Síðari Konungabók 17Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 17

Á tólfta ríkisári Akasar Júda-konungs varð Hósea Elason konungur í Samaríu yfir Ísrael og ríkti níu ár.

Hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, þó ekki eins og Ísraels-konungar þeir, er verið höfðu á undan honum.

Salmaneser Assýríu-konungur fór herför í móti honum, og varð Hósea lýðskyldur honum og galt honum skatt.

En er Assýríu-konungur varð þess var, að Hósea bjó yfir svikum við hann, þar sem hann gjörði menn á fund Seve Egiptalands-konungs og greiddi Assýríu-konungi eigi framar árlega skattinn, eins og verið hafði, — þá tók Assýríu-konungur hann höndum og lét fjötra hann í dýflissu.

Og Assýríu-konungur herjaði landið alt og fór til Samaríu og sat um hana í þrjú ár.

En á níunda ríkisári Hósea vann Assýríu-konungur Samaríu og herleiddi Ísrael til Assýríu. Fékk hann þeim bústað í Hala og við Habór, fljótið í Gósan, og í borgum Meda.

En þannig fór, af því að Ísraelsmenn höfðu syndgað gegn Drottni, Guði sínum, þeim er leiddi þá út af Egiptalandi, undan valdi Faraós Egiptalands-konungs, og dýrkað aðra guði.

Þeir fóru og að siðum þeirra þjóða, er Drottinn hafði stökt burt undan Ísraelsmönnum, og að siðum Ísraels-konunga, er þeir sjálfir höfðu sett.

Þá fundu og Ísraelsmenn það upp, er rangt var gagnvart Drottni, Guði þeirra, og bygðu sér hæðir í öllum borgum sínum, jafnt varðmannaturnum sem víggirtum borgum;

þeir reistu sér merkissteina og asérur á öllum háum hólum og undir hverju grænu tré,

og fórnuðu þar reykelsisfórnum á öllum hæðum, eins og þjóðirnar, er Drottinn hafði rekið burt undan þeim; aðhöfðust þeir það sem ilt var, til þess að egna Drottinn til reiði.

Og þeir dýrkuðu skurðgoð, er Drottinn hafði sagt um við þá: Þér skuluð eigi gjöra slíkt.

Og þó hafði Drottinn aðvarað Ísrael og Júda fyrir munn allra spámannanna, allra sjáandanna, og sagt: Snúið aftur frá yðar vondu vegum og varðveitið skipanir mínar og boðorð, í öllum greinum samkvæmt lögmálinu, er eg lagði fyrir feður yðar, og því er eg bauð yður fyrir munn þjóna minna, spámannanna.

En þeir hlýddu ekki, heldur þverskölluðust eins og feður þeirra, er eigi treystu Drottni, Guði sínum;

þeir virtu að vettugi lög hans og sáttmála, þann er hann hafði gjört við feður þeirra, og boðorð hans, þau er hann hafði fyrir þá lagt, og eltu fánýt goð og breyttu heimskulega, að dæmi þjóðanna, er umhverfis þá voru, þótt Drottinn hefði bannað þeim að breyta eftir þeim.

Þeir yfirgáfu öll boð Drottins, Guðs síns, og gjörðu sér steypt líkneski, tvo kálfa, og þeir gjörðu asérur, féllu fram fyrir öllum himinsins her og dýrkuðu Baal.

Þeir létu sonu sína og dætur ganga gegnum eldinn, fóru með galdur og fjölkyngi og ofurseldu sig til að gjöra það, sem ilt var í augum Drottins, til þess að egna hann til reiði.

Þá reiddist Drottinn Ísrael ákaflega og rak þá burt frá augliti sínu; ekkert varð eftir nema Júda-ættkvísl ein.

Júdamenn héldu ekki heldur boðorð Drottins, Guðs síns; þeir fóru að siðum Ísraelsmanna, er þeir sjálfir höfðu sett.

Fyrir því hafnaði Drottinn öllu Ísraels kyni og auðmýkti þá og gaf þá í hendur ræningjum, þar til er hann útskúfaði þeim frá augliti sínu.

Því að þegar hann hafði slitið Ísrael frá húsi Davíðs, og þeir höfðu tekið Jeróbóam Nebatsson til konungs, þá tældi Jeróbóam Ísrael til að snúa sér frá Drottni og kom þeim til að drýgja mikla synd.

Og Ísraelsmenn drýgðu allar sömu syndirnar, sem Jeróbóam hafði drýgt; þeir létu eigi af þeim,

þar til er Drottinn rak Ísrael burt frá augliti sínu, eins og hann hafði sagt fyrir munn allra þjóna sinna, spámannanna. Þannig var Ísrael herleiddur burt úr landi sínu til Assýríu og hefir verið þar fram á þennan dag.

En Assýríu-konungur flutti inn fólk frá Babel, frá Kúta, frá Ava, frá Hamat og frá Sefarvaím og lét það setjast að í borgum Samaríu, í stað Ísraelsmanna. Tóku þeir Samaríu til eignar og settust að í borgum hennar.

En með því að þeir dýrkuðu ekki Drottins, fyrst eftir að þeir voru seztir þar að, þá sendi Drottinn ljón meðal þeirra; ollu þau manntjóni meðal þeirra.

Þá sögðu menn svo við Assýríu-konung: Þjóðirnar, er þú fluttir burt og lézt setjast að í borgum Samaríu, vita eigi, hver dýrkun landsguðnum ber; fyrir því hefir hann sent ljón meðal þeirra, og sjá, þau deyða þá, af því að þeir vita ekki, hvað landsguðnum ber.

Þá skipaði Assýríu-konungur svo fyrir: Látið einn af prestunum fara þangað, þeim er eg flutti burt þaðan, að hann fari og setjist þar að og kenni þeim, hver dýrkun landsguðnum ber,

Þá kom einn af prestunum, þeim er þeir höfðu flutt burt úr Samaríu, og settist að í Betel; hann kendi þeim, hvernig þeir ættu að dýrka Drottin.

En samt gjörðu þeir sér sína guði, hver þjóðflokkur út af fyrir sig, og settu þá í hæðahofin, er Samverjar höfðu reist, hver þjóðflokkur út af fyrir sig í sínum borgum, þeim er þeir bjuggu í.

Babelmenn gjörðu Súkkót-Benót, Kútmenn gjörðu Nergal, Hamatmenn gjörðu Asímd,

Avítar gjörðu Nibkas og Tartak, en Sefarvítar brendu börn sín til handa Adrammelek og Anammelek, Sefarvaím-guðum.

Þeir dýrkuðu og Drottin og gjörðu menn úr sínum hóp að hæðaprestum; báru þeir fram fórnir fyrir þá í hæðahofunum.

Þannig dýrkuðu þeir Drottin, en þjónuðu og sínum guðum, að sið þeirra þjóða, er þeir höfðu verið fluttir frá.

Fram á þennan dag fara þeir að fornum siðum. Þeir dýrka ekki Drottins og breyta ekki eftir lögum þeirra og ákvæðum þeirra og lögmáli því og boðorði, er Drottinn lagði fyrir sonU Jakobs, þess er hann gaf nafnið Ísrael.

En Drottinn hafði gjört sáttmála við þá og boðið þeim á þessa leið: Þér skuluð eigi dýrka nema aðra guði, eigi falla fram fyrir þeim, eigi þjóna þeim né fsera þeim fórnir,

en Drottinn, sem leiddi yður af Egiptalandi með miklum mætti og útréttum armlegg — hann skuluð þér dýrka, fyrir honum skuluð þér falla fram og honum skuluð þér fórnir færa.

En lög þal og ákvæði, lögmál og boðorð, er hann hefir ritað handa yður, skuluð þér varðveita, svo að þér haldið þau alla daga, og þér skuluð eigi dýrka aðra guði.

Og sáttmálanum, er eg hefi við yður gjört, skuluð þér ekki gleyma, og þér skuluð eigi dýrka aðra guði,

en Drottinn, Guð yðar, skuluð þér dýrka, og mun hann þá frelsa yður af hendi allra óvina yðar.

Samt hlýddu þeir ekki, heldur fóru þeir að fornum siðum:

Þannig dýrkuðu þá þessar þjóðir Drottins, en þjónuðu þó um leið skurðgoðum sínum. Börn þeirra og barnabörn — þau breyta og enn þann dag í dag eins og feður þeirra breyttu.