Síðari Konungabók 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 14

Á öðru ríkisári Jóasar Jóahassonar Ísraels-konungs, varð Amazja Jóasson konungur í Júda.

Hann var tuttugu og fimm ára að aldri, þá er hann varð konungur, og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Jóaddín og var frá Jerúsalem.

Og hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins, þó eigi eins og Davíð forfaðir hans. Hann breytti í alla staði eins og Jóas faðir hans hafði breytt.

Aðeins voru hæðirnar ekki afnumdar; enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum.

En er hann var orðinn fastur í sessi, lét hann drepa þá menn sína, er drepið höfðu konunginn föður hans.

En börn morðingjanna lét hann ekki af lífi taka, samkvæmt því, sem skrifað er í lögmálsbók Móse, þar sem Drottinn mælir svo fyrir: Feður skulu ekki líflátnir verða ásamt börnunum, og börn skulu ekki líflátin verða ásamt feðrunum, heldur skal hver líflátinn verða fyrir sína eigin synd.

Það var hann, sem vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tíu þúsundum manns, og tók Sela herskildi; og hann nefndi hana Jokteel, og heitir hún svo enn í dag.

Þá gjörði Amazja sendimenn á fund Jóasar Jóahassonar, Jehúsonar, Ísraels-konungs með svolátandi orðsending: Nú skulum við reyna með okkur.

Þá sendi Jóas Ísraels-konungur Amazja Júda-konungi þau andsvör: Þistillinn á Líbanon gjörði sedrustrénu á Líbanon svolátandi orðsending: Gef þú syni mínum dóttur þína að konu. En villidýrin á Líbanon gengu yfir þistilinn og tróðu hann sundur.

Af því að þú vanst mikinn sigur á Edómítum, hefir þú fylst ofmetnaði. Njót þú frægðarinnar og sit kyrr heima. Hví vilt þú egna ógæfuna sjálfum þér og Júda til falls?

En Amazja gaf þessu engan gaum. Þá fór Jóas Ísraels-konungur af stað, og varð fundur þeirra, hans og Amazja Júda-konungs, í Bet-Semes, er liggur undir Júda.

Beið Júda þar ósigur fyrir Ísrael og flýðu þeir hver til síns heima.

En Jóas Ísraels-konungur tók höndum Amazja Júda-konung, son Jóasar Ahasjasonar, í Bet-Semes og fór með hann til Jerúsalem. Hann braut niður múra Jerúsalem frá Efraím-hliði alt að hornhliðinu, fjögur hundruð álnir.

Því næst tók hann alt gull og silfur og öll áhöld, er fundust í musteri Drottins og í fjárhirzlum konungshallarinnar, svo og gíslana, og sneri síðan aftur heim til Samaríu.

En það sem meira er að segja um Jóas, það sem hann gjörði og hreystiverk hans og hversu hann barðist við Amazja Júda-konung, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Og Jóas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu hjá Ísraels-konungum. Og Jeróbóam sonur hans tók ríki eftir hann.

En Amazja Jóasson Júda-konungur lifði fimtán ár eftir dauða Jóasar Jóahassonar Ísraels-konungs.

En það, sem meira er að segja um Amazja, það er ritað í árbókum Júda-konunga.

Og menn gjörðu samsæri gegn honum í Jerúsalem. Flýði hann þá til Lakís; en þeir sendu á eftir honum til Lakís og létu drepa hann þar.

Fluttu þeir hann síðan á hestum og var hann grafinn í Jerúsalem hjá feðrum sínum í Davíðsborg.

Þá tók allur Júda-lýður Asarja, þótt hann væri eigi nema sextán vetra gamall, og gjörði hann að konungi í stað Amazja föður hans.

Hann víggirti Elat og vann hana aftur undir Júda, eftir að konungurinn var lagstur til hvíldar hjá feðrum sínum.

Á fimtánda ríkisári Amazja Jóassonar Júda-konungs varð Jeróbóam, sonur Jóasar Ísraels-konungs, konungur í Samaríu og ríkti fjörutíu og eitt ár.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, lét hann eigi af neinum syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.

Hann vann aftur Ísraelsland, þaðan frá er leið liggur til Hamat alt að vatninu á sléttlendinu, samkvæmt orði Drottins, Ísraels Guðs, því er hann hafði talað fyrir munn þjóns síns, Jóna spámanns Amíttaísonar frá Gat-Hefer.

Því að Drottinn hafði séð, að eymd Ísraels var mjög beisk; þrælar og frelsingjar voru horfnir, og enginn var sá, er hjálpaði Ísrael.

En þó hafði Drottinn ekki sagt, að hann mundi afmá nafn Ísraels af jörðinni, enda frelsaði hann þá fyrir Jeróbóam Jóasson.

En það sem meira er að segja um Jeróbóam og alt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, hversu hann herjaði og hversu hann vann aftur Damaskus og Hamat, er fyrrum tilheyrði Júda, undir Ísrael, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Og Jeróbóam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu, hjá Ísraels-konungum. Og Sakaría sonur hans tók ríki eftir hann.