Síðari Konungabók 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 12

Á sjöunda ríkisári Jehú varð Jóas konungur og fjörutíu ár ríkti hann í Jerúsalem; en móðir hans hét Zibja og var frá Beerseba.

Og Jóas gjörði það sem rétt var í augum Drottins alla æfi sína, af því að Jójada prestur hafði kent honum.

Þó voru hæðirnar ekki afnumdar; enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum.

Og Jóas sagði við prestana: Alt fé, sem borið er í musteri Drottins sem helgigjafir, fé, sem lagt er á einhvern eftir mati — fé, sem menn eru metnir eftir —, svo og alt það fé, sem einhver af eigin hvötum ber í musteri Drottins, skulu prestarnir taka til sín, hver af sínum kunningja.

En þeir skulu og með því gjöra við skemdir á musterinu, við allar skemdir, sem á því finnast.

En á tuttugasta og þriðja ríkisári Jóasar konungs höfðu prestarnir enn ekki gjört við skemdir á musterinu.

Þá lét Jóas konungur kalla Jójada yfirprest og hina prestana og mælti til þeirra: Hvers vegna gjörið þér ekki við skemdir á musterinu? Nú skuluð þér eigi framar taka við neinu fé af kunningjum yðar, heldur skuluð þér láta það af hendi fyrir skemdum á musterinu.

Og prestarnir gengu að þeim kostum, að taka ekki við fé af lýðnum, en vera og eigi skyldir að gjöra við skemdir á musterinu,

Síðan tók Jójada prestur kistu nokkura, boraði gat á lokið og setti hana hjá altarinu hægramegin, þegar gengið er inn í musteri Drottins, og létu prestarnir, þeir er geymdu þröskuldarins, í hana alt það fé, er borið var í musteri Drottins.

Og er þeir sáu, að mikið fé var komið í kistuna, kom kanzlari konungs þangað og æðsti presturinn, og bundu þeir saman alt fé, sem fanst í musteri Drottins, og töldu það.

Fengu þeir síðan féð, er vegið hafði verið, verkstjórunum í hendur, þeim er höfðu umsjón með musteri Drottins, en þeir greiddu það trésmiðunum og byggingamönnunum, er störfuðu við musteri Drottins,

svo og múrurunum og steinsmiðunum og til þess að kaupa fyrir við og höggna steina, til þess að gjöra við skemdir á musteri Drottins, og yfir höfuð til allra útgjalda fyrir viðgjörð á musterinu.

Þó voru eigi gjörðir neinir silfurkatlar, skarbítar, fórnarskálar, lúðrar, né nokkurs konar áhöld úr gulli eða silfri í musteri Drottins, af fé því, sem borið var í musteri Drottins,

heldur fengu menn það verkamönnunum, til þess að þeir fyrir það gjörðu við musteri Drottins.

En ekki héldu menn reikning við menn þá, er þeir fengu féð í hendur, til þess að þeir greiddu það verkamönnunum, heldur gjörðu þeir það upp á æru og trú.

En sektarfórnarféð og syndafórnarféð var eigi borið í musteri Drottins; það áttu prestarnir.

Um þær mundir kom Hasael Sýrlands-konungur, herjaði á Gat og vann hana. En er Hasael ætlaði að fara til Jerúsalem,

þá tók Jóas Júda-konungur allar helgigjafir þær, er þeir Jósafat, Jóram og Ahasja forfeður hans, Júda-konungar, höfðu helgað, svo og helgigjafir sínar og alt gullið, er til var í fjárhirzlum musteris Drottins og konungshallarinnar og sendi það Hasael Sýrlands-konungi. Hætti hann þá við að fara til Jerúsalem.

En það sem meira er að segja um Jóas og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.

En þjónar hans hófust handa, gjörðu samsæri og drápu Jóas í Milló-húsi, þar sem gatan liggur niður til Silla.

Þeir Jósakar Símeatsson og Jósabad Sómersson, þjónar hans, unnu á honum, og hann var grafinn hjá feðrum sínum í Davíðsborg. Og Amazja sonur hans tók ríki eftir hann.