Dagatal

Fimmtudagur í jólatíð

Virkur dagur á jólatíð.

Jólatíð · Vika 3

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Lát opnast augu mín,minn ástvin himnum á,svo ástarundur þínmér auðnist skýrt að sjá:hið fríða foldarskraut,hinn fagra stjarnaherá loftsins ljómabrautog ljóssins dýrð hjá þér.Lát opnast eyru mín,minn ástafaðir kær,svo eilíf orðin þínég ávallt heyri skær:þíns lögmáls hvellan hljóm,þín heilög boð, ei ströng,þíns guðspjalls ástarómog engla helgan söng.Lát opnast munninn minn,svo mál hans, Drottinn kær,þitt vald og vísdóm þinnæ votti nær og fjær.Veit mér að mikla þig,á meðan æðar slá,já, lengur lát þú migþig lofa himnum á.Lát opnast harðlæst húsmíns hjarta, Drottinn minn,svo hýsi' eg hjartans fúsþar helgan anda þinn. Amen.

Sálmur 80

Andstef · Tak á mætti þínum, Drottinn, og kom oss til hjálpar.

1Til söngstjórans. Liljulag. Asafs–vitnisburður. Sálmur.

2Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð * þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð.

3Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím * Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!

4Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa * að vér megum frelsast.

5Drottinn, Guð hersveitanna * hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?

6Þú hefur gefið þeim tárabrauð að eta * og fært þeim gnægð tára að drekka.

7Þú hefur gjört oss að þrætuefni nágranna vorra * og óvinir vorir gjöra gys að oss.

8Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa * að vér megum frelsast.

9Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi * stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann,

10þú rýmdir til fyrir honum * hann festi rætur og fyllti landið.

11Fjöllin huldust í skugga hans * og sedrustré Guðs af greinum hans.

12Hann breiddi út álmur sínar til * hafsins og teinunga sína til Fljótsins.

13Hví hefur þú brotið niður múrveggina um hann * svo að allir vegfarendur tína berin?

14Skógargeltirnir naga hann * og öll dýr merkurinnar bíta hann.

15Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur * lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa

16og varðveit það sem hægri hönd þín hefur plantað * og son þann, er þú hefur styrkan gjört þér til handa.

17Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn * fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.

18Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd * yfir mannsins barni, er þú hefur styrkan gjört þér til handa,

19þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru * þá skulum vér ákalla nafn þitt.

20Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur * lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Tak á mætti þínum, Drottinn, og kom oss til hjálpar.

Sálmur — Jes 12, 1-6 — Gleði hinnar endurleystu þjóðar

Andstef · Dásemdarverk hefur Drottinn gjört. Kunngjörið þau um alla jörðina.

1Á þeim degi skaltu segja: „Ég vegsama þig, Drottinn, því þótt þú værir mér reiður * þá er þó horfin reiði þín og þú huggaðir mig.

2Sjá, Guð er mitt hjálpræði, ég er öruggur og óttast eigi * því að Drottinn Guð er minn styrkur og minn lofsöngur, hann er orðinn mér hjálpræði.“

3Þér munuð með fögnuði * vatni ausa úr lindum hjálpræðisins.

4Og á þeim degi munuð þér segja: „Lofið Drottin * ákallið nafn hans. Gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna, hafið í minnum, að háleitt er nafn hans.

5Lofsyngið Drottni, því að dásemdarverk hefur hann * gjört. Þetta skal kunnugt verða um alla jörðina.

6Lát óma gleðihljóm og kveða við fagnaðaróp, þú sem býr á Síon * því að mikill er Hinn heilagi í Ísrael meðal þín.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Dásemdarverk hefur Drottinn gjört. Kunngjörið þau um alla jörðina.

Sálmur 81

Andstef · Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum.

1Til söngstjórans. Á gittít. Asafs–sálmur.

2Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum * látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.

3Hefjið lofsöng og berjið bumbur * knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur.

4Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum * við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.

5Því að þetta eru lög fyrir Ísrael * boðorð Jakobs Guðs.

6Hann gjörði það að reglu í Jósef * þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi:

7„Ég hefi losað herðar hans við byrðina * hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna.

8Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig * ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. [Sela]

9Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig * ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig!

10Enginn annar guð má vera meðal þín * og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja.

11Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi * opna munn þinn, að ég megi seðja þig.

12En lýður minn heyrði eigi raust mína * og Ísrael var mér eigi auðsveipur.

13Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra * þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta.

14Ó, að lýður minn vildi heyra mig * Ísrael ganga á mínum vegum,

15þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra * og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.

16Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum * og ógæfutími þeirra vara að eilífu.

17Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að * eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum.

Stuttur ritningarlestur

Jes 62, 11-12Segið dótturinni Síon: Sjá, hjálpræði þitt kemur! Sjá, endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum! Og þeir munu kallaðir verða hinn heilagi lýður, hinir endurleystu Drottins.

Stutt svarvers

Allir konungar jarðar * munu lúta í tilbeiðslu.

Allir konungar jarðar * munu lúta í tilbeiðslu.

Allar þjóðir munu þjóna honum.

Munu lúta í tilbeiðslu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Allir konungar jarðar * munu lúta í tilbeiðslu.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Allar þjóðir, færandi gjafir, munu koma langt að, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Fagnið í hinum unaðslegu verkum Drottins því að hann hefur gefið oss von með fæðingu Sonar síns. Hrópum upp yfir oss af mikilli gleði:Dýrð sé Guði í upphæðum.Ásamt englunum, ættfeðrunum og spámönnunum,lofsyngjum vér þig, Drottinn.Ásamt Maríu, meymóður Guðs,kunngjörir öll verund vor mikilfengleika þinn, Drottinn.Ásamt postulunum og guðspjallamönnunum,gefum vér þér þakkir, Drottinn.Ásamt öllum hinum heilögu píslarvottum,fórnfærum vér þér líkama vorum sem helguð fórnarlömb.Ásamt öllum þínum heilögu vottum í kirkjunni,helgum vér þér líf vort í djúpri trú.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með Syni þínum kveiktir þú öllum þjóðum ljós eilífðar þinnar. Gef fólki þínu að viðurkenna fulla dýrð endurlausnara síns, svo að hún aukist stöðugt og leiði það til ævarandi ljóma. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Dýrlegi Jesús, Drottinn allra heima,duftinu klæddur, Guðs einkason,þig vil ég elska, einum þér fylgja,anda míns heilsa, líf og von.Fögur er hlíðin, frítt um völl og haga,fagurt er vorið, sem lífgar allt.Jesús er fegri, hærri og hreinni,sem hjartað lífgar, snautt og kalt.Blómkrónur anga, brosa móti sólu,barnsaugað tæra þó fegur skín.Blómið mun falla, brestur hvert auga,birtan þín, Jesús, aldrei dvín.Bjartur er máni, blítt skín sól í heiði,blikandi stjarna er hýr að sjá.Skærar þú lýsir, ljós heimsins, Jesús,ljómi Guðs dýrðar himni frá.Fegurð og yndi, allt á himni og jörðueinum þér hneigir og skín af þér.Hvert sem ég leita, hvað sem ég þrái,hjarta míns gimsteinn vertu mér. Amen.

Sálmur 72 I

Andstef · Ég gjöri þig að ljósi fyrir þjóðirnar, svo að þú sért mitt hjálpræði til endimarka jarðarinnar.

1Guð, sel konungi í hendur * dóma þína og konungssyni réttlæti þitt,

2að hann dæmi lýð þinn með * réttvísi og þína þjáðu með sanngirni.

3Fjöllin beri lýðnum * frið og hálsarnir réttlæti.

4Hann láti hina þjáðu meðal lýðsins ná rétti sínum * hann hjálpi hinum snauðu og kremji kúgarann.

5Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið ber birtu * frá kyni til kyns.

6Hann mun falla sem regn á slægjuland * sem regnskúrir, er vökva landið.

7Um hans daga skal réttlætið blómgast og gnóttir friðar * uns tunglið er eigi framar til.

8Og hann skal ríkja frá hafi til hafs * frá Fljótinu til endimarka jarðar.

9Fjandmenn hans skulu beygja kné fyrir * honum og óvinir hans sleikja duftið.

10Konungarnir frá Tarsis og eylöndunum skulu koma með gjafir * konungarnir frá Saba og Seba skulu færa skatt.

11Og allir konungar skulu lúta honum * allar þjóðir þjóna honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég gjöri þig að ljósi fyrir þjóðirnar, svo að þú sért mitt hjálpræði til endimarka jarðarinnar.

Sálmur 72 II

Andstef · Drottinn frelsar börn hins snauða, frá ofbeldi bjargar hann sálum þeirra.

12Hann bjargar hinum snauða, er hrópar á hjálp * og hinum þjáða, er enginn liðsinnir.

13Hann aumkast yfir bágstadda og snauða * og fátækum sálum hjálpar hann.

14Frá ofbeldi og ofríki leysir hann sálir þeirra * og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans.

15Hann mun lifa og menn munu gefa honum Saba * gull, menn munu sífellt biðja fyrir honum, blessa hann liðlangan daginn.

16Gnóttir korns munu vera í landinu, á fjallatindunum, í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon * og menn skulu spretta upp í borgunum eins og gras úr jörðu.

17Nafn hans mun vara að eilífu * meðan sólin skín mun nafn hans gróa. Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér blessunar, allar þjóðir munu hann sælan segja.

18Lofaður sé Drottinn, Guð * Ísraels Guð, sem einn gjörir furðuverk,

19og lofað sé hans dýrlega nafn um eilífð * og öll jörðin fyllist dýrð hans. Amen, amen.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn frelsar börn hins snauða, frá ofbeldi bjargar hann sálum þeirra.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Nú er komið hjálpræðið og ríki Guðs vors.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Nú er komið hjálpræðið og ríki Guðs vors.

Stuttur ritningarlestur

1Jh 1, 5b. 7Guð er ljós, og myrkur er alls ekki í honum. Ef vér göngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan og blóð Jesú, Sonar hans, hreinsar oss af allri synd.

Stutt svarvers

Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.

Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.

Allar þjóðir munu vegsama dýrð hans.

Menn af öllum kynþáttum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Fólkið frá Saba mun koma færandi gull, reykelsi og myrru, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með Syni þínum kveiktir þú öllum þjóðum ljós eilífðar þinnar. Gef fólki þínu að viðurkenna fulla dýrð endurlausnara síns, svo að hún aukist stöðugt og leiði það til ævarandi ljóma. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007