Síðari Konungabók 15Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 15

Á tuttugasta og sjöunda ríkisári Jeróbóams Ísraels-konungs tók ríki Asarja sonur Amazja Júda-konungs.

Hann var sextán vetra gamall, er hann varð konungur, og fimtíu og tvö ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Jekolja og var frá Jerúsalem.

Hann gjörði það sem rjett var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Amazja faðir hans.

Þó voru hæðirnar eigi afnumdar; enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum.

Og Drottinn sló konung, svo að hann varð líkþrár til dauðadags. Bjó hann kyrr í höll sinni, einn sér, en Jótam konungsson veitti forstöðu höllinni og dæmdi mál landsmanna.

En það sem meira er að segja um Ásarja og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.

Og Asarja lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í Davíðsborg. Og Jótam sonur hans tók ríki eftir hann.

Á þrítugasta og áttunda ríkisári Asarja Júda-konungs varð Sakaría Jeróbóamsson konungur yfir Ísrael í Samaríu og rikti sex mánuði.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, svo sem gjört höfðu forfeður hans. Hann lét eigi af syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.

En Sallúm Jabesson hóf samsæri gegn honum og drap hann í Jibleam og tók ríki eftir hann.

En það, sem meira er að segja um Sakaría, það er ritað í árbókum ísraels-konunga.

Rættist þannig orð Drottins, það er hann hafði talað til Jehú: Niðjar þínir í fjórða lið skulu sitja í hásæti Ísraels. Og það varð svo.

Sallúm Jabesson varð konungur á þrítugasta og níunda ríkisári Ússía Júda-konungs og ríkti mánaðartíma í Samaríu.

Þá fór Menahem Gadíson frá Tirza, kom til Samaríu og drap Sallúm Jabesson í Samaríu og tók ríki eftir hann.

En það sem meira er að segja um Sallúm og samsærið, sem hann hóf, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Þá eyddi Menahem Tappúa og öllu, sem í henni var, og alt landið umhverfis hana frá Tirza, af því að menn höfðu eigi lokið upp fyrir honum, og allar þungaðar konur í borginni lét hann rista á kvið.

Á þrítugasta og níunda ríkisári Asarja Júda-konungs varð Menahem Gadíson konungur yfir Ísrael og ríkti tíu ár í Samaríu.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins; hann lét ekki af neinum syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.

Á hans dögum réðst Púl Assýríu-konungur inn í landið, og Menahem gaf Púl þúsund talentur silfurs til liðsinnis við sig og til þess að tryggja konungdóm sinn.

Bauð Menahem öllum Ísrael, öllum auðmönnum, að greiða Assýríu-konungi féð: fimtíu sikla silfurs hverjum. Sneri þá Assýríu-konungur heim aftur og hafði eigi lengri dvöl þar í landi.

En það sem meira er að segja um Menahem og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Og Menahem lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og Pekaja sonur hans tók ríki eftir hann.

Á fimtugasta ríkisári Asarja Júda-konungs varð Pekaja Menahemsson konungur yfir Ísrael í Samaríu og ríkti tvö ár.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins; hann lét eigi af syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.

Og Peka Remaljason riddari hans hóf samsæri gegn honum og drap hann í Samaríu, í vígi konungshallarinnar, ásamt Argób og Arje, og voru fimtíu manns af Gíleaðítum með honum. Og er hann hafði stytt honum aldur, tók hann ríki eftir hann.

En það sem meira er að segja um Pekaja og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Á fimtugasta og öðru ríkisári Asarja Júda-konungs varð Peka Remaljason konungur yfir Ísrael í Samaríu og ríkti tuttugu ár.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins; hann lét ekki af syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.

Á dögum Peka Ísraels-konungs kom Tíglat-Píleser Assýríu-konungur og tók Íjón og Abel-Bet-Maaka og Janóa og Kedes og Hazór, Gíleað og Galíleu, alt Naftalíland, og herleiddi þá til Assýríu.

Þá hóf Hósea Elason samsæri gegn Peka Remaljasyni, drap hann og tók ríki eftir hann, á tuttugasta ríkisári Jótams Ússíasonar.

En það sem meira er að segja um Peka og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Á öðru ríkisári Peka Remaljasonar Ísraels-konungs tók ríki Jótam, sonur Ússía Júda-konungs.

Hann var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og sextán ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Jerúsa Zadóksdóttir.

Hann gjörði það, sem rétt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Ússía faðir hans.

Þó voru hæðirnar ekki afnumdar; enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum. Hann reisti efra hliðið á musteri Drottins.

En það sem meira er að segja um Jótam og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.

Um þær mundir tók Drottinn að hleypa þeim Rezín Sýrlands-konungi og Peka Remaljasyni á Júda.

Og Jótam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs forföður síns. Og Akas sonur hans tók ríki eftir hann.