Opinberun Drottins
Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.
Jólatíð · Vika 3Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í sunnudagsmessunni
- 1. lesning
- Jesaja 60:1-6
- Davíðssálmur
- Sálmur 72:1-2, 7-8, 10-11, 12-13
- 2. lesning
- Efesusbréfið 3:2-3a, 5-6
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 2:1-12
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Lát opnast augu mín,minn ástvin himnum á,svo ástarundur þínmér auðnist skýrt að sjá:hið fríða foldarskraut,hinn fagra stjarnaherá loftsins ljómabrautog ljóssins dýrð hjá þér.Lát opnast eyru mín,minn ástafaðir kær,svo eilíf orðin þínég ávallt heyri skær:þíns lögmáls hvellan hljóm,þín heilög boð, ei ströng,þíns guðspjalls ástarómog engla helgan söng.Lát opnast munninn minn,svo mál hans, Drottinn kær,þitt vald og vísdóm þinnæ votti nær og fjær.Veit mér að mikla þig,á meðan æðar slá,já, lengur lát þú migþig lofa himnum á.Lát opnast harðlæst húsmíns hjarta, Drottinn minn,svo hýsi' eg hjartans fúsþar helgan anda þinn. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Vitringarnir luku upp fjárhirslum sínum og færðu Drottni gjafir, gull, reykelsi og myrru, hallelúja.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Vitringarnir luku upp fjárhirslum sínum og færðu Drottni gjafir, gull, reykelsi og myrru, hallelúja.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Lofið Drottin, þér höf og vötn. Lofið Drottin, þér lindir, hallelúja.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofið Drottin, þér höf og vötn. Lofið Drottin, þér lindir, hallelúja.
Sálmur 149
Andstef · Jerúsalem, ljós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér. Menn af hverjum kynstofni munu ganga í dýrðinni þegar sól þín rennur upp, hallelúja.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jerúsalem, ljós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér. Menn af hverjum kynstofni munu ganga í dýrðinni þegar sól þín rennur upp, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Jes 52, 7-10Hversu yndislegir eru á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, sem friðinn kunngjörir, gleðitíðindin flytur, hjálpræðið boðar og segir við Síon: „Guð þinn er setstur að völdum!“ Varðmenn þínir hefja upp raustina allir í einu, þeir æpa fagnaðaróp, því að með eigin augum sjá þeir Drottin hverfa aftur til Síonar. Hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp allar í einu, þér eyðirústir Jerúsalem, því að Drottinn huggar lýð sinn, leysir Jerúsalem. Drottinn hefir beran gjört heilagan armlegg sinn í augsýn allra þjóða, og öll endimörk jarðarinnar skulu sjá hjálpræði Guðs vors.
Stutt svarvers
Allir konungar jarðar * munu lúta í tilbeiðslu.
Allir konungar jarðar * munu lúta í tilbeiðslu.
Allar þjóðir munu þjóna honum.
Munu lúta í tilbeiðslu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Allir konungar jarðar * munu lúta í tilbeiðslu.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Í dag heimtar brúðguminn brúði sína, Kirkjuna, þar sem Kristur hefur þvegið hana af syndum hennar í vötnum Jórdan; vitringarnir þrír flýttu sér með gjafir sínar til hins konunglega brúðkaups; og brúðkaupsgestirnir fögnuðu, því Kristur hefur breytt vatni í vín, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Í dag vegsömuðu vitringarnir þrír Frelsara vorn. Vér skulum einnig tilbiðja hann með fögnuði þar sem vér biðjum:Ljós af ljósi, skín á oss á þessum degi.Kristur, þú opinberaðir þig í holdinu,helgaðu oss með bæn og orði Guðs.Kristur, vottur þinn var Andinn,frelsa líf vort frá anda efans.Kristur, þú opinberaðir þig englunum,hjálpa oss að skynja fögnuð himins á jörðu.Kristur, þú varst kunngjörður þjóðunum,opna hjörtu allra með krafti Heilags Anda.Kristur, þú komst á trú í heiminum,endurnýja trú allra trúenda.Kristur, þú varst tekinn upp í dýrð,tendraðu í oss löngun fyrir ríki þínu.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú sem á þessum degi opinberaðir þjóðunum eingetinn Son þinn með leiðarstjörnu, veit þú mildur að oss, sem þekkjum þig þegar fyrir trúna, auðnist að íhuga ásýnd hátignar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Dýrlegi Jesús, Drottinn allra heima,duftinu klæddur, Guðs einkason,þig vil ég elska, einum þér fylgja,anda míns heilsa, líf og von.Fögur er hlíðin, frítt um völl og haga,fagurt er vorið, sem lífgar allt.Jesús er fegri, hærri og hreinni,sem hjartað lífgar, snautt og kalt.Blómkrónur anga, brosa móti sólu,barnsaugað tæra þó fegur skín.Blómið mun falla, brestur hvert auga,birtan þín, Jesús, aldrei dvín.Bjartur er máni, blítt skín sól í heiði,blikandi stjarna er hýr að sjá.Skærar þú lýsir, ljós heimsins, Jesús,ljómi Guðs dýrðar himni frá.Fegurð og yndi, allt á himni og jörðueinum þér hneigir og skín af þér.Hvert sem ég leita, hvað sem ég þrái,hjarta míns gimsteinn vertu mér. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Hann kemur í dýrð, Konungurinn sem er vor friður; hann er æðstur allra konunga á jörðinni.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann kemur í dýrð, Konungurinn sem er vor friður; hann er æðstur allra konunga á jörðinni.
Sálmur 112
Andstef · Ljós hefur skinið í gegnum myrkrið til handa hinu hreina hjarta; Drottinn er miskunnsamur, líknsamur og réttlátur.
1Hallelúja. Sæll er sá maður * sem óttast Drottin og hefur mikla unun af boðum hans.
2Sæði hans verður voldugt á jörðunni * ætt réttvísra mun blessun hljóta.
3Nægtir og auðæfi eru í húsi hans * og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
4Hann upprennur réttvísum sem ljós í myrkrinu * mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.
5Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána * sem framkvæmir málefni sín með réttvísi,
6því að hann mun eigi haggast að eilífu * hins réttláta mun minnst um eilífð.
7Hann óttast eigi ill tíðindi * hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.
8Hjarta hans er öruggt, hann óttast eigi * og loks fær hann að horfa á fjendur sína auðmýkta.
9Hann hefur miðlað mildilega, gefið fátækum * réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.
10Hinn óguðlegi sér það, og honum gremst * nístir tönnum og tortímist. Ósk óguðlegra verður að engu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ljós hefur skinið í gegnum myrkrið til handa hinu hreina hjarta; Drottinn er miskunnsamur, líknsamur og réttlátur.
Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni
Andstef · Allir lýðir, sem þú hefur skapað, munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, Drottinn.
3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.
4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Allir lýðir, sem þú hefur skapað, munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, Drottinn.
Stuttur ritningarlestur
Tt 3, 4-5Birtist gæska Guðs frelsara vors og elska hans til mannanna, ekki vegna réttlætisverkanna, sem vér höfðum unnið, heldur samkvæmt miskunn sinni í þeirri laug, þar sem vér endurfæðumst og Heilagur Andi gjörir oss nýja.
Stutt svarvers
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Allar þjóðir munu vegsama dýrð hans.
Menn af öllum kynþáttum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þrír leyndardómar merkja þennan heilaga dag: Í dag leiðir stjarnan vitringana þrjá til ungbarnsins Krists; í dag er vatni breytt í vín fyrir brúðkaupsveisluna; í dag er það vilji Krists að Jóhannes skíri hann í ánni Jórdan til að færa oss hjálpræði, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú sem á þessum degi opinberaðir þjóðunum eingetinn Son þinn með leiðarstjörnu, veit þú mildur að oss, sem þekkjum þig þegar fyrir trúna, auðnist að íhuga ásýnd hátignar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007