Fimmtudagur í 7. viku páskatíðar
Virkur dagur á páskatíð.
Páskatíð · Vika 7Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Einnig í dag
Kristófer Magallanes og félagar, píslarvottar
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 22:30; 23:6-11
- Davíðssálmur
- Sálmur 16:1-2a og 5, 7-8, 9-10, 11
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 17:20-26
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Sjá þann hinn mikla flokk sem fjöll,er fjölsett gnæfa' í skrúði' af mjöll,hið prúða lið, sem pálmaviðfyr'ir hástól heldur á.Það hetjuvalið hér má sjá,er hörmunginni miklu fráheim komið hér til Herrans erfyr'ir lambsins blessað blóð.Þeir fyrirlitning hlutu' í heim,en hér er um skipt fyrir þeim.Þeir ljóma' í sól við lambsins stólí sælu' um eilíf ár.Æ, mörg var þeirra þrenging sár,á þrungnum augum brunnu tár.Þau hefur nú Guðs höndin trúaf þerrað þjónum sín.Ó, mikli, fríði hetjuher,af hjarta með þér gleðjumst vér,þú reyndist trúr og raunum úrert leiddur, laun að fá.Guð launi þér á himni há,þú hér á jörð með grát réðst sá,nú vitum vér þú víst upp skermeð gleði sætum söng.Já, syng af megni: leiðin löngtil lífs er stigin, hætt og þröng,þér, líknin blíð, sem leystir lýð,sé lofgjörð ár og síð. Amen.
Sálmur 87
Andstef · Borg Guðs, þú ert uppspretta lífs vors, með hljóðfæraslætti og dansi munum vér fagna í þér, hallelúja.
1Kóraíta–sálmur. Ljóð.
2Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum * hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.
3Dýrlega er talað um þig * þú borg Guðs. [Sela]
4Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar * hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.
5En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni * og hann, Hinn hæsti, verndar hana.
6Drottinn telur saman í þjóðaskránum * einn er fæddur hér, annar þar. [Sela]
7Og menn syngja eins og þeir er stíga dans * „Allar uppsprettur mínar eru í þér.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Borg Guðs, þú ert uppspretta lífs vors, með hljóðfæraslætti og dansi munum vér fagna í þér, hallelúja.
Sálmur — Jes 40, 10-17 — Hinn góði hirðir: Hinn hæsti og alvitri Guð
Andstef · Eins og hirðir mun hann taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, hallelúja.
10Sjá, hinn alvaldi Drottins kemur sem hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða. Sjá * endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum.
11Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga * taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.
12Hver hefur mælt vötnin í lófa sínum og stikað himininn með spönn sinni * innilukt duft jarðarinnar í mælikeri og vegið fjöllin á reislu og hálsana á metaskálum?
13Hver hefur leiðbeint anda Drottins * hver hefur verið ráðgjafi hans og frætt hann?
14Hvern hefur hann sótt að ráðum, þann er gæfi honum skilning og kenndi honum leið réttvísinnar * uppfræddi hann í þekkingu og vísaði honum veg viskunnar?
15Sjá, þjóðirnar eru sem dropi í vatnskjólu og metnar sem ryk á vogarskálum. Sjá * eylöndunum lyftir hann upp eins og duftkorni.
16Og Líbanon–skógur hrekkur ekki til eldsneytis * og dýrin í honum ekki til brennifórnar.
17Allar þjóðir eru sem ekkert fyrir honum * þær eru minna en ekki neitt og hégómi í hans augum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Eins og hirðir mun hann taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, hallelúja.
Sálmur 99
Andstef · Mikill er Drottinn á Síon; hann er hátt upp hafinn yfir allar þjóðir, hallelúja.
1Drottinn er konungur orðinn! Þjóðirnar skjálfi. * Hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötri.
2Drottinn er mikill á Síon og * hátt upp hafinn yfir alla lýði.
3Þeir skulu lofa nafn þitt * hið mikla og óttalega. Heilagur er hann!
4Þú ert voldugur konungur, sem elskar réttinn, þú hefur staðfest réttvísina * rétt og réttlæti hefur þú framið í Jakob.
5Tignið Drottinn, Guð vorn * og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann!
6Móse og Aron eru meðal presta hans * Samúel meðal þeirra er ákalla nafn hans, þeir ákalla Drottin og hann bænheyrir þá.
7Hann talar til þeirra í skýstólpanum * því að þeir gæta vitnisburða hans og laganna, er hann gaf þeim.
8Drottinn, Guð vor, þú bænheyrir þá * þú reynist þeim fyrirgefandi Guð og sýknar þá af gjörðum þeirra.
9Tignið Drottinn Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli * því að heilagur er Drottinn, Guð vor.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Mikill er Drottinn á Síon; hann er hátt upp hafinn yfir allar þjóðir, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 10-11Ef Kristur er í yður, þá er líkaminn að sönnu dauður vegna syndarinnar, en andinn veitir líf vegna réttlætisins. Ef Andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með Anda sínum, sem í yður býr.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Farið út um allan heim og kennið öllum þjóðum. Skírið þær í nafni Föður, Sonar og Heilags Anda, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Vegsamaður sé Kristur Drottinn: Fyrir hann eigum vér öll aðgang til Föðurins í Heilögum Anda. Vér skulum biðja:Kristur, bænheyr þú oss.Sendu Anda þinn, langþráðan gest hjartna vorra,og gef að vér megum aldrei misbjóða honum.Þú reist upp frá dauðum og situr Guði til hægri handar,bið oss stöðugt árnaðar hjá Föðurnum.Sameina oss við þig fyrir tilstilli Anda þíns,til að raunir, ofsóknir eða hættur megi aldrei skilja oss frá kærleika þínum.Megum vér fagna hvert öðru,með þeim hætti sem þú hefur fagnað oss inn til dýrðar Guðs.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Drottinn, megi Andi þinn fylla oss ríkulega með andlegum gjöfum, til þess að hann gæði oss hugarfari sem þóknast þér og móti oss mildilega að vilja þínum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. KRISTÓFERS MAGELLAN, PRESTS, OG FÉLAGA, PÍSLARVOTTA
Almáttugi eilífi Guð, þú gerðir hinn sæla Kristófer prest og félaga að dyggum vottum Krists konungs allt til dauða. Veit oss fyrir árnað þeirra að vér hvikum hvergi í játningu hinnar sönnu trúar og fáum ávallt haldið fast við kærleiksboðin þín. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Skaparinn stjarna, Herra hreinn,sem hverri sálu lýsir einn,Kristur, sem allan leystir lýð,líknsamur vorum bænum hlýð.Mæddi þinn hug vor mikla neyð,með oss þín heilög elska leið,þú vildir frelsa veröld þá,er villt og sek í myrkri lá.Þú komst með dögun, Drottinn hár.Sem dimman flýr við morgunsár,eins breiddist ljós þitt bjart um heim,brosir allt líf í geisla þeim.Þú ert það orð, sem allt er fráog öllu ráða og stjórna má,það föður orð, sem flutt þá var,er fæddist ljós og stjörnurnar.Eins muntu síðast, Drottinn dýr,dæma það allt, sem með oss býr,og skapa nýjan, hreinan heim.Hjálpa þú oss á degi þeim.Himnar og jörðin hneigi þér,helja og allt, sem skapað er.Viljinn þinn góði, valdið þitt,veki og lífgi hjartað mitt. Amen.
Sálmur 132 I
Andstef · Drottinn Guð hefur gefið honum hásæti Davíðs föður hans, hallelúja.
1Drottinn, mun þú * Davíð allar þrautir hans,
2hann sem sór Drottinn * gjörði heit hinum volduga Jakobs Guði:
3„Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt * eigi stíga í hvílurúm mitt,
4eigi unna augum mínum * svefns né augnalokum mínum blunds,
5fyrr en ég hefi fundið stað fyrir Drottni * bústað fyrir hinn volduga Jakobs Guð.“
6Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata * fundið hann á Jaarmörk.
7Látum oss ganga til bústaðar Guðs * falla fram á fótskör hans.
8Tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn * þú og örk máttar þíns.
9Prestar þínir íklæðist réttlæti * og dýrkendur þínir fagni.
10Sakir Davíðs þjóns þíns vísa * þú þínum smurða eigi frá.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn Guð hefur gefið honum hásæti Davíðs föður hans, hallelúja.
Sálmur 132 II
Andstef · Jesús Kristur er alvaldur í mekt sinni. Hann er konungur konunganna og Drottinn drottnanna, hallelúja.
11Drottinn hefur svarið Davíð óbrigðulan eið, er hann eigi mun rjúfa * „Af ávexti kviðar þíns mun ég setja mann í hásæti þitt.
12Ef synir þínir varðveita sáttmála minn og reglur mínar, þær er ég kenni þeim * þá skulu og þeirra synir um aldur sitja í hásæti þínu.“
13Því að Drottinn hefur útvalið Síon * þráð hana sér til bústaðar:
14„Þetta er hvíldarstaður minn um aldur * hér vil ég búa, því að hann hefi ég þráð.
15Vistir hans vil ég vissulega blessa * og fátæklinga hans vil ég seðja með brauði,
16presta hans vil ég íklæða hjálpræði * hinir guðhræddu er þar búa skulu kveða fagnaðarópi.
17Þar vil ég láta Davíð horn vaxa * þar hefi ég búið lampa mínum smurða.
18Óvini hans vil ég íklæða skömm * en á honum skal kóróna hans ljóma.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jesús Kristur er alvaldur í mekt sinni. Hann er konungur konunganna og Drottinn drottnanna, hallelúja.
Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs
Andstef · Drottinn, hver er jafn þér að völdum? Hver líkist þér í heilagri hátign þinni, hallelúja.
17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.
18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.
10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.
11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.
12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, hver er jafn þér að völdum? Hver líkist þér í heilagri hátign þinni, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
1Kor 6, 19-20Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri Heilags Anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin. Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar.
Stutt svarvers
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Hann mun kenna yður allt,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Heilagur Andi er hjálparinn, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þegar hann kemur, Andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikan, og kunngjöra yður það, sem koma á, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Drottinn, megi Andi þinn fylla oss ríkulega með andlegum gjöfum, til þess að hann gæði oss hugarfari sem þóknast þér og móti oss mildilega að vilja þínum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 16
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.
2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“
3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.
4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.
5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.
6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.
7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.
8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.
9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,
10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.
11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007