Síðari Konungabók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 13

Á tuttugasta og þriðja ríkisári Jóasar Ahasjasonar Júda-konungs varð Jóahas Jehúson konungur yfir Ísrael í Samaríu og ríkti seytján ár.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins og drýgði sömu syndirnar og Jeróbóam Nebatsson, þær er hann hafði komið Ísrael til að drýgja; hann lét ekki af þeim.

Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael og hann gaf þá í hendur Hasael Sýrlands-konungi og Benhadad syni Hasaels, allan þann tíma.

En Jóahas blíðkaði Drottin, og Drottin bænheyrði hann, því að hann sá ánauð Ísraels, hversu Sýrlands-konungur kúgaði þá.

Og Drottinn sendi Ísrael hjálparmann, svo að þeir losnuðu undan valdi Sýrlendinga og Ísraelsmenn bjuggu í tjöldum sínum sem áður.

Þó létu þeir eigi af syndum Jeróbóams ættar, þeim er hafði komið Ísrael til að drýgja; þeir héldu áfram að drýgja þær. bar an stóð og kyr í Samaríu.

Því að hann lét ekkert lið eftir verða handa Jóahasi, nema fimtíu riddara, tíu vagna og tíu þúsund fótgönguliðs; því að Sýrlands-konungur hafði gjöreytt þeim og gjört þá sem ryk við þreskingu.

En það sem meira er að segja um Jóahas og alt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Og Jóahas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og hann var grafinn í Samaríu. Og Jóas sonur hans tók ríki eftir hann.

Á þrítugasta og sjöunda ríkisári Jóasar Júda-konungs varð Jóas Jóahasson konungur yfir Ísrael í Samaríu og ríkti sextán ár.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins; hann lét ekki af neinum syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja; hann hélt áfram að drýgja þær.

En það sem meira er að segja um Jóas og alt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, hversu hann háði ófrið við Amazja Júda-konung, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Og Jóas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og Jeróbóam settist í hásæti hans. Og Jóas var grafinn í Samaríu hjá Ísraels-konungum.

En Elísa tók sótt, þá er hann leiddi til bana. Fór þá Jóas konungur í Ísrael ofan til hans, grét yfir honum og sagði: Faðir minn, faðir minn, þú Ísraels vagn og riddarar!

En Elísa sagði við hann: Tak boga og örvar. Og hann færði honum boga og örvar.

Þá sagði hann við Ísraels-konunginn: Legg hönd þína á bogann. Hann gjörði svo. Þá lagði Elísa hendur sínar ofan á hendur konungs.

Síðan mælti hann: Opna þú gluggann gegnt austri. Og hann gjörði svo. Þá sagði Elísa: Skjót! Og hann skaut. En hinn mælti: Sigurör frá Drottni! já, sigurör yfir Sýrlendingum! Þú munt vinna sigur á Sýrlendingum í Afek, unz þeir eru gjöreyddir.

Síðan sagði hann: Tak örvarnar. Og hann tók þær. Þá sagði hann við Ísraels-konunginn: Slá þú á jörðina. Og hann sló þrisvar sinnum, en hætti síðan.

Þá gramdist guðsmanninum við hann og sagði: Þú hefðir átt að slá fimm eða sex sinnum, þá mundir þú hafa unnið sigur á Sýrlendingum, unz þeir hefðu verið gjöreyddir, en nú munt þú aðeins vinna þrisvar sinnum sigur á Sýrlendingum.

En Elísa dó og var grafinn. En móabitískír ræningjaflokkar brutust þá inn í landið á ári hverju.

Og svo bar við, er verið var að grafa mann nokkurn, að menn komu alt í einu auga á ræningjaflokk. Fleygðu þeir þá manninum í gröf Elísa og höfðu sig á brott. En er maðurinn snart bein Elísa, þá lifnaði hann og reis á fætur.

En Hasael Sýrlands-konungur krepti að Ísrael alla æfi Jóahasar.

En Drottinn miskunnaði þeim og sá aumur á þeim og sneri sér til þeirra, sakir sáttmála síns við Abraham, Ísak og Jakob; vildi hann eigi að þeir skyldu tortímast, hafði og eigi útskúfað þeim frá augliti sínu til þessa.

Og er Hasael Sýrlands-konungur var dáinn og Benhadad sonur hans hafði tekið ríki eftir hann,

þá tók Jóas Jóahasson borgirnar aftur frá Benhadad Hasaelssyni, þær er Hasael hafði tekið frá Jóahas föður hans í ófriði. Vann Jóas þrisvar sinnum sigur á honum og náði aftur borgum Ísraels.