þrjátíu talentur gulls á Hiskía Júda-konung.

Greiddi þá Hiskía alt silfur, er til var í musteri Drottins og fjárhirzlum konungshallarinnar.

Um þær mundir tók Hiskía gullið af dyrunum Í musteri Drottins og af dyrustöfunum, er Hiskía Júda-konungur hafði mt þá með, og fékk Assýríu-konungi.

Þá sendi Assýríu-konungur fita, Rabsarís og Rabsake með miklu liði frá Lakís til Jerúsalem á Hiskía konungs. Fóru þeir og komu til Jerúsalem og námu hr hjá vatnstokknum úr efri tjörninni, sem er við veginn út á Ey;

Og er þeir komu á fund konungs, þá gengu þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanzlari og Jóak Asafsson sagnameistari út til þeirra.

Og Rabsake mælti til þeirra: Segið Hiskía: Svo segir hinn mikli konungur, Assýríu-konungur: Hvert það athvarf, er þú treystir á?

Þú hyggur víst að munnfleiprið eitt sé næg ráðagerð og liðstyrkur til hernaðar. Á hvern treystir þú þá svo, að þú skulir hafa gjört uppreisn í gegn mér?

Nú, þú treystir þá á þennan brotna reyrstaf, á Egiptaland; en hann stingst upp í höndina á hverjum þeim, er við hann styðst, og fer í gegnum hana. Slíkur er Faraó Egiptalands-konungur öllum þeim, er á hann treysta.

Og ef þér segið við mig: »Vér treystum á Drottin, Guð vorn«, eru það þá ekki fórnarhæðir hans og ölturu, sem Hiskía hefir numið burt, er hann sagði við Júda og Jerúsalem: Fyrir þessu altari skuluð þér fram falla í Jerúsalem?

Kom tl og veðja við herra minn, Assýríu-konunginn: Eg nr þér tvö Þúsund hesta, ef þú getur sett riddara á þá.

Hvernig munt þú fá rekið af höndum þér einn höfuðsmann meðal hinna minstu þjóna herra míns? Og þó treystir þú á Egiptaland vegna hervagnanna og riddaranna!

Hvort mun eg nú hafa farið til þessa staðar án vilja Drottins, til þess að eyða hann? Drottinn sagði við mig: »Far þú inn í þetta land og eyð það«.

Þá sögðu þeir Eljakím Hilkíason, Sébna og Jóak við Rabsake: Tala þú við þjóna þína á sýrlenzku, því að vér skiljum hana; en tala eigi við oss á Júda-tungu í áheyrn fólksins, sem uppi er á borgarveggnum.

En Rabsake sagði við þá: Hefir herra minn sent mig til herra þíns eða til þín, til þess að flytja þetta erindi? Hefir hann ekki sent mig til þeirra manna, sem þar sitja uppi á borgarveggnum og eiga þann kost fyrir höndum ásamt yður, að eta sinn eigin saur og drekka þvag sitt?

’á gekk Rabsake fram og kallaði hárri röddu á Júda-tungu, tók til máls og sagði: Heyrið orð hins mikla konungs, Assýríu-konungs!

Svo segir konungurinn: Látið eigi Hiskía tæla yður, því að hann fær ekki frelsað yður af hans hendi.

Og látið eigi Hiskía koma yður til að treysta á Drottin með því að segja: »Drottinn mun vissulega frelsa oss, og þessi borg skal ekki verða Assýríu-konungi í hendur seld«.

IUustið eigi á Hiskía! Því að svo segir Assýríukonungur: Gjörið frið við mig og gangið mér á hönd, þá skal hveiti yðar mega eta af sínum vínviði og sínu fíkjutré og hver yðar drekka vatn úr sínum brunni,

þar til er eg kem og flyt yður í annað eins land og yðar land, í kornland og aldinlagar, í brauðland og víngarða, í olíuviðarland og hunangs, svo að þér megið lifa og eigi deyja. Hlustið því eigi á Hiskía! Því að hann ginnir yður, er hann segir: »Drottinn mun frelsa oss«.

Hefir þá nokkur af guðum þjóðanna frelsað land sitt undan hendi Assýríu-konungs?

Hvar eru guðir Hamafborgar og Arpadborgar? Hvar eru guðir Sefarvaím, Hena og fva? og hafa þeir frelsað Samaríu undan minni hendi?

Hverjir eru þeir af öllum guðum landanna, er frelsað hafi lönd sín undan minni hendi, svo að Drottinn skyldi fá frelsað Jerúsalem undan minni hendi?

En lýðurinn þagði og svaraði honum engu orði, því að skipun konungs var þessi: Svarið honum eigi.

En þeir Eljakím Hilkíason dróttsel, Sébna kanzlari og Jóak Asafsson sagnameistari gengu á fund Hiskið með sundurrifnum klæðum og fluttu honum orð Rabsake.