Síraksbók 30Krans-útgáfa

Síraksbók 30

Sá, sem elskar son sinn, agar hann oft, að hann megi gleðjast yfir honum að lokum og eigi þreifa fyrir sér við dyr náunga sinna.

Sá, sem fræðir son sinn, mun lofaður verða fyrir hann og hrósa sér af honum mitt á meðal heimafólks síns.

Sá, sem kennir syni sínum, gjörir óvin sinn öfundsjúkan, og mitt á meðal vina sinna mun hann hrósa sér af honum.

Faðir hans er dáinn, og hann er sem væri hann eigi dáinn, því að hann hefur látið eftir sig þann, sem honum er líkur.

Meðan hann lifði, sá hann hann og gladdist yfir honum; og þegar hann dó, var hann eigi hryggur né varð til skammar frammi fyrir óvinum sínum.

Því að hann lét eftir sig verjanda húss síns gegn óvinum sínum og þann, sem endurgelda mun vinum sínum velgjörðir.

Fyrir sálir sona sinna mun hann binda um sár þeirra, og við hvert hróp munu iður hans hrærast.

Hestur, sem eigi er taminn, verður þver, og barn, sem sjálfu sér er eftirlátið, mun verða óstýrilátt.

Gef syni þínum sinn vilja, og hann mun gjöra þig hræddan; leik við hann, og hann mun gjöra þig hryggan.

Hlæ eigi með honum, svo að þú fáir eigi sorg og tennur þínar verði að lokum settar á egg.

Gef honum eigi frelsi í æsku hans, og lát eigi sem þú sjáir eigi ráðabrugg hans.

Beygðu háls hans, meðan hann er ungur, og lem síður hans, meðan hann er barn, svo að hann verði eigi þver og virði þig eigi að vettugi og verði þér þannig að hjartasorg.

Fræð son þinn og legg erfiði við hann, svo að lauslæti hans verði þér eigi til hneykslis.

Betri er fátækur maður, sem heilbrigður er og styrkur að líkamsburðum, en auðugur maður, sem veikur er og illsku hrjáður.

Heilbrigði sálarinnar í heilagleik réttlætisins er betri en alt gull og silfur, og heilbrigður líkami betri en ómældar tekjur.

Engin auðæfi eru meiri en auðæfi líkamsheilsunnar, og engin ánægja er meiri en gleði hjartans.

Betri er dauðinn en beiskt líf, og eilíf hvíld en sífelldur sjúkdómur.

Gæði, sem hulin eru í lokuðum munni, eru sem matarhrúgur settar kringum gröf.

Hvað gagnar fórn skurðgoði? Því að það getur hvorki etið né þefað.

Svo er og sá, sem Drottinn ofsækir og ber laun ranglætis síns.

Hann sér með augum sínum og stynur, sem geldingur, er faðmar mey og andvarpar.

Gef eigi sál þína hryggðinni á vald, og þjá eigi sjálfan þig með þínu eigin ráði.

Gleði hjartans er líf mannsins og óþrjótandi fjársjóður heilagleikans, og fögnuður mannsins er langir lífdagar.

Aumkast yfir þína eigin sál og þóknast Guði og halt þér í skefjum; safna hjarta þínu saman í heilagleik hans, og rek hryggðina langt frá þér.

Því að hryggðin hefur marga deytt, og enginn ávinningur er í henni.

Öfund og reiði stytta daga mannsins, og áhyggjur munu færa elli fyrir tímann.

Glaðvært og gott hjarta er ávallt í veislu, því að veislur þess eru búnar með kostgæfni.