Gamla testamentiðSaga
En er Atalía móðir Ahasja sá, að sonur hennar var dauður, fór hún til og lét drepa alla konungsættina.
Þá tók Jóseba, dóttir Jórams konungs, systir Ahasja, Jóas Ahasjason og tók hann á laun úr hóp konungssonanna, er deyða átti, og fól hann og fóstru hans í svefnherberginu. Þannig leyndi hún honum fyrir Atalíu, svo að hann var ekki drepinn.
Og hann var hjá henni á laun sex ár í musteri Drottins, Meðan Atalía ríkti yfir landinu.
En á sjöunda ári sendi Jójada og lét sækja hundraðshöfðingja Kara og varðliðsmannanna og lét þá koma til sín í musteri Drottins. Og hann gjörði við þá sáttmála og lét þá vinna eið í musteri Drottins. Síðan sýndi hann þeim konungsson
og lagði svo fyrir þá: Svo skuluð þér gjöra: Þriðjungur yðar, þér er heim farið hvíldardaginn, skuluð halda vörð í konungshöllinni;
skal einn þriðjungurinn vera í Súrhliði, annar í hliðinu bak við varðliðsmennina, svo að þér haldið vörð í konungshöllinni;
og báðir hinir þriðjungsflokkar yðar, allir þeir, er fara út hvíldardaginn, til þess að halda vörð í musteri Drottins hjá konunginum, —
þér skuluð fylkja yður um konung, allir með vopn í hendi, og hver sá, er vill brjótast gegn um raðirnar, skal drepinn verða. Skuluð þér þannig vera með konungi, þá er hann fer út og þegar hann kemur heim.
Hundraðshöfðingjarnir fóru með öllu svo sem Jójada prestur hafði boðið, sóttu hver sína menn, bæði þá er heim fóru hvíldardaginn og þá er út fóru hvíldardaginn, og komu til Jójada prests.
Og presturinn fékk hundraðshöfðingjunum spjótin og skjölduna, er átt hafði Davíð konungur og í voru musteri Drottins.
Og varðliðsmennirnir námu staðar, allir með vopn í hendi, alt í kring um konung, frá suðurhlið musterisins að norðurhlið musterisins, frammi fyrir altarinu og frammi fyrir musterinu.
Þá leiddi hann konungsson fram og setti á hann kórónuna og hringana, tóku þeir hann til konungs og smurðu hann, klöppuðu lófum saman og hrópuðu: Konungurinn lifi!
En er Atalía heyrði ópið í varðliðsmönnunum og lýðnum, þá kom hún til lýðsins í musteri Drottins.
Sá hún þá, að konungur stóð við súluna, svo sem siður var til, og höfuðsmennina og lúðursveinana hjá konungi, og allan landslýðinn fagnandi og blásandi í lúðrana. Þá reif Atalía klæði sín og kallaði: Samsæri, samsæri!
En Jójada prestur bauð hundraðshöfðingjunum, fyrirliðum hersins, og mælti til þeirra: Leiðið hana út milli raðanna og drepið með sverði hvern, sem fer á eftir henni. Því að prestur hafði sagt: Eigi skal hana drepa í musteri Drottins.
Síðan lögðu þeir hendur á hana, og er hún var komin inn í konungshöllina um hrossahliðið, var hún drepin þar.
Og Jójada gjörði sáttmála milli Drottins og konungs og lýðsins, að þeir skyldu vera lýður Drottins, — svo og milli konungs og lýðsins.
Síðan fór allur landslýður inn í musteri Baals og reif það. Ölturu hans og líkneskjur molbrutu þeir, en Mattan, prest Baals, drápu þeir fyrir ölturunum. Síðan setti prestur varðflokka við musteri Drottins,
og hann tók hundraðshöfðingjana og Kara og varðliðsmennina og allan landslýðinn, og fóru þeir með konung ofan frá musteri Drottins og gengu um varðliðsmannahliðið inn í konungshöllina, og hann settist í konungshásætið.
Allur landslýður fagnaði og borgin sefaðist. En Atalíu drápu þeir með sverði í konungshöllinni.
Jóas var sjö vetra gamall, þá er hann varð konungur.