„Guð feðra minna og Drottinn miskunnarinnar, þú sem gjörðir alla hluti með orði þínu
og skipaðir manninn með speki þinni, að hann skyldi drottna yfir sköpuninni, sem af þér var gjörð,
að hann skyldi stjórna heiminum eftir jöfnuði og réttlæti og fullnægja rétti með einlægu hjarta:
Gef mér spekina, sem situr hjá hásæti þínu, og hafna mér eigi meðal barna þinna.
Því að eg er þjónn þinn og sonur ambáttar þinnar, veikur maður og skammær og skortir skilning á dómi og lögum.
Því að þótt einhver sé fullkominn meðal mannanna barna, mun hann að engu metinn verða, ef speki þín er eigi með honum.
Þú hefur útvalið mig til að vera konung lýðs þíns og dómara sona þinna og dætra,
og boðið mér að byggja musteri á þínu heilaga fjalli og altari í borg bústaðar þíns, líking þinnar heilögu tjaldbúðar, sem þú hefur búið frá upphafi.
Og speki þín er með þér, sú sem þekkir verk þín og var og viðstödd, þegar þú gjörðir heiminn, og vissi, hvað þóknanlegt var augum þínum og hvað rétt var í boðorðum þínum.
Send hana út af þínum heilaga himni og frá hásæti tignar þinnar, að hún sé með mér og vinni með mér, að eg megi vita, hvað þér er þóknanlegt.
Því að hún þekkir og skilur alla hluti og mun leiða mig hóflega í verkum mínum og varðveita mig með mætti sínum.
Svo munu verk mín þóknanleg verða, og eg mun stjórna lýð þínum réttlátlega og verða verður hásætis föður míns.
Því að hver er sá meðal manna, er þekkt geti ráð Guðs? Eða hver getur hugsað, hver vilji Guðs sé?
Því að hugsanir dauðlegra manna eru ótryggar og ráð vor óviss.
Því að hinn forgengilegi líkami er byrði á sálinni, og hin jarðneska híbýli þyngir niður hugann, sem um margt hugsar.
Og naumlega getum vér rétt til um það, sem á jörðu er, og með erfiðismunum finnum vér það, sem fyrir augum vorum er. En það, sem á himnum er, hver mun það rannsaka?
Og hver mun þekkja hugsun þína, nema þú gefir speki og sendir þinn heilaga anda ofan að,
og svo verði vegir þeirra, sem á jörðu eru, réttir gjörðir, og menn læri það, sem þér þóknast?
Því að fyrir speki voru þeir læknaðir, hverjir sem þér hafa þóknast, Drottinn, frá upphafi.“