Síðari Konungabók 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 16

Á seytjánda ríkisári Peka Remaljasonar tók ríki Akas, sonur Jótams Júda-konungs.

Akas var tvítugur að aldri, þá er hann varð konungur, og sextán ár ríkti hann í Jerúsalem. En hann gjörði ekki það sem rétt var í augum Drottins, Guðs hans, svo sem Davíð forfaðir hans,

heldur fetaði hann í fótspor Ísraels-konunga. Hann lét jafnvel son sinn ganga gegn um eldinn, og drýgði þannig sömu svívirðingarnar og þær þjóðir, er Drottinn hafði stökt burt undan Ísraelsmönnum.

Hann fórnaði og sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum og hólunum og undir hverju grænu tré.

Í þann tíma fóru þeir Rezín Sýrlands-konungur og Peka Remaljason Ísraels-konungur upp til Jerúsalem, til þess að herja á hana; settust þeir um Akas, en fengu eigi unnið hann.

Um þær mundir vann Rezín Sýrlands-konungur Elat aftur undir Edóm og rak Júdamenn burt frá Elat, en Edómítar komu til Elat og hafa búið þar fram á þennan dag.

En Akas gjörði sendimenn á fund Tíglat-Pílesers Assýríu-konungs og lét segja honum: Eg er þjónn þinn og sonur! Kom og frelsa mig undan valdi Sýrlands-konungs og undan valdi Ísraels-konungs, er ráðið hafa á mig.

Og Akas tók silfrið og gullið, sem var í musteri Drottins og fjárhirzlum konungshallarinnar og sendi Assýríu-konungi að gjöf.

Assýríu-konungur tók vel máli hans. Síðan fór Assýríu-konungur herför til Damaskus, tók borgina herskildi og herleiddi íbúana til Kír, en Rezín lét hann af lífi taka.

Akas konungur fór nú til Damaskus til fundar við Tíglat-Píleser Assýríu-konung og sá þá altarið, er var í Damaskus. Sendi þá Akas konungur Úría presti uppdrátt og fyrirmynd af altarinu, er var alveg eins og það.

Og Úría prestur reisti altarið; gjörði Úría prestur með öllu svo sem Akas konungur hafði sent boð til frá Damaskus, áður en Akas konungur kom frá Damaskus.

En er konungur kom frá Damaskus og leit altarið, þá nálægðist konungur altarið og gekk upp að því,

fórnaði brennifórn sinni og matfórn, dreypti dreypifórn sinni og stökti blóði heillafórna sinna á altarið.

En eiraltarið, er stóð frammi fyrir Drottni, færði hann þaðan sem það var fyrir framan musterið, milli nýja altarisins og musteris Drottins, og setti það að norðanverðu við altarið.

Og Akas konungur lagði svo fyrir Úría prest: Á stóra altarinu skalt þú fórna morgun-brennifórninni og kveld-matfórninni, brennifórn konungs og matfórn hans, brennifórnum allrar alþýðu í landinu og matfórnum hennar og dreypifórnum, og öllu blóði brennifórnanna og öllu blóði sláturfórnanna skalt þú stökkva á það. En um eiraltarið ætla eg að skoða huga minn.

Og Úría prestur gjörði alt svo sem Akas konungur hafði boðið.

Akas konungur lét og brjóta speldin af undirstöðupöllunum og tók kerin ofan af þeim; þá lét hann og taka hafið ofan af eirnautunum, er undir því stóðu og setja á steingólfið.

Og hvíldardagsganginn, er tjaldaður var, er þeir höfðu gjört í musterinu, og ytri konungsganginn tók hann burt úr musteri Drottins vegna Assýríu-konungs.

En það sem meira er að segja um Akas, það er hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.

Og Akas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í Davíðsborg. Og Hiskía sonur hans tók ríki eftir hann.