Sá, sem lögmálið heldur, margfaldar fórnir.
Það er heilnæm fórn að gefa gaum að boðorðunum og víkja frá öllu ranglæti.
Og að víkja frá ranglæti er að færa friðþægingarfórn fyrir rangindi og biðja fyrirgefningar synda.
Sá færir þakkir, sem fórnar fínu mjöli; og sá, sem miskunn sýnir, færir fórn.
Að víkja frá ranglæti er það, sem Drottni þóknast; og að víkja frá rangindum er bæn fyrir syndum.
Þú skalt eigi tómhentur birtast frammi fyrir Drottni,
því að alt þetta skal gjört vera sakir boðorðs Guðs.
Fórn hins réttláta feitar altarið og er sætur ilmur frammi fyrir hinum hæsta.
Fórn hins réttláta er þóknanleg, og Drottinn mun eigi gleyma minningu hennar.
Gef Guði dýrð með góðu hjarta, og rýr eigi frumgróða handa þinna.
Sýn glaða ásjónu við sérhverja gjöf, og helga tíundir þínar með gleði.
Gef hinum hæsta eftir því, sem hann hefur þér gefið, og gjör með góðu auga eftir getu handa þinna,
því að Drottinn endurgeldur og mun gefa þér sjöfalt.
Fær eigi óguðlegar gjafir, því að slíkar mun hann eigi þiggja.
Og lít eigi til ranglátrar fórnar, því að Drottinn er dómari, og hjá honum er ekkert manngreinarálit.
Drottinn mun engan mann taka fram yfir fátækan mann, og hann mun heyra bæn þess, sem rangindi þolir.
Hann mun eigi fyrirlíta bænir hins föðurlausa né ekkjunnar, þegar hún úthellir kvörtun sinni.
Renna eigi tár ekkjunnar niður kinnina, og er hróp hennar eigi gegn þeim, sem þau lætur falla?
Því að frá kinninni stíga þau alt til himins, og Drottinn, sem heyrir, mun eigi hafa þóknun á þeim.
Sá, sem tilbiður Guð með gleði, mun þeginn verða, og bæn hans mun ná alt til skýjanna.
Bæn þess, sem sjálfan sig lægir, mun rjúfa skýin; og uns hún nálgast, mun hann eigi huggaður verða, og hann mun eigi burt víkja, uns hinn hæsti lítur til.
Og Drottinn mun eigi seinn verða, heldur mun hann dæma hinum réttlátu í vil og fullnægja rétti; og hinn almáttugi mun eigi hafa þolinmæði með þeim, svo að hann mylji bak þeirra.
Og hann mun endurgjalda hefnd heiðingjunum, uns hann hefur burt tekið fjölda hinna dramblátu og brotið veldissprota hinna ranglátu,
uns hann hefur goldið mönnum eftir verkum þeirra og eftir gjörðum Adams og eftir ofdirfsku hans,
uns hann hefur dæmt málstað lýðs síns, og hann mun gleðja hina réttlátu með miskunn sinni.
Miskunn Guðs er fögur á tíma þrengingar, sem regnský á þurrkatíma.