Og Tóbías hinn eldri lauk upp munni sínum, blessaði Drottin og sagði: „Mikill ert þú, Drottinn, að eilífu, og ríki þitt varir um allar aldir.
Því að þú hirtir og þú frelsar; þú leiðir niður til heljar og leiðir upp aftur, og enginn er sá, er undan hendi þinni fái komist.
Gefið Drottni dýrð, þér Ísraelsmenn, og lofið hann í augsýn heiðingjanna,
því að hann hefur fyrir því tvístrað yður meðal heiðingjanna, sem eigi þekkja hann, að þér mættuð kunngjöra hin undursamlegu verk hans og láta þá vita, að enginn annar almáttugur Guð er til nema hann.
Hann hefur agað oss fyrir misgjörðir vorar, og hann mun frelsa oss sakir miskunnar sinnar.
Sjáið þá, hvað hann hefur oss gjört, og gefið honum dýrð með ótta og skjálfta, og hefjið hinn eilífa konung aldanna í verkum yðar.
En eg mun lofa hann í landi herleiðingar minnar, því að hann hefur sýnt tign sína gagnvart syndugri þjóð.
Snúið yður því, þér syndarar, og gjörið réttlæti frammi fyrir Guði og trúið því, að hann muni sýna yður miskunn sína.
Og eg og sál mín munum gleðjast í honum.
Blessið Drottin, allir hans útvöldu; haldið gleðidaga og gefið honum dýrð.
Jerúsalem, borg Guðs, Drottinn hefur agað þig fyrir verk handa þinna.
Gef Drottni dýrð fyrir gæði þín og blessa hinn eilífa Guð, að hann megi endurreisa tjaldbúð sína í þér og kalla alla hina herleiddu aftur til þín, og að þú megir gleðjast um aldir alda.
Þú munt skína dýrlegu ljósi, og öll endimörk jarðarinnar munu tilbiðja þig.
Þjóðir munu koma til þín úr fjarlægð og færa gjafir og tilbiðja Drottin í þér og telja land þitt heilagt.
Því að þeir munu ákalla hið mikla nafn í þér.
Bölvaðir munu þeir verða, sem fyrirlíta þig, og dæmdir munu þeir verða, sem lastmæla þér; en blessaðir munu þeir verða, sem reisa þig upp.
En þú munt gleðjast yfir börnum þínum, því að þau munu öll blessuð verða og saman safnað til Drottins.
Blessaðir eru allir þeir, sem elska þig og gleðjast yfir friði þínum.
Sál mín, blessa þú Drottin, því að Drottinn, Guð vor, hefur frelsað Jerúsalem, borg sína, frá öllum hennar þrengingum.
Sæll mun eg vera, ef nokkuð verður eftir af niðjum mínum til að sjá dýrð Jerúsalem.
Hlið Jerúsalem munu byggð verða af safír og smaragði, og allir múrar hennar alt um kring af dýrum steinum.
Öll stræti hennar munu lögð hvítum og hreinum steinum, og Halelúja mun sungið verða á strætum hennar.
Blessaður sé Drottinn, sem hefur upp hafið hana, og megi hann ríkja yfir henni um aldir alda. Amen.“